

Tinna Jóhannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Skógarbaða ehf., nýja baðstaðarins í Eyjafirði sem til stendur að opna á næsta ári.
Lögreglan fær hverja einustu helgi útkall vegna hávaða á bílaplaninu við Norðurturninn í Smáralind. Nágrannar eru þreyttir á ástandinu og kalla eftir aðgerðum.
Landsmenn streyma til að kjósa utan kjörfundar sem aldrei fyrr en á þriðja tímanum í dag höfðu rúmlega 37 þúsund manns greitt atkvæði á landvísu.
Karlmaður var handtekinn í Smáralind eftir hádegið í gær eftir að hafa gengið úr verslun með vörur án þess að greiða fyrir. Í átökum við öryggisvörð og lögreglu notaði hann eigin saur.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir Alþingiskosningar á höfuðborgarsvæðinu fer nú fram í verslunarmiðstöðvunum Smáralind og Kringlunni.
Verkferlar í kring um innritun barna í Barnaland í Smáralind verða endurskoðaðir, eftirlit hert og starfsþjálfun tekin til endurskoðunar eftir að fjögurra ára gömul stúlka hvarf úr Barnalandi á sunnudag án þess að starfsmenn tækju eftir því.
Faðir stúlku sem týndist þegar hún var í pössun í Barnalandi í Smáralind í gær gerir ráð fyrir að kæra atvikið til lögreglu. Hann segir ekki liggja fyrir hversu langur tími leið frá því dóttir hans yfirgaf barnagæsluna og þar til hún fannst allt annars staðar í verslunarmiðstöðinni.
Barnalandi, barnagæslu sem Smárabíó rekur í Smáralind, verður tímabundið lokað eftir að barn sem var þar týndist nú um helgina.
Karl og kona sem áttu að vera í sóttkví voru handtekin fyrir þjófnað úr verslunum í Smáralind. Þau komu frá Lettlandi deginum áður samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þá hlaut lögreglumaður áverka á kinnbeini í átökum við karlmann á þrítugsaldri sem virti ekki reglur um sóttkví í gær.
Framkvæmdastjóri Kringlunnar segist áætla að um fjórðungur viðskiptavina kjósi enn að bera grímu þrátt fyrir að grímuskylda í verslunum hafi verið afnumin. Markaðsstjóri Smáralindar segir það hafa komið á óvart hvað fólk var fljótt að fella grímuna.
Engin skipulögð dagskrá verður í Kringlunni á Öskudag og sælgæti verður heldur ekki í boði í verslunum eða veitingastöðum Kringlunnar fyrir börn í nammileit. Stefnt var að því að börn í nammileit yrðu boðin velkomin og dagskrá yrði fyrir þau en svo verður ekki.
Stjórnendur Kringlunnar stefna á að geta boðið börn í nammileit velkomin og vera með dagskrá fyrir þau á Öskudaginn sem haldinn er 17. febrúar í ár. Rekstraraðilar verslana í Kringlunni hafa í pósti verið hvattir til að vera með glaðninga þegar börnin mæta. Stjórnendur Smáralindar hafa hins vegar ákveðið að blása af hátíðahöldin að þessu sinni vegna heimsfaraldursins.
Starfsmaður skyndibitastaðarins Hlöllabáta í Smáralind hefur greinst með Covid-19 smit. Staðnum hefur verið lokað í eina viku og allir starfsmenn staðarins í Smáralind sendir í sóttkví.
Bakarísrekstur Jóhannesar Felixssonar, Jóa Fel, er kominn í þrot. Gjaldþrotabeiðni Lífeyrissjóðs verzlunarmanna var samþykkt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Á veggjum Smáralindar má sjá auglýsingar fyrir tvær kvikmyndir, Amma Hófi og Mentor. Ekki er laust við að það sjáist svipur með karlleikurum myndanna.
Kjörsókn utan kjörfundar fyrir forsetakosningarnar sem fara fram á morgun, laugardaginn 27. júní, hefur verið meiri en í undanförnum kosningum.
Eliza Reid, forsetafrú Íslands, er búin að kjósa í forsetakosningum næstu helgar. Hún greiddi utankjörfundaratkvæði í Smáralind í morgun.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs sem fer fram 27. júní næstkomandi hefst við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu mánudaginn 25. maí.
Maðurinn er sjö sinnum, í slagtogi við óþekkta einstaklinga, talinn hafa stolið varningi úr hinum ýmsu verslunum.
Tilkynningin kom um klukkan 20:40 í gærkvöldi og var maðurinn handtekinn og vistaður í fagnageymslu.
Smárabíó hefur ákveðið í samvinnu við Smáralind að setja upp bílabíó á plani Smáralindar um helgina.
Vefútgáfa menningartímaritsins Cabinet Magazine stóð nýlega fyrir heldur sérstakri keppni á heimasíðu sinni. Lesendur voru beðnir um að koma með ábendingar um bygginar sem væru í laginu eins og limur og ekki stóð á viðbrögðunum.