Tækni
70 71 72 73 74 75 76 77 78 … 85 ›
Fyrsta áfangi tilbúinn í árslok Tuttugu ný störf verða til í Sandgerði eftir að fyrsti áfangi grænnar gagnageymslu verður tekinn í notkun. Fyrirtækið Data Íslandia stendur fyrir byggingu gagnageymslunnar sem fyrirhugað er að reisa á fyrrum varnarsvæði Sandgerðisbæjar. Viðskipti erlent 22.5.2007 21:57
Sjónvarp á gleraugun Sjónvarpstækin verða smærri með hverjum deginum. Japanskt fyrirtæki er nú að setja á markað eitt það minnsta sem hægt er að festa á gleraugu og glápa þannig á. Hægt verður að tengja það við iPod tæki sem eru hlaðin myndefni eða horfa á venjulegar sjónvarpsstöðvar. Tokyo-búar taka tækinu væntanlega fagnandi fyrir langar lestarferðir í og úr vinnu. Tækið vegur 35 grömm. Viðskipti erlent 21.5.2007 18:28
Helmingur Ipod eigenda vill Iphone Könnun sem gerð var á meðal farsímaeigenda í Evrópu leiddi það í ljós að helmingur þeirra sem eiga fyrir Ipod munu velta alvarlega fyrir sér Iphone þegar endurnýja á símtækið. Viðskipti erlent 21.5.2007 16:55
Hætta af þráðlausum internettengingum Heilsuverndarstofnun Bretlands íhugar nú að rannsaka hugsanlega hættu af þráðlausum internettengingum í skólum. Sir William Stewart yfirmaður stofnunarinnar sagði í viðtali við breska dagblaðið Daily Telegraph að vaxandi áhyggjur væru af áhrifum geislunar á börn. Viðskipti erlent 21.5.2007 11:18
Tæknivædd regnhlíf Regnhlíf með myndavél, GPStæki og internet-tengi. Fyrst voru það farsímarnir með innbyggðum myndavélum, hljómgræjum og öðrum aukabúnaði. Nú er röðin komin að regnhlífum. Viðskipti erlent 21.5.2007 02:35
Orkuturninn Burj al-Taqa turninn í Dubai mun algjörlega ganga fyrir endurnýtanlegri orku sem hann framleiðir sjálfur. Þjóðverjinn Eckhard Gerber á heiðurinn að orkuturninum Burj al-Taqa sem rísa mun á næstu árum í Dubai. Turninn verður ekki bara skrifstofubygging heldur líka virkjun á vind- og sólarorku. Viðskipti erlent 21.5.2007 02:32
Mjór ránfiskur Nokia hefur sett símann Barracuda á markaðinn. Finnska símafyrirtækið Nokia hefur svipt hulunni af hinum nýja og næfurþunna Barracudafarsíma sem einnig er með ódýrara móti, kostar undir 100 evrur í Evrópu. Viðskipti erlent 21.5.2007 02:25
Eftirlit á netinu eykst ár frá ári Umfang ríkiseftirlits á internetinu er sífellt að aukast að sögn nýútkominnar skýrslu um efnið. Samtökin Óháð Internet stóðu að henni en í þeim eru rannsóknarhópar frá háskólunum í Harvard og Oxford, meðal annarra. Viðskipti erlent 18.5.2007 07:08
Fyrirtækin hættu við Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) mælti formlega með því í gær að hið áformaða Galileo-gervihnattaleiðsögukerfi yrði fjármagnað að fullu úr ríkiskössum aðildarríkjanna, eftir að upprunaleg áætlun um að samlag einkafyrirtækja frá fimm löndum axlaði meirihluta kostnaðarins fór út um þúfur. Viðskipti erlent 16.5.2007 20:29
Eldri iPod notendur missa úr slag Nýleg rannsókn leiðir í ljós að iPod-spilarar geta haft truflandi áhrif á gangráða. Hundrað einstaklingar með gangráða og meðalaldurinn 77 ár tóku þátt í tilraun á áhrifum iPodspilara á gangráða sem fram fór í Stofnun hjarta- og æðasjúkdóma í Michigan-ríki í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 14.5.2007 20:51
Viðhaldið fært til bókar Viðhaldsbókin mín er gagnagrunnur á netinu þar sem hægt er að skrá allar framkvæmdir fasteigna. Upplýsingarnar fylgja síðan eigninni um ókomna tíð. Viðskipti erlent 14.5.2007 21:00
Fullur aðgangur að tölvupósti í símanum Openhand gerir notendum kleift að ná í tölvupóst í hvaða forritanlega síma sem er. Viðskiptahópurinn stækkar stöðugt. Openhand er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í samskiptalausnum fyrir farsíma. Viðskipti innlent 14.5.2007 16:04
Tölvupóststætari Þessi stórsniðugi pappírstætari kæmi sér vel á hvaða skrifstofu sem er. Tækið er tölva með öflugu varnarforriti gagnvart ruslpósti (spam). Hún er tengd nokkrum öðrum tölvum og í hvert skipti sem notendur þeirra fá ruslpóst prentar vélin hann út, tætir, og setur sendandann á svartan lista. Pappírinn er svo endurunninn svo að hægt sé að tæta hann aftur. Viðskipti erlent 14.5.2007 13:52
Nokia hvetur til orkusparnaðar Nokia hefur sett af stað hvatningarherferð sem fyrirtækið áætlar að muni spara jafnmikla orku á ári og 85 þúsund heimili nota árlega. Áætlunin er einföld. Nokia vill að fólk taki hleðsutækin sín úr sambandi um leið og búið er að hlaða símann. Viðskipti erlent 14.5.2007 13:45
Nýtt Hotmail Microsoft hefur tilkynnt um arftaka MSN Hotmail tölvupóstkerfisins sem verður Windows Live Hotmail. Nýja kerfið kemur út á 36 tungumálum um allan heim. Viðskipti erlent 8.5.2007 16:32
Hentar nýjum sjónvarpstækjum Stöð 2 og Sýn hafa hafið útsendingar á breiðtjaldsformi, sem hentar nýjum sjónvarpstækjum sem eru hönnuð fyrir hlutföllin 16:9. Í tilkynningu frá Stöð 2 kemur fram að slík sjónvarpstæki séu á um helmingi íslenskra heimila. Viðskipti erlent 7.5.2007 21:56
Myndir á Flickr í stað Yahoo Photos Veffyrirtækið Yahoo hefur ákveðið að hætta með Yahoo Photos, sem var fyrsta myndageymsla Yahoo á netinu. Í stað þess mælast forráðamenn fyrirtækisins til þess að fólk noti heldur síðuna Flickr, sem er í eigu Yahoo. Viðskipti erlent 6.5.2007 21:05
Stærsti dreifingaraðili fylgihluta farsíma í Evrópu Strax Holdings rekur meðal annars Farsímalagerinn og nýlega festi fyrirtækið kaup á Hans Petersen. Færri vita hins vegar að fyrirtækið er einnig stærsti dreifingaraðili farsímafylgihluta í Evrópu. Viðskipti erlent 6.5.2007 20:59
Grænna epli lofað Apple bregst við gagnrýni frá umhverfissinnum. Steve Jobs, forstjóri Apple, hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að fyrirtækið muni bæta umhverfisstefnu sína á næstunni. Ætlunin sé að fjarlægja eitruð efni úr tækjum frá Apple, þar á meðal Mac-tölvunum, iPod og MP3-spilurum. Viðskipti erlent 6.5.2007 21:02
Netárásir enn algengar Þrátt fyrir að eðli netárása hafi breyst hefur þeim síst af öllu fækkað. Á vef breska ríkissjónvarpsins BBC eru netárásir gerðar að umtalsefni. Netárásir eru þegar tölvuþrjótar koma sér upp svokölluðum bot-tölvum, sem venjulega eru stolnar, og hóta gegnum þær að yfirfylla tölvukerfi fyrirtækja af draslpósti og gagnslausum upplýsingum þannig að þau hrynji. Viðskipti erlent 6.5.2007 21:10
Draga má úr útblæstri án óhóflegs kostnaðar Hægt er að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda án þess að kostnaður við aðgerðirnar verði óhóflega mikill. Þetta er niðurstaða sérfræðinganefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem fundar í Bangkok í Taílandi. Viðskipti erlent 4.5.2007 12:12
21. aldar uppreisn Tilraunir til þess að eyða upplýsingum um það hvernig höfundarréttakóði HD-DVD diska er brotinn á bak aftur hafa skilað sér í uppreisn netverja. Viðskipti erlent 2.5.2007 16:20
OpenHand með herferð í Bretlandi Hugbúnaðarfyrirtækið OpenHand hyggur á mikla markaðsherferð í Bretlandi þar sem byggt verður á samstarfi og stuðningi við endursölunet fyrirtækisins þar. Fyrirtækið hefur að bjóða sérsniðnar samskiptalausnir fyrir farsíma. Viðskipti innlent 1.5.2007 15:05
Gallaðar rafhlöður í MacBook Bandaríski tækniframleiðandinn Apple tilkynnti á föstudaginn að rafhlöður í sumum MacBook og MacBook Pro fartölvum sínum væru gallaðar. Þeir segja þó að engin hætta stafi að því að nota rafhlöðurnar áfram. Einn af göllunum sem að um ræðir er að rafhlaðan hleðst ekki þegar að tölvunni er stungið í samband. Viðskipti erlent 30.4.2007 22:18
Hillary Clinton á MySpace Hillary Clinton er komin á MySpace. Þetta vinsæla netsamfélag stefnir á sýndarkosningar snemma á næsta ári og vonast til að niðurstöður gefi til kynna hver verði næsti forseti Bandaríkjanna. Aðeins meðlimir búsettir í Bandaríkjunum fá að taka þátt í sýndarkosningunum sem fara fram á netinu snemma á næsta ári. Viðskipti erlent 30.4.2007 14:53
Forrit sem drepur farsímann þinn Með „Killpill“ getur þú eytt myndum og SMS skilaboðum ef símanum þínum er stolið. Ef símanum þínum er stolið vilt þú ekki að þjófurinn skoði myndirnar sem þú og kærastan tókuð á „góðri stundu“, eða SMS-skilaboðin þar sem þú ert minntur á tímann á Húð og hitt. Viðskipti erlent 30.4.2007 14:41
Stærsta þráðlausa net Evrópu Fjármálahverfi London er orðið að stærsta þráðlausa netsvæði Evrópu. 350.000 Lundúnabúar sækja vinnu í „The Square Mile“ fjármálahverfinu í Lundúnum dag hvern. Þeir geta nú verið í netsambandi hvar sem er innan hverfisins því í vikunni vígðu yfirvöld og Cloud information stærsta þráðlausa netsvæði Evrópu. Viðskipti erlent 30.4.2007 14:35
Google gert að færa smáþorp Chile Ríkisstjórn Chile hefur farið þess á leit við forsvarsmenn Google að þeir geri lagfæringar á landafræðileitarvél sinni, Google Earth, vegna þess að chileskur bær er í Argentínu í kerfinu. Viðskipti erlent 29.4.2007 20:16
Zunepartý skemmir fyrir Xbox 360 Microsoft hefur gefið út árshlutauppgjör fyrir þriðja hluta viðskiptaársins. Afþreyingar og tækjadeild fyrirtækisins hefur ekki gengið nógu vel þrátt fyrir að búið sé að afgreiða yfir 11 miljón eintök af Xbox 360. Viðskipti erlent 27.4.2007 22:55
Armbandsúr gert úr skipsskrokki Titanic Svissneski úrasmiðurinn Romain Jerome SA hefu kafað djúpt eftir innblæstri í nýjustu hönnun sína. Alla leiðina niður að braki Titanic. Hann hefur tryggt sér brot úr grotnandi skipsskrokknum til að búa til Titanic DNA armbandsúr. Viðskipti erlent 26.4.2007 15:49