Árborg

Ljóst að stjórnendur hafi átt að gera betur
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurlands sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu og viðurkennir að stjórnendur skólans og nefndin hafi átt að gera betur í tengslum við viðbrögð sín og miðlun upplýsinga um þau til nemenda, foreldra og fjölmiðla vegna meints kynferðisbrot innan veggja skólans.

Hreinsistöð byggð við Ölfusá á Selfossi
Fyrstu skóflustungurnar af nýju hreinsistöðinni voru teknar á föstudaginn en það kom í hlut Gunnars Egilssonar, fyrrverandi bæjarfulltrúa og Sveins Ægis Birgissonar, núverandi bæjarfulltrúa að taka þær. Umhverfismati nýju stöðvarinnar er lokið og því hefjast framkvæmdir á næstu dögum en verktakafyrirtækið Þjótandi á Hellu mun sjá um þær.

„Það þýðir ekki að segja nemendum að þau megi ekki tala um málið“
Talskona Stígamóta segir skóla verða að bregðast rétt við kynferðisbrotamálum, svo nemendum líði ekki eins og þeir þurfi að taka málin í eigin hendur. Hún setur spurningamerki við tölvupóst sem skólameistari Fjölbrautarskólans á Suðurlandi sendi nemendum, þar sem hann bað þá að ræða ekki meint kynferðisbrot.

„Ekki réttlætanlegt að þolandi geti mætt geranda sínum á ganginum í skólanum“
Forsvarsmenn nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurlands eru ósáttir við hvernig stjórnendur hafa tekið á meintu kynferðisbroti innan veggja skólans. Skólameistarinn hefur beðið nemendur að vanda sig í umræðum um málið.

Hefur áhyggjur af því að dómstóll götunnar taki völdin í málinu
Lögreglan rannsakar nú kynferðisbrot sem talið er hafa átt sér stað á salerni Fjölbrautaskóla Suðurlands. Meintur gerandi og brotaþoli eru báðir undir lögaldri. Skólastjóri skólans hefur áhyggjur af því að „dómstóll götunnar taki völdin í málinu“ og biðlar til nemenda að vanda sig í umræðunni.

Gríðarlegar tafir milli Hveragerðis og Selfoss
Miklar umferðartafir eru Suðurlandsvegi til austurs milli Hveragerðis og Selfoss. Umferð um Biskupstungnabraut er ljósastýrð vegna vegavinnu og hefur áhrif á umferð um Suðurlandsveg.

Enginn spenntur fyrir umfangsmiklum vikurflutningum um þjóðveginn
Þungaflutningar yrðu mun tíðari um Suðurlandsveginn ef áform þýsks fyrirtækis ganga eftir. Vörubíll mun keyra í gegn um helstu bæi svæðisins á kortersfresti. Sveitarfélögum á svæðinu líst ekki á blikuna og setja sig upp á móti flutningunum.

Íbúar áhyggjufullir vegna mögulegrar efnistöku
Formaður bæjarráðs Árborgar er hræddur um að vegakerfið í sveitarfélaginu þoli ekki þann þungaflutning sem fyrirhugaður er um Suðurland vegna efnistöku á vikri á Mýrdalssandi við Hafursey. Hann segir að það þurfi í mörg horn að líta.

Idol leitar að stjörnu á Selfossi í dag
Framleiðendur Idolsins eru á leið sinni um landið í leit að næstu stórstjörnu Íslands. Næsta stopp er Selfoss þar sem prufur fara fram í dag klukkan 13:00 á Bankanum vinnustofu.

Hvað hefur biðin eftir nýrri Selfossbrú yfir Ölfusá kostað samfélagið?
Ný brú yfir Ölfusá við Selfoss var samkvæmt samgönguáætlun fyrri tíðar í bígerð árið 2014. Þáverandi meirihluti bæjarstjórnar í Árborg barðist hart gegn henni.

Sóley Embla er íbúi númer ellefu þúsund í Árborg
11 þúsundasti íbúi Sveitarfélagsins Árborgar var heiðraður nú síðdegis en það var lítil stúlka, sem fæddist 21. júní og hefur hún verið nefnd Sóley Embla. Foreldrar hennar eru Sindri Freyr Ágústsson úr Þorlákshöfn og Helena Guðmundsdóttir frá Selfossi en fjölskyldan býr á Selfossi.

Stuðlabandið springur út í Brasilíu
Hljómsveitin Stuðlabandið vakti athygli á Kótelettunni nú í júlí þegar þeir tóku hið sígilda barnalag Í larí lei og allt ætlaði um koll að keyra en atriðið var tekið upp á myndband sem birtist á vefsíðunni Youtube. Lagið er upphaflega gefið út af brasilísku tónlistarkonunni XUXA og heitir Ylarie en í kjölfar óvæntrar atburðarrásar birti hún myndbandið af Stuðlabandinu á Instagram síðu sinni. Blaðamaður heyrði í Fannari Frey meðlim Stuðlabandsins.

Ein tilkynning um kynferðisbrot á Suðurlandi um helgina
Alls barst lögreglunni á Suðurlandi ein tilkynning um kynferðisbrot um helgina. Einnig barst tilkynning um mögulega byrlun. Alls voru 360 mál og verkefni skráð hjá embættinu yfir helgina.

Falleg saga frá bráðamóttökunni á Selfossi
Hjón í Hveragerði tóku að sér sjö og tíu ára bræður frá Bretlandi og leyfðu þeim að gista hjá sér í nótt. Ástæðan er sú að eiginmaðurinn er yfirlæknir á Selfossi og hafði verið að sinna bráðveikri mömmu drengjanna, sem þurfti að fara í bráðaaðgerð í Reykjavík. Bræðurnir höfðu ekki í nein hús að venda og tóku hjónin drengina að sér með leyfi barnaverndaryfirvalda.

Kökuskreytingar slógu í gegn á Selfossi
Á þriðja hundrað unglingar tóku þátt í kökuskreytingasamkeppni síðdegis á Unglingalandsmótinu á Selfossi þar sem þemað var eldgos og flugeldasýning.

Unglingalandsmótinu lýkur í kvöld með flugeldasýningu
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra segir að Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hafi sannað sig, sem ein umfangsmesta og best sótta hátíðin um verslunarmannahelgina.

Guðni forseti lét foreldra heyra það
Forseti Íslands vakti athygli á ósæmilegri hegðun foreldra, sem koma ekki nógu vel fram á hliðarlínunni þegar börn þeirra eru að keppa í íþróttum, þegar hann flutti ávarp við setningu Unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands á Selfossi í gærkvöldi.

Súrir Selfyssingar slúttuðu sólbaðsstofu
Húseiganda á Selfossi var óheimilt að reka sólbaðsstofu í fjölbýlishúsi. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði beðni eigandans um að fella úr gildi ákvörðun byggingafulltrúa Árborgar sem veitti ekki leyfi fyrir starfseminni.

Allt á floti á Selfossi
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suður- og Suðausturland í dag vegna úrhellis. „Það er allt á floti“ segir eigandi tjaldsvæðis á Selfossi, sem fer einna verst út úr rigningunum í dag. Vegagerðin hefur talsverðar áhyggjur af brú á hringveginum vegna vatnavaxta.

Stöngin inn á Selfossi um verslunarmannahelgina
Nú loks er komið að því að Unglingalandsmót UMFÍ verði haldið á Selfossi eftir 10 ára bið. Mörgum er í fersku minni hve mótið sem haldið var í einstakri veðurblíðunni á Selfossi árið 2012 heppnaðist vel. Aðstaða fyrir keppendur og fjölskyldur var þá mjög góð. Í dag er hún enn betri, þjóðarhöll okkar Selfyssinga, Selfosshöllin risin, golfvöllurinn glæsilegri og keppnissvæði hesta- og mótorhjólamanna orðin ein þau bestu á landsvísu. Auk þess er aðstaða til sundiðkunar betri og svo má ekki gleyma öllum göngu og hjólreiðastígunum sem telja hundruð kílómetra út um allan bæ og niður í sveitir.

„Þegar við tókum síðan Í larí lei þá ætlaði allt um koll að keyra“
Hljómsveitin Stuðlabandið var að senda frá sér myndband frá Kótelettunni 2022 þar sem þeir taka lagið Í larí lei, sem Sigga Beinteins gerði ódauðlegt árið 1998 og er að finna á plötu hennar Flikk Flakk. Nú 24 árum síðar er lagið að ná nýjum hæðum og virtust tónleikagestir hæstánægðir með þetta lagaval Stuðlabandsins, þar sem allir sungu hátt og snjallt með.

Gífurlegt álag á heilbrigðisstofnunum vegna ferðamanna og Covid-smita
Heilbrigðisstofnanir landsins hafa verið undir miklu álagi undanfarið, erfiðara hefur reynst að manna vaktir og ferðamannastraumur hefur bætt gráu ofan á svarta Covid-bylgju. Forsvarsmenn heilbrigðisstofnana eru sammála um að mjög þungt sé að sinna aðsókninni nú í sumar.

Unglingalandsmót UMFÍ snýst um gleði og samveru
Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Selfossi 29. til 31. júlí. Skráning er í fullum gangi og stendur til mánudagsins 25. júlí. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir mótið langþráðan viðburð eftir tveggja ára hlé. Þar geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi.

Selja kótelettur til styrktar krabbameinssjúkum börnum
Fjölskylduhátíðin Kótelettan fer fram á Selfossi um helgina en verið er að halda hátíðina í sextánda skiptið. Grill, tónlist og önnur skemmtiatriði eru meðal þess sem er á boðstólnum um helgina.

Þórir Ólafsson tekur við Selfyssingum
Handknattleiksdeild Selfoss hefur samið við Þóri Ólafsson um að stýra karlaliði félagsins á komandi tímabili í Olís-deild karla.

Kótelettan:„Það var gríðarlega góð mæting hjá okkur í fyrra og frábær stemmning“
Fjölskylduhátíð Kótelettunar verður haldin í tólfta sinn á Selfossi um helgina. Meðal dagskrárliða eru Stóra Grillsýningin, Styrktarlettur SKB og Veltibillinn. Einnig er dagskrá á sviðinu fyrir alla fjölskylduna þar sem XXX Rottweilerhunda, Stuðmenn og Aldamótatónleikarnir stíga m.a. á stokk.

Kerfið traðkar á fötluðu fólki segja foreldrar á Selfossi
Foreldrar á Selfossi lýsa hneykslun sinni á kerfinu, sem traðki á fjölfatlaðri dóttur þeirra, sem varð nýlega 18 ára og því lögráða. Þá var lokað á allt á þau í sambandi við hennar mál og nú er staðan sú að þau þurfa að fá skriflegt umboð frá dóttur sinni um að þau séu hæf til að annast hennar mál. Dóttir þeirra getur ekki skrifað né tjáð sig.

Helstu bæjarhátíðirnar um helgina: Bryggjusöngur, brennur, sveitaböll og sápubolti
Þá er komið því, einni af stærstu ferðahelgum sumarsins; fyrstu helginni í júlí og eflaust eru einhverjir nú þegar samviskusamlega búnir að pakka, troðfylla bílinn af útileigubúnaði og smyrja flatkökur og rækjusamlokur í tonnavís. En hvert skal halda?

Í tilefni fratfréttar helgarblaðs Fréttablaðsins um ársreikninga sveitarfélaga 2021
Við lestur helgarblaðs Fréttablaðsins rak mig í rogastans við að rekast á fratfrétt um ársreikninga sveitarfélaga 2021 með fyrirsögninni „Tap Árborgar það mesta á hvern íbúa“.

Sjáðu Lindex-mótið á Selfossi: „Ekki leiðinlegt í marki en getur verið hræðilegt“
Það var nóg um að vera á Selfossi þegar Lindex-mótið fór þar fram á dögunum, þar sem stelpur í 6. flokki flokki léku listir sínar. Þær sýndu einnig tilþrif utan vallar og voru laufléttar í bragði í samtölum sínum við Guðjón Guðmundsson, Gaupa, sem gerði mótinu góð skil í þætti á Stöð 2 Sport.