
Heilsugæsla

Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“
Ný íslensk rannsókn sýnir að þriðjungur skjólstæðinga Heilaörvunarmiðstöðvarinnar með alvarlegt þunglyndi hafi náð fullum bata með meðferð sem kallast segulörvunarmeðferð. Læknir lýsir meðferðinni sem sjúkraþjálfun fyrir heilann og er í skýjunum með árangurinn.

Að eldast – ertu undirbúin?
Það fá ekki allir tækifæri til að eldast. Við, sem það gerum vitum að með aldrinum kemur þörf fyrir stuðning, umönnun og hjúkrun, hvort sem hún kemur frá aðstandendum eða þeim stofnunum sem samfélagið hefur byggt upp. En spurningin er: Eru sjúkrahúsin, hjúkrunarheimilin og heilsugæslan í landinu tilbúin til að mæta þessum þörfum?

Heilsugæsla í vanda
Samkvæmt heilbrigðisstefnu til ársins 2030 á heilsugæslan að vera fyrsti viðkomustaður notenda í heilbrigðiskerfinu enda eru komur á heilsugæslustöðvar fleiri en fjöldi innlagna á sjúkrahús, komur á göngudeildir spítala og komur á stofur sérgreinalækna samanlagt.

Fleiri fresta læknisferðum vegna langra biðlista
Fólki sem frestar læknisferðum vegna langra biðlista hefur fjölgað á síðustu mánuðum og sum heimili bera óhóflegan kostnað af heilbrigðisþjónustu. Þetta eru niðurstöður rannsóknar, sem kynntar eru að hluta á málþingi ASÍ um félagslegt heilbrigðiskerfi í dag.

Gekk fram á sofandi ferðamann á heilsugæslunni
Við Helgu Þorbergsdóttur hjúkrunarfræðingi á heilsugæslunni í Vík í Mýrdal blasti óvænt sjón á morgungöngu sinni í dag. Við inngang heilsugæslustöðvarinnar lá eins manns tjald og í því sofandi ferðamaður.

Íris ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu Heilsugæslunnar
Íris Dögg Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Tekur hún til starfa 15. ágúst næstkomandi.

Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum
Margrét Héðinsdóttir, fagstjóri hjúkrunar og upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir fleiri erindi á borði upplýsingamiðstöðvarinnar núna en voru í janúar og febrúar. Skæðar og smitandi veirusýkingar, þeirra á meðal kórónaveiran, séu í gangi og mikið álag á heilsugæslum landsins.

Læknirinn sem varð fyrir árásinni ætlar lengra með málið
Heimilislæknir sem varð fyrir árás sjúklings á heilsugæslu í Reykjavík en fær ekki bætur frá ríkinu vegna málsins hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis.

Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni
Tilfellum þar sem heilbrigðisstarfsfólki er hótað og það jafnvel beitt ofbeldi fjölgar að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna og forstjóra lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Starfsfólk heilsugæslu þar sem ráðist var á lækni á vinnutíma upplifir óöryggi í vinnunni.

Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu
Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfum heimilislæknis sem varð fyrir árás sjúklings á meðan hann var í vinnunni.

„Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“
Formaður Læknafélags Íslands telur ekki að boðaðar breytingar á heilsugæslustöðvum muni draga úr álagi heldur þvert á móti. Hún hefur þungar áhyggjur af þróuninni og óttast að fólk veigri sér við að leita tímanlega til læknis.

Hefðbundið eftirlit vegna sjúkdóma bíði þar til í haust eða vor
Ekki er ætlast til að fólk í hefðbundnu eftirliti vegna sjúkdóma leiti á heilsugæsluna í sumar. Þar verður lögð áhersla á bráðaerindi þar til haustar.

Ófagleg vinnubrögð HSU og FSRE
Mikil umræða er þessa dagana um heilsugæslumál í Uppsveitum Árnessýslu. Engan skal undra þar sem Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) og Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hafa ákveðið að flytja Heilsugæsluna í Laugarási að Flúðum.

Einfaldara fyrirkomulag tilvísana
Í gær kom inn lítill og nett tilkynning inn á vef Stjórnarráðsins frá heilbrigðisráðuneytinu. Tilkynningin fjallar um að einfalda eigi tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Það má með sanni segja að tilvísanakerfið hafi sætt nokkurri gagnrýni síðustu misseri, ekki síst frá læknum sem hafa talið það taka frá þeim dýrmætan tíma og valdi óþarfa skriffinnsku.

Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn
Heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram reglugerð til að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Læknar hafa hótað því að hætta að gefa út tilvísanir vegna barna.

Hvetja til bólusetninga fyrir ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna
Fólk sem hyggur á ferðalög ætti að fara yfir bólusetningar sínar og barna sinna hvort sem farið er á framandi slóðir eða stefnt á stutta ferð til nágrannalandanna.

Viðurkennir að hafa brugðist of hægt við áhyggjuröddum heimilislækna
Heilbrigðisráðherra viðurkennir að hafa brugðist of hægt við áhyggjuröddum heimilislækna varðandi álag vegna skriffinsku. Hann ætlar að minnka kröfur um vottorða- og tilvísunarskrif og hefur boðað fulltrúa Félags heimilislækna á fund eftir helgi.

Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“
Indriði Einar Reynisson heimilislæknir er orðinn langþreyttur á óþarfa skriffinnsku við læknisvottorð og tilvísanir. Indriði situr í aðgerðahópi heimilislækna sem hefur boðað að ef þessu verði ekki breytt muni þeir grípa til einhliða aðgerða.

Heimilislæknar boða einhliða aðgerðir verði skriffinnskan ekki afnumin
Heimilislæknar ætla að beita einhliða aðgerðum ef ekki verður komið til móts við kröfur þeirra um afnám skriffinnsku sem þeir telja óþarfa. Stór hluti af vinnudegi þeirra fari í pappírsvinnu sem valdi því að löng bið er eftir tíma hjá heimilislækni. Þá er meira en helmingur heimilislækna við kulnunarmörk.

Atvinnurekendur sligi kerfið með kröfum um vottorð
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að í heilbrigðiskerfinu fari allt of mikill tími í skriffinnsku og alltof lítill tími í að sinna sjúklingum.

Þurfti endilega 504.670 vottorð?
Það fer of mikill tími í skriffinnsku og of lítill tími í að sinna sjúklingnum. Þetta er lýsing sem við í Samfylkingunni heyrum aftur og aftur þegar við fundum með heilbrigðisstarfsfólki.

Fjölgun atvika gæti verið jákvætt merki
Forstjóri lækninga á Landspítalanum segir að sífellt fleiri ábendingar berist um að eitthvað hafi hugsanlega farið úrskeiðis í starfseminni. Þjónustan sé þó ekki að versna heldur öryggismenning að aukast. Ákveðið hefur verið að ráða talsmann sjúklinga á spítalann.

Færri en fimm dauðsföll á ári vegna mistaka
Landlæknir segir að þó að yfir níutíu dauðsföll hafi verið tilkynnt sem alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu síðustu ár hafi greining embættisins leitt í ljós að þau séu miklu færri. Kvörtunum og athugasemdum til embættisins hefur fjölgað mikið síðustu ár og getur tekið allt að fjögur ár að vinna úr þeim.

Peningarnir hans Willums í baráttunni við eitrið
Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur.

Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara
Sjúklingar þurfa ennþá að óska eftir tilvísun frá lækni vegna sjúkraþjálfunar þrátt fyrir að bæði heimilislæknar og sjúkraþjálfarar hafi bent á að kerfið sé úrelt. Formaður Félags sjúkraþjálfara vonar að kerfinu verði umbylt í vinnu sem nú stendur yfir í heilbrigðisráðuneytinu.

Tilkynnt um hátt í hundrað alvarleg atvik þar sem dauðsföll urðu
Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist til Landlæknis um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu þar sem dauðsföll hafa orðið síðustu ár. Tilkynningum um alvarleg atvik fjölgaði um fimmtung á síðasta ári borið saman við árið á undan samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu.

Heilsugæslan tekur alfarið við svörun í númerinu 1700
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú alfarið tekið yfir svörun í síma 1700, sem áður var sinnt af Læknavaktinni. Neyðarsíminn verður áfram 112 og er fólki bent á að hringja í það númer ef þörf krefur.

Heilsugæslan flytur tímabundið eftir brunann
Heilsugæslan Garðabæ mun á næstu dögum flytja tímabundið í húsnæði í Mjóddinni í Reykjavík á meðan húsnæði heilsugæslunnar er þrifið og endurnýjað. Talsvert tjón varð á húsnæðinu af völdum reyks eftir að eldur kom upp á snyrtistofu í næsta húsi fyrir helgi. Er ljóst að einhverjar vikur muni taka þar til að hægt verði hefja starfsemi í húsinu á ný.

Sviðnir og sótugir stólar eftir eldsvoðann
Óvíst er hvenær húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar í Garðabæ verður opnað á ný eftir að eldur kviknaði í nærliggjandi snyrtistofu við Garðatorg í nótt. Stórtjón varð á snyrtistofunni í eldsvoðanum.

Heilsugæslan Garðabæ lokuð vegna bruna
Heilsugæslan í Garðabæ verður lokuð í dag vegna eldsvoða í aðliggjandi húsnæði á Garðatorgi.