Grindavík

Mesta virknin áfram nærri Sýlingarfelli og Hagafelli
Áfram er mesta jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga nærri Sýlingarfelli og Hagafelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Uppgötvaði holu fyrir utan heimilið: „Þetta bara hverfur hérna ofan í“
Þorleifur Hjalti Alfreðsson, íbúi í Grindavík og rafvirki, uppgötvaði risastóra holu undir garði heima hjá sér í dag þar sem krakkarnir hans leika sér allajafna í fótbolta. Hann kemur kústi ofan í holuna án þess að ná til botns.

„Við erum ekkert alveg búin með þennan atburð“
Jarðskjálftahviða var á kvikuganginum á Reykjanesi um miðnætti og segir jarðskjálftafræðingur það til marks um að enn sé kvika á hreyfingu í kvikuganginum. Ljóst sé að atburðinum sé ekki lokið.

Jarðskjálftahviða austur af Sýlingarfelli en engar vísbendingar um gosóróa
Rétt fyrir miðnætti hófst jarðskjálftahviða á kvikuganginum á Reykjanesi, rétt austur af Sýlingarfelli. Hviðan stóð yfir í rúma klukkustund og mældust um 170 skjálftar, flestir undir tveimur að stærð.

„Það hefur heilmikið breyst en samt ekkert sérstaklega mikið“
Á fáeinum dögum virðist mat manna á stöðunni í Grindavík og nágrenni hafa gjörbreyst. Víðir Reynisson segir Almannavarnir líta á stöðuna núna sem einhverskonar logn en öll merki séu um að atburðarrásinni sé ekki lokið.

Staðráðin í að snúa aftur „hvað sem það kostar“
Grindvíkingar fengu að fara með flutningabíla inn í bæinn í dag, til að vitja fleiri muna en þeirra nauðsynja sem þeir hafa hingað til getað sótt. Þeir íbúar sem fréttastofa hitti á eru staðráðnir í að Hflytja aftur heim. Hugsanlegt er að hluti kvikunnar undir bænum sé storknaður.

Líkur á gosi í Grindavík fari hratt þverrandi
Talið er að kvikan undir kvikuganginum undir Grindavík sé storknuð að hluta til. Verulega hefur dregið úr skjálftavirkni þar og fara líkur á gosi hratt þverrandi með hverjum degi.

Heimilt að fara inn í Grindavík með flutningabíla
Íbúar í Grindavík hafa í dag heimild til að fara inn í bæinn með flutningabíla. Heimildin gildir frá klukkan níu til fjögur. Í næstu viku verður boðið upp á aðstoð við flutninga.

Jóhann Þór: Ætla ekki að fara í sandkassaleik eins og Pétur og Maté
Grindavík fékk skell gegn Keflavík þar sem liðið tapaði afar sannfærandi 82-111. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var afar svekktur eftir leik.

Sáralitlar líkur á gosi úr sprungunni
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir sáralitlar líkur á því að það gjósi úr sprungunum sem mynduðust í miðjum Grindavíkurbæ. Mestar líkur eru á gosi við Svartsengi.

„Körfuboltaleikur í kvöld en ekki tilfinningalegur rússíbani“
Pétur Ingvarsson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta segir það vissulega sérstaka tilfinningu að vera halda inn í útileik gegn nágrönnunum frá Grindavík þar sem að leikurinn verður spilaður í Smáranum í Kópavogi.

Húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga fyrir 240 milljónir á mánuði
Ríkisstjórnin samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar Grindvíkinga.

Bein útsending: Blaðamannafundur um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 11:30 í dag. Á fundinum munu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra ræða húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur.

Boða til blaðamannafundar um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar þar sem fjallað verður um húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga síðustu vikurnar. Fundurinn hefst klukkan 11:30.

Íbúar í Grindavík fá rýmri heimildir á morgun
Íbúum í Grindavík verður leyft að fara á fólksbílum inn í bæinn á morgun til að sækja verðmæti. Þá verða sendibílar og aðrir bílar allt að 3,5 tonn í heildarþyngd og kerrur auk þess leyfðar. Þá verður ekki haldinn upplýsingafundur almannavarna á morgun.

Elsta steinhús bæjarins ónýtt
Elsta steinhús Grindavíkur er stórskemmt eftir hamfarir síðustu daga. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur beint því til íbúa þess að tæma það alveg. Þrjár fjölskyldur bjuggu í húsinu.

„Maður vill ekkert meira en að búa áfram á þessu heimili“
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er einn fjölmargra Grindvíkinga sem fengu að fara heim til sín í dag að sækja verðmæti. Fulltrúar fréttastofu fengu að líta við hjá honum og sjá skemmdirnar.

Forsætisráðherra segir risaverkefni að leysa bráðavanda Grindvíkinga
Forsætisráðherra segir húsnæðismál Grindvíkinga verða tekin fyrir á ríkisstjórnarfundi á morgun en það væri risaverkefni að leysa úr húsnæðisþörf þeirra næstu mánuðina. Útspil bankanna í gær um að fella tímabundið niður vexti og verðbætur dragi vonandi úr áhyggjum og kvíða Grindvíkinga.

Um þriðjungur starfsfólks farinn heim til Póllands
Framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík segir helstu starfsemi hafa verið flutta annað. Stefnt sé að því að undirbúa húsin í Grindavík næstu viku fyrir vinnslu þegar leyfi fæst. Þriðjungur hefur yfirgefið landið. Hann segir starfsemina byrja aftur í Grindavík um leið og grænt ljós kemur.

Fá ekki óheftan aðgang en hafa náð að bjarga nánast öllu
Forstjóri Orf líftækni segir að rýmri opnun til Grindavíkur gildi ekki fyrir fyrirtækið, sem er nokkuð utan bæjarins. Fólk á vegum fyrirtækisins hafi þó fengið að fara á svæðið þrisvar í fylgd viðbragðsaðila og búið sé að bjarga nánast öllu því sem bjargað verður.

Löng bílaröð til Grindavíkur
Töluvert löng bílaröð er nú á Krýsuvíkurvegi frá gatnamótunum við Suðurstrandarveg. Um er að ræða Grindvíkinga á leiðinni heim til sín til að frekari verðmætabjörgunar.

Ragnar Þór aflýsir mótmælum við Landsbankann
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur lýst því yfir að fyrirhuguðum mótmælum við Landsbankann, sem boðað hafði verið til klukkan 14 í dag, hefur verið aflýst.

Dregur enn úr skjálftum og Grindvíkingar fá rýmri aðgang að heimilum sínum
Um 100 jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti við kvikuganginn á Reykjanesi og í gær mældust rúmlega 200 jarðskjálftar allan sólarhringinn.

Vextir og verðbætur í Grindavík falla niður í þrjá mánuði
Vegna náttúruhamfara og óvissuástands í Grindavík hafa Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, í samvinnu við Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), gert samkomulag um að fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði. Samkomulag þessa efnis var undirritað í dag, 22. nóvember.

Of snemmt að gera sér vonir um jól í Grindavík
Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, telur að líkur á eldgosi syðst á kvikuganginum sem nú er undir Reykjanesskaga fari minnkandi.

Mikil eyðilegging á nokkrum stöðum en víða minniháttar skemmdir
Sprungan sem liggur gegnum Grindavík hefur valdið margvíslegum skemmdum í bænum. Fjölmiðlar fengu í fyrsta skipti frá því í síðustu viku að fara inn á svæðið í dag. Spænskur blaðamaður segir samlanda sína fylgjast vel með uppbyggingu varnargarða í Svartsengi eftir að eldgos varð við borgina La Palma.

Eldgos nú líklegast milli Hagafells og Sýlingarfells
Veðurstofa Íslands segir að reikna megi með því að kvikan í kvikuganginum undir Grindavík sé að hluta til storknuð. Dregið hafi úr líkum á að kvika nái að brjóta sér leið út innan bæjarmarka og er líklegasta svæðið fyrir upptök eldgoss milli Hagafells og Sýlingarfells.

Almannavarnastig í Grindavík af neyðarstigi niður á hættustig
Almannavarnastigi vegna jarðhræringa við Grindavík hefur verið breytt af neyðarstigi og niður á hættustig frá og með klukkan 11:00 á morgun, fimmtudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Veðurstofa segir litlar hreyfingar mælast innan sigdalsins í og við bæinn.

Varar við sprungukerfi Krýsuvíkureldstöðvar
Sprungukerfi Krýsuvíkureldstöðvarinnar liggur upp í Heiðmörk og í kringum Rauðavatn, segir eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson. Hann hvetur til þess að áhættumat verði gert á höfuðborgarsvæðinu gagnvart jarðskorpuhreyfingum.

Aldrei hafi staðið til að takmarka aðgengi fjölmiðla til lengri tíma
Nýtt fyrirkomulag fyrir fjölmiðla á Grindavíkursvæðinu fer í gangi í dag. Tvær skipulagðar rútuferðir í dag, eru fyrir annars vegar innlenda og hins vega erlenda fjölmiðla. Lögreglustjóri segir að takmarkanir hafi aðeins komið til vegna skorts á mannafla og vegna þess hve viðkvæmar aðstæður voru fyrir íbúa.