
Kópavogur

Þyngri refsing fyrir hnífstungu fæli ekki endilega frá
Margrét Valdimarsdóttir dósent í félags- og afbrotafræði við HÍ segir fjögurra ára fangelsisdóm Daníels Arnar Unnarssonar í samræmi við önnur sambærileg mál þar sem dæmt var fyrir tilraun til manndráps. Þá segir hún þyngri refsingar ekki endilega hafa meiri fælingarmátt.

Fjögur ár fyrir að reyna að myrða lækninn
Daníel Örn Unnarsson, þrítugur, hefur verið dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk lækni á kvöldgöngu ásamt konu sinni og vinahjónum ítekað í Lundi í Kópavogi í sumar.

Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum
Tólf starfsmönnum Heimkaupa hefur verið sagt upp störfum vegna skipulagsbreytinga. Vefverslun félagsins hefur verið rekin með tapi undanfarið og aukin áhersla verður lögð á rekstur lágvöruverðsverslunarinnar Prís.

Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi
Sakborningur í Elko-málinu svokallaða er grunaður um fjölda annarra afbrota, þar eru átta þjófnaðarbrot og sex umferðarlagabrot. Hann er einnig grunaður um heimilisofbeldi og hlaut dóm fyrir ýmis brot í haust.

Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur stórfellt fíkniefnamál til rannsóknar þar sem lagt hefur verið hald á tæplega þrjú kíló af MDMA-kristöllum og 1781 stykki af MDMA-töflum.

Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa
Rannsókn á margra milljóna króna þjófnaði í Hamraborg í Kópavogi, sem var framið í byrjun mars, er lokið og hefur verið sent til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ofurpar úr tennisheiminum á Íslandi
Tennisparið Paula Badosa og Stefano Tsitsipas er statt hér á landi. Þau litu meðal annars við í tennishöllina í Kópavogi, þar sem þeim var vel tekið.

Tara Sif og Elfar selja íbúðina
Tara Sif Birgisdóttir, fasteignasali og dansari, og eiginmaður hennar Elfar Elí Schweitz Jakobsson lögfræðingur, hafa sett íbúð sína við Álalind í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 96,8 milljónir.

Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu fyrir ellefu í dag vegna reyks við Borgarholtsbraut í Kópavogi.

Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind
Fasteignafélagið Heimar hefur sett af stað umfangsmiklar framkvæmdir í austurenda Smáralindar en þar á að rísa nýtt veitingasvæði. Áætlað er að þrettán veitingastaðir verði opnaðir á þessu nýja svæði í Smáralind fyrir lok árs 2025. Um verður að ræða allt frá skyndibita yfir í fínni veitingastaði sem einnig verða opnir á kvöldin.

Stefna á að verk hefjist við Fossvogsbrú snemma á næsta ári
Fyrsta lota borgarlínu hefur tekið nokkrum breytingum samkvæmt nýjum tillögum. Opnað verður fyrir tilboð í fyrsta áfanga Fossvogsbrúar í byrjun desember og framkvæmdastjóri Betri samgangna væntir þess að framkvæmdir geti hafist snemma á næsta ári.

Borgarlínuvagnar þeir einu sem fái að aka Fríkirkju- og Skothúsveg
Flæði umferðar í kringum Tjörnina í miðborg Reykjavíkur breytist verulega með tillögum að breyttri legu borgarlínu þar. Fríkirkjuvegur og hluti Skothúsvegar yrði lagður eingöngu undir borgarlínuna en aftur mætti aka í báðar áttir eftir Suðurgötu í staðinn.

Fjölskylda komst lífs af fyrir ótrúlega tilviljun
Tveggja barna móðir átti fótum sínum fjör að launa þegar að hún og fjölskylda hennar komust heil á húfi undan eldsvoða sem kom upp í íbúð þeirra um miðja nótt. Hún segir ótrúlega tilviljun hafa orðið til þess að þau komust öll lífs af.

Líf í skugga flugvallar – upplifun íbúa
Í hjarta Reykjavíkur, þar sem ævintýri borgarlífsins og náttúrunnar mætast, búa íbúar við lífsgæðaskerðingu vegna stóraukinnar starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Þetta á sérstaklega við um íbúa í hverfum sem liggja í nágrenni flugvallarins, svo sem við Hlíðar, Miðbæ, Vesturbæ og Kópavog en einnig þau hverfi sem liggja undir fluglínum.

Kópavogur lækkar skatta á íbúa
Há verðbólga og háir vextir hafa haft áhrif á okkur öll. Þó svo að efnahagshorfur til framtíðar séu jákvæðar þá hafa síðustu mánuðir og ár verið erfiðir og haft mikil áhrif á heimili landsins, sem mörg hver berjast í bökkum við að stranda straum af hefðbundnum kostnaði.

Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings
Vinur læknis, sem stunginn var í Lundi í Kópavogi í sumar, er með réttarstöðu sakbornings vegna áfloga milli hans og árásarmannsins. Eftir að árásarmaðurinn flúði vettvang stökk vinurinn upp á rafhlaupahjól árásarmannsins og elti hann uppi.

„Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“
Eiginkona læknis á sextugsaldri sem stunginn var fjórum sinnum í Lundi í Kópavogi í sumar var viss um að eiginmaður hennar myndi deyja eftir árásina. Árásarmaðurinn og öll sem urðu vitni að árásinni segja að soðið hafi upp úr vegna ágreinings um umferðarreglur á göngustígum.

Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“
Þrítugur karlmaður sem er ákærður fyrir að reyna að bana lækni í Lundi í Kópavogi í sumar, segist ekki hafa haft neinn ásetning til þess að stinga lækninn. Hann hafi gripið til hnífs og sveiflað í átt að lækninum í sjálfsvörn. Hann hafi verið með hníf sem hann keypti í Kolaportinu í vasanum af því að honum þætti hann „töff“.

Fjármál Kópavogsbæjar - hin hliðin
Kópavogsbær hefur verið rekinn með halla síðustu ár og lánsfjárþörf verið mikil. Kópavogsbær fær ítrekað bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga af því að Kópavogsbær uppfyllir ekki fjárhagsleg lágmarksviðmið. Um þetta fjallar bæjarstjóri Kópavogs ekki í fréttatilkynningum, greinaskrifum og glærukynningum.

Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs
Sérsveit ríkislögreglustjóra verður við æfingar við Fannborg í hjarta Kópavogs í dag. Almenningur er sagður geta átt von á því að heyra hvelli og læti sem eigi sér eðlilegar skýringar.

7.500 íbúðir á Reykjavíkurflugvelli?
Fátt skiptir heimili meira máli um þessar mundir en að verðbólga hjaðni og vextir lækki. Það tekst ekki nema jafnvægi náist á húsnæðismarkaði. Húsnæðismál eru því eitt stærsta hagsmunamál heimilanna.

Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna
Móðir sem dæmd var í átján ára fangelsi á dögunum fyrir að myrða sex ára son sinn og gera tilraun til að bana eldri syni sínum var þjökuð af alvarlegu þunglyndi en ekki geðveiki að mati dómkvaddra matsmanna. Hún tilkynnti lögreglu sjálf um andlát sonarins. Hinn sonurinn segir mömmu sína hafa spurt þegar hún reyndi að kæfa hann hvort hann vildi ekki deyja áður en hann næði tilteknum aldri því þá færi hann í „góða heiminn“.

Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ
Bilun er í götulýsingu víða í Kópavogi og hefur verið frá því fyrir helgi. Unnið er að lagfæringu en vatn komst í rafstreng sem liggur nærri bilun. Búið er að koma umferðarljósum í gang sem einnig biluðu í morgun.

Bjóða út gerð landfyllinga við Fossvogsbrú
Vegagerðin hefur nú boðið út gerð landfyllinga og sjóvarna vegna byggingar Fossvogsbrúar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að verkið sé hluti af 1. lotu Borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði.

Þungur dómur fyrir að drepa son sinn og reyna að drepa annan
Kona á fimmtugsaldri hefur verið dæmd til átján ára fangelsisvistar fyrir að myrða sex ára son sinn á heimili þeirra að Nýbýlavegi í Kópavogi og að reyna að myrða annan son sinn í janúar.

Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar.

Snúrunni lokað fyrir fullt og allt
Hönnunarverslunin Snúran kveður íslenska fagurkerabransann innan tíðar en tíu ár eru síðan verslunin opnaði. Eigandi Snúrunnar kveðst ætla að snúa sér að öðru.

Segir Bjarna ekki hafa ruglast og Pawel fari sjálfur með rangt mál
Pawel Bartoszek segir Bjarna Benediktsson hafa ruglast þegar hann sagði ágreining milli Kópavogs og Reykjavíkur um vaxtamörk. Ágreiningurinn væri í raun milli Kópavogs og Garðabæjar. Hildur Björnsdóttir andmælir Pawel og segir fulltrúa meirihlutans víst hafa skotið niður áform utan vaxtarmarka.

Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár opin umferð
Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hefur verið opnuð umferð. Brúin er við Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks og var hún tengd við stígakerfi Elliðaárdals með malbiki fyrir helgi.

Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann
Fjögurra manna fjölskylda komst af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í Salahverfi í nótt.