Háskólar

Fréttamynd

Vextir tí­faldast eftir að Mennta­sjóður náms­manna tók við af LÍN

Vextir námsmanna hafa tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN fyrir sex árum samkvæmt nýrri greiningu. Þá eru lánakjörin verri hér en að jafnaði á Norðurlöndum. Hlutfall námsmanna sem fær námsstuðning er einnig langlægst hér á landi og greiðslubyrði jafngreiðslulána mest íþyngjandi.

Innlent
Fréttamynd

Gögnum nem­enda mögu­lega stolið af Canvas

Mögulegt er að gögnum um nemendur í Háskóla Íslands og skilaboð þeirra á milli hafi verið stolið í „öryggisatviki“ sem kom upp í Canvas-námsumsjónarkerfinu undanfarna daga. Póstur var sendur á nemendur skólans síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Ræða bak­slag í jafn­réttis­málum

Meint bakslag í jafnréttismálum hér á landi og þá sérstaklega í tengslum við kennslu og skólastarf, verður rætt í þaula í hátíðasal Háskólans í dag. Meðal annars verða gefin dæmi um kerfisbundin mynstur sem vinna gegn jafnrétti í menntakerfinu og hvernig standa megi vörð um þær framfarir sem hafa áður átt sér stað hér.

Innlent
Fréttamynd

Diplómanámið í HÍ: Menntun sem breytir lífi

Við erum hópur nemenda á öðru ári í starfstengdu diplómanámi við Háskóla Íslands, námi sem hefur opnað dyr sem áður voru lokaðar. Diplómanámið verður 20 ára á næsta ári og um 150 nemendur hafa útskrifast úr náminu. Fyrir okkur hefur námið verið dýrmætt tækifæri til að þroskast, efla sjálfstraust og verða hluti af háskólasamfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Inn­sýn í heim fata­hönnuða fram­tíðarinnar

List, glæsileiki og tíska blönduðust á skemmtilegan hátt saman í eitt í Hörpu á föstudagskvöld þegar útskriftarnemendur við fatahönnun í Listaháskóla Íslands settu upp tískusýningu. Margt var um manninn og fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu hvert leiðin liggur í tískunni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Sig­rún Helga nýr for­seti Röskvu

Sigrún Helga Guðnadóttir hefur verið kjörin forseti Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Ný stjórn hreyfingarinnar var kjörin í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Vaka kaus sér nýja for­ystu

Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, kaus sér nýja forystu á aðalfundi félagsins í Grósku á sunnudag. Birgir Ari Óskarsson viðskiptafræðinemi var kjörinn formaður félagsins en fráfarandi formaður er Kristófer Breki Halldórsson.

Innlent
Fréttamynd

Nánast hreint kókaín í um­ferð en ekkert fentanyl

Adam Erik Bauer, náttúrufræðingur og doktorsnemi, hefur í tvö ár rannsakað magn ópíóíða, ketamíns og annarra vímuefna í fráveitu með það að markmiði að tryggja rétt viðbragð og auka forvarnir. Nýjustu niðurstöður sýna að kókaín í umferð sé nánast hreint og að töluvert magn sé af oxycontin í umferð. Hann segir þó jákvætt að ekkert fentanýl finnist í fráveitu eða annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Sterkari Há­skóli, sterkari Akur­eyri!

Háskólinn á Akureyri er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins okkar. Háskólinn hefur ekki aðeins byggt upp öflugt mennta- og rannsóknarumhverfi, heldur hefur hann einnig laðað að fólk til búsetu, styrkt atvinnulíf og aukið fjölbreytni í samfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Svavar Sig­munds­son er látinn

Svavar Sigmundsson, fyrrverandi dósent og forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands, er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést 11. apríl síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Hvers vegna og hvernig há­skóla­nám?

Það kom óneitanlega aftan að mér þegar sonur minn, sem nýverið kláraði menntaskóla, tók að efast um gagnsemi þess að fara í háskólanám. Við ræddum málið og ég áttaði mig enn betur á mikilvægi þess að verðmæti háskóla og háskólanáms sé í stöðugri endurskoðun og því sé skilmerkilega miðlað.

Skoðun
Fréttamynd

Engir glæpir á bak við aukið sí­renu­væl í borginni

Fjölmargir hafa eflaust orðið varir við aukið sírenuvæl undanfarna daga á höfuðborgarsvæðinu. Það á sér þó mjög hversdagslegar skýringar en yfir standa æfingar í forgangsakstri hjá lögreglunemum. Sjái fólk lögreglubíla á fleygiferð um borgina sé því ekki ólíklegt að þeir séu á æfingu frekar en á leið í útkall.

Innlent
Fréttamynd

Syrtir að í sögu Hóla í Hjalta­dal

Þessi hugsun hefur síðasta árið gerst áleitin, horfandi upp á umhirðuleysi og niðurlægingu hinnar ytri ásýndar Hólastaðar. Nú virðist einnig vegið þungt að innri gerð háskólasamfélagsins á Hólum.

Skoðun
Fréttamynd

Tekur undir gagn­rýni á um­deildan fyrir­lestur eigin stofnunar

Stjórnarkona Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem er einnig varaformaður Loftslagsráðs segist taka undir gagnrýni á að stofnunin hafi boðið fyrrverandi þingmanni að halda fyrirlestur um loftslagsmál. Alvarlegar vísindalegar athugasemdir hafa verið gerðar fyrir við bók hans um málefnið.

Innlent
Fréttamynd

Röskva bar sigur úr býtum

Röskva - samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands bar sigur úr býtum í kosningum til stúdentaráðs og háskólaráðs í gær. Röskva nær því meirihluta eftir tvö ár af Vöku í meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Bjóða Frosta að ræða „villu­ljós“ í Há­skóla Ís­lands

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segir stofnunina ekki taka undir afstöðu Frosta Sigurjónssonar með því að bjóða honum að halda fyrirlestur um loftslagsmál. Helsti loftslagsvísindamaður landsins lýsti vísindalegri umfjöllun í nýlegri bók Frosta sem „villuljósi“

Innlent