Bláskógabyggð

Mikill viðbúnaður þegar þyrla flutti veikan göngumann
Allar björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út á tólfta tímanum í dag vegna veikinda hjá meðlimi gönguhóps sem staddur var á Hlöðufelli, skammt austan Skjaldbreiðar.

„Óskalög við orgelið“ hafa slegið í gegn í Skálholti
„Óskalög við orgelið“ er viðburður, sem hefur slegið í gegn í Skálholti í sumar en það mætir fólk í kirkjuna og fær óskalag á orgelið hjá Jóni Bjarnasyni, organisti í Skálholtsdómkirkju. Lög með Abba, Queen og Kaleo hafa verið vinsælust í sumar.

Að lágmarki 52 smitaðir eftir dansbúðir á Laugarvatni
Tvö Covid-smit í sumarbúðum Chantelle Carey á Laugarvatni hafa svo sannarlega dreift úr sér. Alls hafa 52 greinst smitaðir í tengslum við sumarbúðirnar þar sem börn frá tíu ára aldri og upp í tvítug ungmenni æfðu saman dans í eina viku.

Á annað hundrað í sóttkví eftir smit í dansbúðum á Laugarvatni
Tveir nemendur sem tóku þátt í sumarbúðum Chantelle Carey á Laugarvatni í síðustu viku greindust smitaðir með Covid-19. Fyrir vikið eru á annað hundrað börn og kennarar komnir í sóttkví.

Landhelgisgæslan sótti meðvitundarlausan hlaupara
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð að Úthlíð nú rétt eftir hádegi vegna hlaupara sem hafði misst meðvitund.

Fundust eftir mánuð á fjalli: „Þarna bara birtast þau bara allt í einu“
Fimm hross fundust loks í dag, rétt tæpum mánuði eftir að þau fældust og hlupu á fjöll þann 13. júlí síðastliðinn. Eigandi hrossanna segist gríðarlega fegin að hafa loksins fundið þau. Næst á dagskrá sé að sækja þau.

Vegkantur sem gaf sig líklega ástæða þess að rútan valt
Vegkantur sem gaf sig er talinn vera ástæða þess að rúta, með fjölda íslenskra og erlendra ferðamanna innanborðs, valt í Biskupstungum í gær. Betur fór en á horfðist og enginn slasaðist alvarlega, að sögn yfirlögregluþjóns.

Rútuslys í Biskupstungum
Rúta á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Rafting keyrði út af vegi í Biskupstungum á Suðurlandi. Um fimmtíu manns voru í rútunni.

„Það er náttúrulega verslunarmannahelgi og maður á að hafa það örlítið gaman“
Gestir tjaldsvæða halda nú heim á leið eftir vel heppnaða verslunarmannahelgi. Þetta segir umsjónarmaður tjaldsvæðis á Suðurlandi sem kveðst ánægður með helgina. Rólegra var á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri í gær en dagana á undan.

Aðeins „orðrómur“ að fólk sé að flykkjast til Eyja um helgina
Þrátt fyrir að stærstu hátíðum landsins hafi verið aflýst eru fjölmargir Íslendingar á ferðalagi um landið og eru tjaldsvæði víða þéttsetin. Tjaldvörður í Vestmannaeyjum segir stöðuna þar þó afar ólíka því sem vant er um verslunarmannahelgi.

Nóg um að vera í uppsveitum Árnessýslu
Mikill fjöldi fólks er nú í Uppsveitum Árnessýslu þó engin skipulögð dagskrá sé þar í gangi. Ferðamálafulltrúi svæðisins segir þrátt fyrir það sé mikla afþreyingu í boði fyrir fólk. Miklar þrumur og eldingar voru á svæðinu síðdegis í gær og í gærkvöldi.

Tjaldsvæði á Suðurlandi eru að fyllast af fólki
Tjaldsvæði á Suðurlandi eru við það að fyllast af fóki enda spáir góðu veðri þar næstu daga. Strangar sóttvarnarreglur munu gilda á tjaldsvæðunum.

Fimm hross týnd á fjöllum í rúma viku
Fimm hross sem fældust og hlupu á fjöll hafa verið týnd í rúma viku. Hrossin týndust skammt frá Gatfelli á Uxahryggjaleið, suðvestur af Skjaldbreið, á þriðjudagsmorgun í síðustu viku.

Ferðamenn streyma í Skálholt sem aldrei fyrr
Starfsfólk í Skálholti hefur varla haft undan í sumar að taka á móti ferðamönnum, sem koma og skoða staðinn, þó aðallega útlendingar. Framkvæmdastjóri staðarins finnst sérstakt að aðeins brot af íslensku þjóðinni hefur heimsótt Skálholt.


Í sjokki eftir ofurhugastökk í ískalt fljótið
Nokkrir félagar gerðu sér glaðan dag í Biskupstungum í dag og voru heldur betur hugaðir. Þeir fækkuðu fötum og stukku af brúnni yfir Tunguljót út í ískalt vatnið.

Þjóðgarðsvörður segir stúlkurnar heppnar að vera enn á lífi
Stúlkurnar þrjár sem komust í hann krappann á uppblásnum báti á Þingvallavatni snemma í morgun eru heppnar að vera enn á lífi, segir þjóðgarðsvörður. Þingvallavatn sé stórhættulegt og það beri að varast á hvaða árstíma sem er.

Mikill viðbúnaður við Þingvallavatn vegna þriggja stúlkna í neyð
Mikill viðbúnaður var upp úr klukkan sjö í morgun eftir að tilkynning barst Neyðarlínu um þrjár stúlkur í vandræðum á bát í Þingvallavatni.

Sælkerarölt í Reykholti í Biskupstungum í allt sumar
Heimagert konfekt, rúgbrauð bakað í hver og ný íslensk jarðarber, hindber og brómber er það sem gestir Sælkeraröltsins í Reykholti í Bláskógabyggð fá meðal annars að smakka á í göngu um þorpið alla föstudaga í sumar.

Borholan gaus eftir að bóndinn dældi upp úr henni
Goshverinn sem opnaðist á Reykjavöllum í Biskupstungum er í raun borhola frá 1947, sem áður var notuð til að hita upp gróðurhús á svæðinu. Jarðfræðingur segir að ekki sé um að ræða eitthvað sem gerist af náttúrunnar hendi, heldur hafi holan farið að gjósa heitu vatni þegar hreinsað var upp úr henni.

Nýr goshver í Biskupstungum
„Goshver opnaðist í bakgarðinum hér á Reykjavöllum í hádeginu. Án gríns, og gýs á 17 mínútna fresti.“

Ærslabelgur, vöfflur og flóamarkaður í Laugarási í sumar
Sumarvertíðin byrjaði með gestasprengju hjá Dýragarðinum í Slakka í Biskupstungum þegar garðurinn opnaði dyr sínar að nýju á dögunum. Meira en þúsund manns sóttu garðinn heim og svo mikil var aðsóknin að búa þurfti til fleiri bílastæði til þess að sinna gestaflóðinu.

Yndisleg sveitaferð heyrnarlausra barna
Það var mikil gleði og ánægja sem skein úr hverju andliti þegar ellefu heyrnarlaus börn eða verulega heyrnarskert heimsóttu sveitabæ í Biskupstungum í Bláskógabyggð í vikunni og fengu að skoða lömbin og að fara á hestbak. Bærinn heitir Myrkholt.

Týndur svifvængjaflugmaður sló kannski Íslandsmet
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var fengin til að svipast um eftir svifvængjaflugmanni í nágrenni við Hrafnabjörg, ofan við Þingvelli, í dag þar sem ekki hafði náðst í hann lengi.

Kynnti fyrstu fjóra fyrirmyndaráfangastaðina á Íslandi
Gullfoss, Geysir, Þingvallaþjóðgarður og Jökulsárlón verða fyrstu áfangastaðirnir til að hefja ferli til að verða svonefndar Vörður. Um er að ræða nýtt verkefni á vegum stjórnvalda sem er ætlað að leggja drög að fyrirmyndaráfangastöðum sem teljast einstakir á lands- og heimsvísu.

Opna Geysi á ný og hefja þróun snyrtivörulínu
Hótel Geysir hefur fest kaup á öllum vörubirgðum úr þrotabúi Geysis verslananna og hyggst endurvekja verslunina í Haukadal. Er stefnt að því að opna hana aftur með vorinu og um leið færa vöruþróun merkisins á nýjar slóðir.

Leita að þeim sem kveiktu eld nærri Reykholti
Töluverður viðbúnaður var hjá viðbragðsaðilum á Suðurlandi í kvöld þegar tilkynning um mögulegan eld í sumarhúsi skammt frá Reykholti í Árnessýslu í kvöld. Svo virðist sem að um brennu hafi verið að ræða og er þeirra sem kveiktu hana nú leitað. Þeir gætu þurft að greiða fyrir útkall slökkviliðs og lögreglu.

Forystusauður í stífum æfingabúðum
Stífar æfingar standa yfir þessa dagana við að venja forystusauð að hlaupa í taumi með hesti þegar bóndi á bæ í grennd við Laugarvatn fer í sinn daglega reiðtúr á hestinum Kafteini með sauðinn í eftirdragi.

Vilja hjúkrunarheimili í uppsveitir Árnessýslu
Mikil þörf er að byggingu hjúkrunarheimilis í uppsveitum Árnessýslu og því hafa sveitarfélögin á svæðinu sett á laggirnar vinnuhóp til að koma málinu í gegn. Horft hefur verið til Laugarvatns hvað varðar staðsetningu heimilisins.

Beið eftir aðstoð í allt að tuttugu gráðu frosti
Gönguskíðamaðurinn sem slasaðist á fæti á Langjökli síðdegis í dag var fluttur niður af jöklinum og komið um borð í sjúkrabíl í Húsafelli eftir að hafa beðið eftir aðstoð ásamt félögum sínum.