Gæludýr
1 2 3 4 5 6 7 … 8 ›
Margar hættur fyrir dýrin um jólin Jólahátíðin og áramótin geta reynst ferfætlingum og öðrum gæludýrum erfitt. Hefðbundin rútína hverfur um tíma, mikið er um heimsóknir og mataræði breytist mjög. Matvælastofnun segir mikilvægt að tryggja gæludýrum áfram hefðbundna hreyfingu og nauðsynlega hvíld til að tryggja að þeim líði vel. Jól 22.12.2023 13:32
Kötturinn Prins var týndur í tólf ár Kötturinn Prins, sem hefur verið týndur í tólf ár var að finnst heill á húfi. Hann átti heima í Reykjavík en fannst í Húsafelli eftir að hafa verið þar á vergangi. Innlent 17.12.2023 20:30
Óheimilt verði að fljúga með hunda og ketti í farþegarými Óheimilt verður að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla samkvæmt drögum að breytingu á reglugerð um innflutning hunda og katta. Innlent 8.12.2023 12:39
Framúrskarandi vörur fyrir hunda og ketti Verslunin Móri, sem staðsett er við Nýbýlaveg í Kópavogi, var sett á fót í október 2020 með það að markmiði að bjóða upp á framúrskarandi vörur fyrir hunda og ketti. Lífið samstarf 30.11.2023 13:27
Smáhundum ætlað að bæta andlega líðan meinað að vera í heimaeinangrun Innflytjendur tveggja smáhunda sem ætlað var að bæta andlega líðan annars þeirra fá ekki undanþágu til að láta þá vera í heimaeinangrun eftir komuna til landsins. Hundarnir þurfi að dvelja í einangrunarstöðinni Móseli við komuna til landsins líkt og aðrir innfluttir hundar, enda flokkist þeir sem „stuðningshundar“ en ekki sem „hjálparhundar“ sem geta fengið slíka undanþágu. Innlent 22.11.2023 14:41
Enginn hundur skilinn eftir Það hafa örugglega einhverjir tekið eftir að það var enginn hundur á listanum hjá Dýrfinnu um að hafa orðið eftir í Grindavík, og fyrir því er ástæða: Hundar ferðast yfirleitt reglulega með bíl, eru því vanir og er yfirleitt hægt að taka í taum (eða fangið) og fara með út í bíl. Skoðun 14.11.2023 12:30
Þula, Yrja og Þengill bíði eftir að þeim sé hleypt út Fulltrúar dýraverndunarsamtaka biðu í allan dag við lokunarpóstinn á Suðurstrandarvegi eftir leyfi til að fara inn í Grindavík en fengu það ekki. Dýrfinna og Kattholt hafa kortlagt staðsetningu dýra í bænum, safnað búnaði og fengið lykla að húsum eigenda til að bjarga dýrunum. Innlent 12.11.2023 22:02
Sakna samráðs og vilja bjarga öllum dýrunum í Grindavík Dýraverndarfélög sakna samráðs Almannavarna vegna gæludýra sem eftir urðu í Grindavík. Í yfirlýsingu krefjast þau þess að dýrum verði bjargað í dag. Félögin hafa unnið aðgerðaáætlun til að staðsetja dýrin og telja nú að um 300 gæludýr hafi orðið eftir. Innlent 12.11.2023 14:31
Um 250 gæludýr enn í Grindavík Dýraverndarsamtökin Dýrfinna hafa safnað lista með tæplega 250 dýrum sem eru enn í Grindavík. Sjálfboðaliði segir samtökin tilbúin að fara inn í bæinn til að bjarga dýrum um leið og aðstæður leyfa. Samtökin geri sér grein fyrir því að ekki muni öll dýrin koma heil út úr ástandinu. Innlent 12.11.2023 00:01
Saknar 67 gæludýra sinna sem urðu eftir í Grindavík Hafliði Hjaltalín yfirgaf Grindavík áður en bærinn var rýmdur í gær. Hann ætlaði að snúa aftur í dag en nú er það ekki lengur hægt. Eftir eru 40 dúfur, tíu páfagaukar, fjórtán hænur og þrír kalkúnar. Miðað við nýjustu fréttir er óljóst hvað verður um dýrin. Innlent 11.11.2023 21:55
„Verður hægt að fara heim aftur?“ Grindvíkingarnir Ögn Þórarinsdóttir og Hildur Fjóla Bridde eru í nokkru áfalli eftir að hafa yfirgefið heimili sín í gær. Óvissan er algjör. Innlent 11.11.2023 16:39
Þakklát fyrir að hræddir hundarnir fengu einnig húsaskjól Auðbjörg María Ólafsdóttir er ein þeirra sem yfirgaf Grindavík í gærkvöldi, en fjórir hundar fylgdu henni og segist hún afar snortin og þakklát Rauða krossinum fyrir að skjóta yfir hópinn skjólshúsi. Innlent 11.11.2023 03:11
„Seinasti lúrinn okkar saman“ Fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir kvaddi ferfætlinginn og fjölskyldumeðliminn Stjörnu eftir fimmtán ára samfylgd. Hún segir síðustu daga og vikur hafa reynst fjölskyldunni afar erfiðir. Lífið 20.10.2023 14:01
Kattakona nefndi nasista í kröfu sinni um bætur frá Icelandair Viðskiptavinur Icelandair sem ætlaði að ferðast með kött yfir Atlantshafið fær engar skaðabætur eftir að hafa verið hafnað að ferðast með dýrið. Viðskiptavinurinn ávarpaði fulltrúa Samgöngustofu sem nasista. Neytendur 18.10.2023 15:36
Vel loðinn og vel liðinn Hundurinn Trausti er einn vinsælasti starfskraftur Fossvogsskóla í Reykjavík. Hann er í fjörutíu prósent starfi í námsveri skólans og mætir alla miðvikudaga og föstudaga. Trausti er þriggja ára golden retriever og hlustar á krakkana lesa eða gengur um og býður fram aðstoð sína. Lífið 15.10.2023 21:01
Forsetahundurinn heldur áfram að bíta fólk Commander, tveggja ára German Shepherd-hundur Joe Biden Bandaríkjaforseta, beit leynilögreglumann í Hvíta húsinu í Washington D.C. á mánudagskvöld. Þetta er í ellefta sinn sem hundurinn bítur manneskju. Erlent 27.9.2023 15:27
Með einum of marga bestu vini á heimilinu Einn nýjasti íbúinn á Hellu bíður þess að fá að vita hvort hann geti búið áfram í bænum. Reglur um hundahald í bænum komu honum í opna skjöldu. Innlent 2.9.2023 08:01
Fundu Kodda mjög hræddan á þaki brunarústanna Sjálfboðaliðar frá dýrabjörgunarsamtökunum Dýrfinnu fundu ungan innikött sem týndist eftir stórbrunann við Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði. Eigandinn bjóst ekki við að finna hann enda er Koddi inniköttur. Innlent 24.8.2023 11:27
Hefur ekki heyrt af dýrum sem brunnu inni Vettvangur þar sem gríðarlegur eldsvoði varð í Hafnarfirði í gær hefur verið afhentur lögreglu. Slökkvistarfi lauk í nótt eftir tólf tíma aðgerð. Slökkvistjórinn segist ekki vita til þess að dýr hafi brunnið inni. Innlent 21.8.2023 11:28
Kindur vilja ekki leika við hunda En hundar vilja gjarnan leika við kindur. Þetta fer ekki saman. Hundaeigendur þekkja ekki allir eðli kinda sem dýrategundar. Fólk sem heldur lausan hund í dreifbýli eða fólk sem fer með hunda í víðavangslausagöngur á þeim svæðum þar sem kindur eru haldar þarf að þekkja grundvallarmuninn á atferliseðli kinda og hunda. Skoðun 18.8.2023 17:00
Guðmundur starfar sem hundagangari: „Til í að gera þetta að ævistarfinu“ Guðmundur Ingi Halldórsson starfar sem atvinnuhundagangari, eitthvað sem þekkist meira erlendis. Lífið 16.8.2023 10:30
Ekki ástæða til að vara íslenska hundaeigendur við Matvælastofnun sér ekki ástæðu til að vara hundaeigendur sérstaklega við smitandi hósta meðal hunda að óbreyttu. Ekki eru fleiri tilvik um smitaða hunda nú en áður. Langstærstur hluti hunda hér á landi er bólusettur gegn flestum veirum. Innlent 4.7.2023 06:46
„Það er ekkert grín fyrir hundana að fá þetta“ Hundaeigandi sem missti einn hund sinn sem veiktist af svokölluðum hótelhósta og á tvo hunda til viðbótar sem eru veikir vill vara hundaeigendur við að fara með dýr sín á fjölfarin hundasvæði á meðan pestin gengur yfir. Hann segist hafa átt hunda í mörg ár en aldrei lent í slíkum veikindum líkt og nú. Innlent 30.6.2023 06:46
„Neyðin er mikil hjá gæludýrum á Íslandi“ Dýraathvörf hérlendis fyrir heimilislaus dýr eru full og tilvikum þar sem gæludýr eru skilin eftir á vergangi fer fjölgandi. Þetta segir formaður Dýrfinnu, sem segir neyðina mikla og hvetur fjölskyldur til þess að íhuga frekar að taka að sér eldri dýr frekar en þau yngri. Húsnæðismarkaðurinn og strangar reglur um gæludýrahald spili stóran þátt í neyð dýranna. Innlent 26.6.2023 07:45
Fjölskylda á Ítalíu leitar Tipsý: „Ég er búin að grenja úr mér augun“ Fjölskyldufrí Maríönnu Magnúsdóttur tók snögga beygju þegar Tipsý, einn fjögurra hunda fjölskyldunnar, týndist degi fyrir brottför. Hennar er nú leitað en Maríanna biðlar til fólks að láta dýraleitarþjónustuna Dýrfinnu vita, verði einhver hennar var. Innlent 19.6.2023 11:00
Samningi rift vegna kaupa á pug-hundi sem reyndist fatlaður Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur viðurkennt rétt manns til að rifta samningi um kaup á hreinræktuðum hundi af tegundinni pug þar sem í ljós hafi komið að hundurinn hafi reynst fatlaður. Neytendur 12.6.2023 08:33
Harmar óþarfa fugladráp og biðlar til kattaeigenda að vera á varðbergi María Huld Markan Sigfúsdóttir, íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur, segir sárt að verða vitni að því blóðbaði sem á sér stað ár hvert þegar heimiliskettir veitast að fuglum með nýfædda unga í hverfinu. Hún biðlar til kattaeigenda að gera það sem þau geta til þess að koma í veg fyrir óþarfa morð á fuglum. Innlent 7.6.2023 16:23
Hamstraeigendur hamstra DETOLF skápinn Nokkuð hefur borið á því að hamstraeigendur hamstri IKEA húsgögn og nýti sem búr fyrir dýrin. Nagdýrasérfræðingur segir þrettán þúsund króna DETOLF skápinn vinsælastan, en hún óttast framtíð dýrsins sem sé að hluta til í útrýmingarhættu. Innlent 4.4.2023 21:01
Stéttaskipting felist í núgildandi reglum um dýrahald Inga Sæland formaður Flokks fólksins fer fyrir frumvarpi um breytingu á fjöleignahúsalögum sem myndi gera katta- og hundahald ekki háð leyfi annarra íbúa fjöleignarhúsa. Hún segir mikla stéttaskiptingu felast í núgildandi lögum. Innlent 4.4.2023 18:52
Hunda- og kattafólk snýr bökum saman fyrir frumvarp Hunda og kattaeigendur hafa sameinast um undirskriftalista til stuðnings frumvarpi um breytingu á lögum um fjöleignarhús. Samkvæmt frumvarpinu yrði katta og hundahald í fjölbýlishúsum ekki háð leyfi annarra íbúa. Innlent 4.4.2023 14:17