

Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir að eftir á að hyggja hafi ekki verið gott að staðsetja björgunarsveitartjald þar sem líkur voru á að ný sprunga ætti eftir að myndast.
„Það var aldrei planið að opna veitingastað“ segir Halla María Svansdóttir sem rekur farsæla veitingastaðinn Hjá Höllu á Grindavík sem hefur getið sér gott orð fyrir frábæran og hollan mat.
Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt.
Hinn níu ára gamli Hugi Þór Snorrason var á göngu með afa sínum, Kristjáni Kristjánssyni, á gossvæðinu í gær þegar þeir heyrðu drunur og sáu skyndilega mikinn reyk koma upp úr jörðinni.
Engan sakaði þegar eldur kviknaði í vél í orkuveri HS Orku í Svartsengi í dag. Ekki er búist við því að tjón af völdum eldsins hafi áhrif á framleiðslu á raforku eða heitu eða köldu vatni.
Segja má að fyrsta mannvirkið á Reykjanesi sé komið undir nýlegt hraun en vegslóði sem liggur að gosstöðvunum er nú þakinn fersku hrauni eftir að ný sprunga opnaðist með látum í gær.
Guðný Petrína Þórðardóttir og Börkur Þórðarson hlupu á dögunum tíu ferðir upp og niður fellið Þorbjörn við Grindavík. Þau söfnuðu með hlaupinu alls 607 þúsund krónum fyrir Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Stríður straumur fólks barst að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag. Fjöldi var þegar mættur áður en svæðið var opnað af viðbragðsaðilum klukkan sex og segir aðalvarðstjóri lögreglunnar í Grindavík að vel hafi gengið á svæðinu í dag.
Áætlað er að tvö til þrjú hundruð manns hafi verið mættir á gossvæðið klukkan sjö í morgun. Reglubundnar rútuferðir frá Grindavík upp að stikuðu gönguleiðinni að gosinu í Geldingadölum hófust í morgun.
Opnað verður fyrir umferð að gosstöðvum klukkan sex að morgni fram yfir páska, að því gefnu að það viðri vel til útivistar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum sem minnir einnig á að sóttvarnalæknir hefur hvatt fólk til að fara ekki að gosinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Ákveðið hefur verið að loka fyrir umferð að eldstöðinni í Geldingadali tímabundið og óvíst er hvort að opnað verði aftur í kvöld. Gríðarleg bílaröð hefur myndast frá bílastæðum við upphaf gönguleiðarinnar og í gegnum Grindavík.
„Þetta var nú bara stutt rafmagnsleysi núna,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, en nú fyrir stundu sló rafmagninu út í bænum í um 20 mínútur. Orsakirnar eru ókunnar en heppilegt að það gerðist ekki seinna í dag, þegar fjarbæjarstjórnarfundur er á dagskrá, segir Fannar.
Jóhann Issi Hallgrímsson, veitingamaður og eigandi Issi Fish and Chips, mun hefja sölu á veitingum á bílastæði í Nátthagakrika við stikuðu gönguleiðina að gosstöðvunum í Geldingadal síðar í dag.
Einn af eigendum Geldingadala segir ekki standa til að rukka aðgangseyri að eldgosinu. Hann sér hins vegar eftir gróðurlendinu sem farið er undir hraun.
Fjölbreyttur hópur fólks er sammála um að skynsamlegt væri að koma á gjaldtöku fyrir bílastæði við Suðurstrandarveg. Björn Teitsson, kynningarstjóri hjá Krabbameinsfélaginu og fyrrverandi formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, vakti máls á þessu í Morgunblaðinu í dag.
Hraunflæði úr gosinu í Geldingadölum hefur verið stöðugt í nótt. „Við sáum í gær að það hefur lokast af þarna svæði við gíginn sem hafði áður verði hægt að ganga að og hraunið rann aðeins meira í áttina að stikuðu gönguleiðinni. Annars hefur rennslið bara verið tiltölulega jafnt,“ segir Einar Hjörleifsson náttúruvársérfræðingur um stöðuna á gosinu.
Þeirri tillögu hefur verið varpað fram að eldstöðin verði nefnd Hot Stuff, í virðingarskyni við áhöfn og farþega bandarískrar herflugvélar sem fórst á Fagradalsfjalli í síðari heimsstyrjöld. Í hópi þeirra sem létust var æðsti hershöfðingi Bandaríkjamanna í Evrópu.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, hefur ákveðið að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggi allt að tíu milljónir króna til að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða gosstöðvarnar á Reykjanesi.
Einn af landeigendum Geldingadala segir eldgosið hafa komið upp á haugi Ísólfs landnámsmanns og því sé alveg eins gott að kenna eldstöðina við Ísólf. Verið er að bæta göngu- og akstursleiðir að svæðinu en veðurspá helgarinnar er hins vegar afleit.
Umferðaröngþveiti hefur verið á Suðurstrandarvegi undanfarna daga þar sem hver göngumaðurinn á fætur öðrum hefur mætt til að bera eldgosið í Geldingadal augum. Ástand myndaðist á veginum í gær en þá komu norskir hermenn til bjargar.
Í ljósi þess vindur úr norðaustri feykir gasmekki yfir nýstikaða gönguleið að eldstöðvunum í dag hafa viðbragðsaðilar stikað nýja varaleið fyrir þá sem áhugasamir eru um að berja eldgosið augum.
Vísindamenn kanna nú hvort ný sprunga hafi myndast á Reykjanesinu, um sjö kílómetra norðaustur af Keili.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki sérstaklega augun á því hvort fólk sem sækir gosstöðvarnar í Geldingadal heim eigi að vera í sóttkví.
Vel hefur gengið að rýma gossvæðið í Geldingadal nú síðdegis, að sögn aðalvarðstjóra á Suðurnesjum. Hann segir óvíst hvort svæðið verði opið almenningi á morgun en ljóst sé að ráðast verði í breytingar á skipulagi. Dagurinn í dag hafi ekki gengið upp.
Það er óhætt að segja að margir hafi ákveðið að skella sér að gosstöðvunum í Geldingadal í dag. Og flestir komu á bíl.
Björgunarsveitarmaður í svæðisstjórn björgunarsveitanna á Suðurnesjum mælir eindregið með því að fólk fari stikuðu leiðina að gosstöðvunum. Þannig sé best að ná til fólks ef eitthvað kemur upp á. Gríðarlegur bílastæðavandi blasir við í dag en hann biðlar til fólks að vanda sig við að leggja því viðbragðsaðilar verði alltaf að hafa greiða leið.
Fallegt veður er á suðvesturhorninu í dag og greinilega fjölmargir sem ætlað að nota daginn til að heimsækja gösstöðvarnar við Fagradalsfjall.
Björgunarsveitin Þorbjörn hefur lokið við að stika gönguleið að gosstöðvunum í Geldingadal. Gönguleiðin hefst við Suðurstrandarveg og sveitin segir að vel búið göngufólk geti farið hana á einum og hálfum klukkutíma.
Suðurstrandarvegur verður opnaður með takmörkunum í kvöld mánudaginn 22. mars en vegurinn hefur staðið lokaður síðan á fimmtudag, degi áður en eldgos hófst í Geldingadal.
Björgunarsveitarmenn eru þessa stundina að hefjast handa við að stika gönguleið frá Suðurstrandarvegi upp að Nátthagakrika sem er talin vera besta leiðin inn á gossvæðið í Geldingadal.