
Miðflokkurinn

Miðflokkurinn vill gera sig kvenlegri
Unnið er að því að laga ásýnd Miðflokksins í átt að auknu jafnræði kynjanna. Annað kvöld mun liggja fyrir hvort Karl Gauti Hjaltason leiði listann í Suðvesturkjördæmi.

Þorsteinn segir niðurstöðuna engan dóm yfir pólitískum ferli sínum
Þorsteinn Sæmundsson mun ekki fá sæti á lista Miðflokksins fyrir komandi Alþingiskosningar, eftir ráðgefandi oddvitakjör flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hann segir það engan dóm yfir pólitískum ferli sínum en viðurkennir að hann sé keppnismaður og sé ósáttur að því leyti að hann eigi nóg inni.

Átökin komu Fjólu í opna skjöldu
„Þetta kom mér svona bæði og á óvart en ég er bara mjög spennt fyrir framhaldinu og að feta mig áfram í þessu nýja hlutverki,“ segir Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Miðflokksins.

Fjóla Hrund hafði betur gegn Þorsteini í oddvitakjörinu
Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Miðflokksins, bar sigur úr býtum í ráðgefandi oddvitakjöri flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og skákaði þar með Þorsteini Sæmundssyni, þingmanni flokksins.

Birgir og Erna leiða lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi
Framboðslisti Miðflokksins í Suðurkjördæmi var samþykktur á félagsfundi í gærkvöldi með 93 prósentum greiddra atkvæða. Birgir Þórarinsson, þingmaður mun leiða listann í kjördæminu en Erna Bjarnadóttir, sem farið hefur fyrir Facebook-hópnum Aðför að heilsu kvenna, situr í öðru sæti á listanum.

Jafnasta kynjahlutfallið er hjá kjósendum Miðflokks og Pírata
Kynjahlutföll kjósenda Miðflokks og Pírata eru nánast jöfn. Mestu munar hjá Vinstri grænum en fjórar konur kjósa flokkinn fyrir hvern karlmann. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem MMR gerði í samstarfi við Morgunblaðið.

Ólafur segist leysa pattstöðu með því að bjóða sig ekki fram
Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir lögfræðingur skipar 1. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkjurkjördæmi norður fyrir komandi Alþingiskosningar. Ólafur Ísleifsson alþingismaður býður sig ekki fram á listanum, að eigin sögn svo leysa megi pattstöðu sem upp var komin.

Miðflokkurinn boðar oddvitakjör í Reykjavík
Stjórn Miðflokksins í Reykjavík hefur tekið ákvörðun um að boða til oddvitakjörs í Reykjavíkurkjördæmi suður eftir að tillaga uppstillinganefndar að framboðslista flokksins í kjördæminu var felld á félagsfundi síðastliðinn fimmtudag.

Uppnám innan Miðflokksins eftir að Þorsteinn neitaði að víkja
Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins neitaði að beygja sig undir þau áform, sem honum höfðu verið kynnt, að vera ekki stillt upp sem oddvita flokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar.

Bergþór sækist eftir endurkjöri
Framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi flokksins á fimmtudaginn. Bergþór Ólason, þingmaður leiðir listann í kjördæminu en hann var einnig oddviti flokksins í kjördæminu á síðasta kjörtímabili.

Fjórar konur á framboðslista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi
Framboðslisti Miðflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi flokksins í gær. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins mun leiða listann áfram í kjördæminu en þetta er þá annað kjörtímabilið sem hann leiðir lista flokksins í kjördæminu.

Tveir loddarar lofa vegi
Ein fyndnasta uppákoma ársins varð nú í vikunni þegar borgarstjóri og samgönguráðherra skrifuðu undir ,,viljayfirlýsingu“ um byggingu Sundabrautar. Í ljós kom á fundinum að þeir eru ekki sammála um hvort brautin skuli lögð í göng eða um brú.

Fjórði orkupakkinn, grænir skattar og kyn ofarlega í huga Sigmundar Davíðs
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og alþingismaður, lét hendur standa fram úr ermum í gær en hann lagði fram sautján skriflegar fyrirspurnir til ráðherra. Fyrirspurnirnar eru margvíslegar, þar á meðal hvað forsætisráðherra telji mörg kyn vera til, hvort fjórði orkupakki Evrópusambandsins liggi fyrir og svo fram eftir götunum.

Hvar er nýja stjórnarskráin? Já, hvar?
Lesendur kannast við spurninguna í fyrirsögn þessarar greinar. Nú hafa komið fram nýjar upplýsingar um hvar þessa stjórnarskrá sé að finna. Eða ekki.

Ungt fólk á rétt að verða ekki leiksoppar – Skaðleg stefnumörkun stjórnmálanna
Vill einhver vera viljalaus og láta aðra stjórna sér? Ef svarið er „nei“ er mikilvægt að það sé nokkuð öruggt að svo sé ekki en það kann að vera dulið hver vill í raun vel og hver ekki.

„Miðflokkurinn mætti gufa upp mér að meinalausu“
Inga Sæland formaður Flokksins gefur lítið fyrir nýja könnun um fylgi flokkanna. Nema henni kemur ekki á óvart að Miðflokkurinn skuli ekki sjá til sólar.

Sundabraut fái forgang
Teppurnar í umferðinni má rekja til ákvarðana stjórnvalda. Síðustu tíu árin hefur ríkt stöðvun á framkvæmdum í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu.

Sigmundur Davíð mætir til Drífu Snædal
Drífa Snædal, forseti ASÍ, tekur á móti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, klukkan tíu í dag.

Húsnæðisvandinn
Um þróun byggðar og framtíðarsýn eru deildar meiningar. Á höfuðborgarsvæðinu hefur mikil áhersla verið á að þétta byggð gjarnan með þeim rökum að lítið sé til af byggingalandi. Þetta á við í sumum sveitarfélögum eins og Kópavogi og Seltjarnarnesi.

Stefnir í málþóf á Alþingi: Verðum hér í sumar ef þörf er á
Það stefnir í málþóf um hálendisþjóðgarð á Alþingi sem þarf að taka til umræðu áður en málinu verður vísað aftur til ríkisstjórnar. Þingflokksformaður Miðflokksins segir þó að semja megi um ræðutímann ef samkomulag næst um þinglok. Hann sé hins vegar reiðubúinn til þess að verja sumrinu í þingsal.

Háhýsi við Hamraborg
Skipulagsvald er alfarið í höndum sveitarfélaga. Lagabálkurinn sem fjallar um regluverk skipulagslaga eru lög 2010 nr. 123. Um markmið laganna er fjallað í 1. grein.

Milljóna tjón vegna myglu
Á undanförnum árum hefur tilfellum vegna raka- og mygluskemmda í húsum fjölgað. Stór vandamál hafa komið upp vegna þessa, m.a. í skólum, á heimilum og vinnustöðum með tilheyrandi kostnaði og áhrifum á fólk og fyrirtæki.

„Því minna sem rætt var um stjórnmál því betra fyrir ríkisstjórnina“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir núverandi ríkisstjórn ekki hafa reynst vel og að hún hafi átt sína bestu daga í skjóli kórónuveirufaraldursins. Þetta kom fram í máli hans úr ræðustól Alþingis á eldhúsdagsumræðum þar nú í kvöld.

Einsmáls Baldur
Í störfum mínum sem varaborgarfulltrúi hef ég komið víða við og í öllum tilfellum gert allt sem í mínu valdi stendur til að tryggja skynsamlegar lausnir og umfram allt sanngjarnar.

Síðustu dagar kjörtímabilsins að renna upp á Alþingi
Síðustu dagar þingstarfa á yfirstandandi kjörtímabili eru framundan í vikunni og setja svip sinn á Víglínuna á Stöð 2 í dag. Eldhúsdagsumræður fara fram á morgun og samkvæmt starfsáæltun á þingstörfum á vorþingi að ljúka næst komandi fimmtudag hinn 10. júní.

Ný stjórn Miðflokksins kjörin
Ný stjórn Miðflokksins var kjörin á landsfundi flokksins í dag.

Bein útsending frá landsþingi Miðflokksins
Landsþing Miðflokksins fer fram í dag, laugardaginn 5. júní og hefst fundurinn á ræðu formanns.

Sigmundur Davíð vill feta flóttamannaleið Dana
Formaður Miðflokksins hvetur íslensk stjórnvöld að fara sömu leið og Danir, sem samþykktu lög í dag sem heimila að hælisleitendur verði vistaðir í öðru landi á meðan þeir bíða niðurstöðu vegna umsókna sinna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandið hafa áhyggjur af stefnu Dana.

10 þúsund milljónir á 3 árum
Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt lögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum og borgarsjóður er yfirskuldsettur.

Ágústa vill þriðja til fimmta sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi
Ágústa Ágústsdóttir, sauðfjárbóndi og ferðaþjónustueigandi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-5. sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.