Þungunarrof
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Segir með ólíkindum að dómsmálaráðherra fari síendurtekið með rangfærslur Dómsmálaráðherra sagði í viðtali á Vísi í gær að hann hefði kosið gegn frumvarpi um þungunarrof árið 2019 á þeim forsendum að það gerði ráð fyrir að þungunarrof gæti átt sér stað allt að síðustu viku fyrir barnsburð. Þingflokksformaður Pírata segir ráðherrann ítrekað fara með rangfærslur um málaflokka sem hann á að hafa á hreinu. Innlent 28.6.2022 11:53
Facebook fjarlægir færslur um þungunarrofspillur eftir hæstaréttardóm Færslur þar sem konum eru boðnar svonefndar þungunarrofspillur hafa verið fjarlægðar af samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram frá því að umdeildur hæstaréttardómur féll í Bandaríkjunum sem svipti konur stjórnarskrárvörðum rétti til þungunarrofs. Erlent 28.6.2022 08:40
Þróun mála í Bandaríkjunum „sérstök og ömurleg“ Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir þróun mála í Bandaríkjunum í kjölfar niðurfellingu fordæmis Roe v Wade vera ömurlega. Þungunarrof sé sjálfsagður réttur kvenna. Innlent 27.6.2022 19:00
Mörg stórfyrirtæki hyggjast aðstoða starfsmenn Mörg stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa lýst því yfir að þau muni greiða fyrir ferðalög starfsmanna sinna sem neyðast til að leita til annara ríkja til að gangast undir þungunarrof, eftir að hæstiréttur landsins snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. Erlent 27.6.2022 07:10
Búa sig undir slag um þungunarrofspillu Hvíta húsið ætlar að reyna að koma í veg fyrir að ríki geti bannað svonefnda þungunarrofspillu í kjölfar Hæstaréttardóms um að konur eigi ekki rétt til þungunarrofs. Búast má við að tekist verði um málið fyrir dómstólum. Erlent 26.6.2022 11:24
Áminning um að standa þurfi vaktina á Íslandi Þungunarrof hefur þegar verið bannað í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna eftir að hæstiréttur felldi úr gildi rétt til þess í gær. Þingmaður segir dóminn stórhættulegan og sýna að standa þurfi vörð um þessi réttindi hér heima á Íslandi. Erlent 25.6.2022 15:01
Óttast að hjónabönd samkynhneigðra og fleiri réttindi séu í hættu næst Frjáslyndir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna vöruðu við því að hjónabönd samkynhneigðra og aðgangur að getnaðarvörnum gæti verið á meðal annarra réttinda í hættu eftir að rétturinn felldi niður rétt kvenna til þungunarrofs í gær. Einn íhaldssömu dómaranna sagðist vilja endurskoða þau réttindi í séráliti sínu. Erlent 25.6.2022 14:39
Byrjað að loka heilsugæslustöðvum sem gerðu þungunarrof Þungunarrof hefur þegar verið bannað í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna eftir að hæstiréttur landsins felldi úr gildi rétt kvenna til þess í gær. Byrjað var að loka heilsugæslustöðvum sem hafa gert þungunarrof. Erlent 25.6.2022 09:35
Lofa starfsfólki að þau muni greiða fyrir þungunarrof Fjöldi bandarískra fyrirtækja býðst nú til þess að greiða fyrir ferðakostnað starfsmanna sem þurfi að sækja sér þungunarrofsþjónustu utan eigin ríkismarka. Erlent 24.6.2022 23:59
Viðsnúningurinn mikil afturför í mannréttindum Fyrr í dag sneri Hæstiréttur Bandaríkjanna við fordæmi sínu sem hefur tryggt konum rétt til þungunarrofs. Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir viðsnúning Hæstaréttar mikla afturför í mannréttindum. Innlent 24.6.2022 21:30
Biden segir þetta sorglegan dag fyrir bandarísku þjóðina Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína rétt í þessu vegna ákvörðunar Hæstaréttar um að hafna rétti kvenna til þungunarrofs. Hann segir daginn vera sorglegan fyrir Hæstarétt og þjóðina alla. Erlent 24.6.2022 17:30
Tímamótadómi ýmist lýst sem „sigri lífsins“ eða „grimmilegum“ Viðbrögð eftir tímamótadóm Hæstaréttar Bandaríkjanna um að konur hafi ekki rétt til þungunarrofs hafa streymt inn í dag. Fyrrverandi varaforseti segir dóminn „sigur lífsins“ en einn leiðtoga demókrata segir hann „grimmilegan“. Erlent 24.6.2022 15:47
Hafnaði rétti kvenna til þungunarrofs Hæstiréttur Bandaríkjanna sneri við fordæmi sínu sem hefur tryggt konum rétt til þungunarrofs í dag. Eftir dóminn hafa ríki frjálsari hendur til þess að setja verulegar takmarkanir á þungunarrof eða banna það alfarið. Erlent 24.6.2022 14:23
Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Erlent 24.6.2022 07:46
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. Erlent 23.6.2022 07:49
Banna þungunarrof eftir frjóvgun Repúblikanar á ríkisþingi Oklahoma í Bandaríkjunum samþykktu frumvarp að ströngustu þungunarrofslögum í landinu í dag. Verði frumvarpið að lögum verður þungunarrof bannað eftir frjóvgun eggs nema í algerum undantekningartilfellum. Erlent 19.5.2022 18:47
Þungunarrofsfrumvarp beið skipbrot í öldungadeild Bandaríkjaþings Öldungadeild Bandaríkjaþings felldi frumvarp demókrata um að binda rétt kvenna til þungunarrofs í alríkislög í gærkvöldi. Fulltrúadeildin samþykkti lögin en allir öldungadeildarþingmenn repúblikana og einn íhaldssamur demókrati greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Erlent 12.5.2022 09:31
Repúblikanar ætla að glæpavæða þungunarrof í Lúisíana Þungunarrof verður skilgreint sem morð og saksóknarar fá leyfi til að sækja konur til saka verði frumvarp sem fulltrúadeild ríkisþings Lúisíana í Bandaríkjunum hefur til meðferðar að lögum. Repúblikanar víða um landið hyggjast nú ganga á lagið þegar stefnir í að Hæstiréttur Bandaríkjanna ætli að afnema rétt kvenna til þungunarrofs. Erlent 6.5.2022 09:19
Óttast að fleiri réttindi gætu fallið eftir þungunarrofsdóm Fleiri dómafordæmi sem tryggja grundvallarréttindi gætu verið í hættu ef Hæstiréttur Bandaríkjanna sviptir konur rétti til þungunarrofs. Ýmis önnur réttindi byggjast á forsendum sem meirihluti réttarins býr sig nú undir að hafna. Erlent 5.5.2022 14:24
Útspil hæstaréttar um þungunarrof gæti hrist upp í þingkosningum í haust Svipti Hæstiréttur Bandaríkjanna konur rétti til þungunarrofs gæti það haft óútreiknanleg áhrif á þing- og ríkiskosningar sem fara fram í haust. Stríðandi fylkingar í langvarandi menningarstríði telja báðar að slíkur dómur gæfi þeim byr undir báða vængi. Erlent 4.5.2022 14:01
Hæstiréttur staðfestir að skjalið sé ófalsað og fyrirskipar rannsókn Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti í gær að drögum að meirihlutaáliti í máli er varðar rétt kvenna til þungunarrofs hefði lekið. Skjalið væri ófalsað en ekki lokaniðurstaða í málinu. Erlent 4.5.2022 06:37
„Stórkostlega alvarleg tíðindi“ Þingmaður Viðreisnar segir áform í Bandaríkjunum um að fella úr gildi alríkisvernd á rétti kvenna til þungunarrofs grafalvarleg tíðindi. Forseti Bandaríkjanna hvetur dómara til að styðja ekki hugmyndina, enda væri hún grundvallarbreyting til hins verra á bandarísku réttarfari. Erlent 3.5.2022 20:32
Vaktin: Útlit fyrir að þungunarrof verði bannað víða í Bandaríkjunum Fjölmiðlar vestanhafs greina nú frá því að hæstiréttur landsins hyggist ógilda niðurstöðuna í málinu Roe gegn Wade, sem tryggði konum réttinn til þungunarrofs. Fréttirnar byggja á áliti meirihlutans, sem virðist hafa verið lekið, en þar kemur fram að dómstóllinn vilji færa ákvörðunarvaldið um þungunarrof aftur til löggjafans. Erlent 3.5.2022 08:06
Hæstiréttur hyggst snúa niðurstöðunni í Roe gegn Wade Það stefnir í öldu mótmæla í Bandaríkjunum eftir að Politico greindi frá því að hæstiréttur landsins hyggst snúa dómnum í máli Roe gegn Wade. Í umræddu máli komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að réttur kvenna til að gangast undir þungunarrof ætti stoð í stjórnarskrá landsins en íhaldsmenn hafa barist fyrir því í áratugi að fá dómnum hnekkt. Erlent 3.5.2022 06:53
Fundu fimm fóstur á heimili andstæðings þungunarrofa Lögreglan í Washington DC hefur til rannsóknar konu, sem kallar sjálfa sig aðgerðarsinna gegn þungunarrofum, eftir að fimm fóstur fundust á heimili hennar. Innlent 4.4.2022 20:52
Helmingur allra þungana án ásetnings Því sem næst helmingur allra þungana í heiminum, um 121 milljón á ári hverju, er án ásetnings, en margar konur og stúlkur sem verða barnshafandi hafa ekkert val, segir í nýrri stöðuskýrslu um mannafjöldaþróun í heiminum. Í skýrslunni er varað við því að þessi skortur á mannréttindum hafi djúpstæðar afleiðingar fyrir samfélög, einkum konur og stúlkur. Heimsmarkmiðin 30.3.2022 10:56
Þungunarrofum ekki fjölgað þrátt fyrir breytta löggjöf Árið 2020 voru 962 þungunarrof framkvæmd á Íslandi, sem jafngildir 11,3 á hverjar þúsund konur á frjósemisaldri, það er að segja konur á aldrinum 15 til 49 ára. Flestar kvennanna sem gegnust undir þungunarrof voru á þrítugsaldri. Innlent 4.2.2022 06:49
Lést eftir að hafa verið hafnað um þungunarrof eftir að fóstrin dóu Þúsundir mótmæltu á götum pólskra borga í gærkvöld eftir að 37 ára gömul kona lést í kjölfar þess að hafa verið hafnað um þungunarrof. Eitt ár er liðið síðan einar ströngustu þungunarrofsreglur í Evrópu voru innleiddar í Póllandi. Erlent 28.1.2022 10:33
Konur geta nú fengið „þungunarrofspilluna“ senda heim Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur heimilað heimsendingu lyfs sem stuðla að þungunarrofi. Konur hafa á þessu ári getað fengið lyfið send heim vegna kórónuveirufaraldursins en undanþágan hefur nú verið gerð varanleg. Erlent 17.12.2021 06:52
Fimmtán vikna viðmiðið fær líklega að standa en spurning um Roe gegn Wade Allt útlit er fyrir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmi yfirvöldum í Mississippi í vil og láti löggjöf sem bannar þungunarrof eftir 15. viku meðgöngu standa óhreyfða. Því er þó ósvarað hvort dómstóllinn gengur svo langt að láta það í hendur einstakra ríkja að ákvarða alfarið hvernig lögum um þungunarrof er háttað. Erlent 2.12.2021 20:03