
Erlend sakamál

Hataðasti raðmorðingi Ástralíu er líklega saklaus
Einn virtasti ónæmisfræðingur Spánar telur að kona sem setið hefur í fangelsi í Ástralíu í nær 20 ár fyrir að hafa myrt öll fjögur börnin sín, sé saklaus og að öll börnin hafi látist vegna erfðagalla. 90 vísindamenn, þar á meðal Nóbelsverðlaunahafar, hafa skorað á áströlsk stjórnvöld að sýkna konuna.

Birtu myndband af flótta grunaðs morðingja
Yfirvöld í Alabama í Bandaríkjunum hafa birt myndband sem sýnir hvernig fangavörður hjálpaði fanga sem er grunaður um morð að sleppa úr fangelsi fyrir helgi. Talið er að þau hafi verið í nánu sambandi.

Leita að fanga sem slapp með aðstoð fangavarðar í Alabama
Mikil leit er nú gerð að strokufanga í Alabama í Bandaríkjunum sem virðist hafa sloppið úr fangelsi með aðstoð fangavarðar, sem einnig er leitað.

Nauðgaði og ýtti konu ofan í gjótu eftir að hún hafnaði bónorði
Lögreglan í Svíþjóð hefur til rannsóknar karlmann sem talinn er hafa nauðgað konu og ýtt henni í gjótu eftir að hún hafnaði bónorði hans. Konan fannst á föstudaginn eftir að hafa legið í gjótunni í tvo daga.

Sakfelldir vegna útlits og litarafts
Tveir menn voru, á grundvelli litarafts og útlits, dæmdir til 15 ára fangelsisvistar fyrir nokkrar nauðganir í Barcelona í lok síðustu aldar. Vitað er hver hinn raunverulegi ódæðismaður var. Nú 30 árum síðar hefur eitt fórnarlambanna stigið fram og viðurkennt að hafa veitt falskan vitnisburð. Engu að síður er talið ólíklegt að mennirnir hljóti sakaruppgjöf.

Madeleine McCann: Foreldrarnir hafa ekki tapað voninni
Foreldrar Madeleine McCann, sem hvarf árið 2007, segjast ekki hafa tapað voninni á að endurheimta dóttur sína. Þau segjast jafnframt fagna því að manni hafi formlega verið veitt staða sakbornings.

Feður sem myrða börn sín
Feður og sambýlismenn mæðra á Spáni hafa orðið 47 börnum kvennanna að bana á síðustu árum, í þeim eina tilgangi að valda konunum þjáningu. 11 ára drengur var fórnarlamb föður síns í síðustu viku, eingöngu af því að dómara yfirsást að faðirinn sætti nálgunarbanni gagnvart móðurinni.

Fundu fimm fóstur á heimili andstæðings þungunarrofa
Lögreglan í Washington DC hefur til rannsóknar konu, sem kallar sjálfa sig aðgerðarsinna gegn þungunarrofum, eftir að fimm fóstur fundust á heimili hennar.

Neita að endurskoða lífstíðardóm framhaldsskólastarfsmanns
Pamela Smart, sem situr inni fyrir að hafa látið framhaldsskólanema myrða eiginmann sinn, fær ekki endurskoðun á lífstíðardómnum er hún hlaut fyrir rúmum þrjátíu árum síðan.

Loddaranum Önnu Sorokin vísað frá Bandaríkjunum
Bandarísk stjórnvöld hyggjast vísa Önnu Sorokin, einnig þekkt sem Anna Delvey, úr landi og senda hana aftur til Þýskalands. Anna gerði garðinn frægan þegar hún þóttist vera erfingi mikilla auðæfa og sótti um árabil veislur yfirstéttarfólks í New York sem féll kylliflatt fyrir blekkingum hennar.

Bjóða fundarlaun í leitinni að hinum belgíska Theo Hayez
Þremur árum eftir að tilkynnt var um hvarf hins belgíska Theo Hayez í Ástralíu hafa yfirvöld í Nýju Suður-Wales boðið þeim sem kemur með upplýsingar sem leiðir til að málið upplýsist 500 þúsund ástralskra dala, um 50 milljónir króna.

Risavaxinn svartbjörn eftirlýstur af lögreglu fyrir tugi innbrota
Lögreglan í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur lýst eftir risavaxna svartbirninum „Hank the Tank“ fyrir tugi innbrota við Tahoe vatn síðasta sumar.

Samstarfsmaður Epstein fannst látinn í fangaklefa
Franski tískumógúllinn Jean-Luc Brunel fannst látinn í fangaklefa sínum í París í gær. Brunel var náinn vinur bandaríska auðkýfingins og kynferðsibrotamannsins Jeffrey Epstein. Hafði Brunel verið handtekinn í tengslum við rannsókn franskra yfirvalda á kynferðisbrotum Epstein.

Segja hluta greiðslu Andrésar til Giuffre úr vasa drottningarinnar
Andrés prins mun greiða Virginu Giuffre og góðgerðarsamtökum hennar meira en tólf milljónir punda, um tvo milljarða íslenskra króna, vegna samkomulags þeirra um að mál Giuffre á hendur honum verði fellt niður. Bretlandsdrottning mun fjármagna greiðsluna að hluta.

Dæmd í sextán mánaða fangelsi eftir að kærastinn myrti son hennar
Bandarísk kona hefur verið dæmd í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa ekki verndað son sinn, sem var myrtur af kærasta konunnar.

Annar mannanna í gæsluvarðhald en hinum sleppt
Dómari í Álaborg hefur úrskurðað 36 ára karlmann í fjögurra vikna gæsluvarðhalds vegna hvarfs hinnar 22 ára Mia Skadhauge Stevn. Lögregla handtók tvo karlmenn, báða 36 ára, vegna málsins í gær og hefur hinn nú verið látinn laus. Saksóknarar hafa hins vegar áfrýjað þeirri ákvörðun dómsins.

Tekist á um horfna síma, ónýta tölvu og fræga afhjúpun í máli Vardy gegn Rooney
Gögn í meiðyrðamáli knattspyrnueiginkonunnar Rebekah Vardy gegn Coleen Rooney gefa til kynna að Vardy hafi sagt að hún myndi „elska það“ að leka sögum um Rooney til breska slúðurblaðsins The Sun. Skilaboð á milli Vardy og umboðsmanns hennar benda til þess að þær hafi ítrekað rætt um að leka sögum til The Sun. Síma- og tölvugögn í málinu virðast að einhverju leyti hafa horfið á undarlegan hátt.

Tveir handteknir vegna gruns um að tengjast hvarfi á 22 ára konu í Álaborg
Lögregla í Danmörku hefur handtekið tvo 36 ára karlmenn vegna gruns um að tengjast hvarfinu á hinni 22 ára Mia Skadhauge Stevn. Ekkert hefur spurst til konunnar frá því að sást til hennar á öryggismyndavélum stíga upp í bíl í miðborg Álaborgar á Jótlandi snemma á sunnudagsmorgun, en málið hefur vakið mikla athygli í Danmörku.

Ákærðir fyrir að selja Wire-leikara banvæna blöndu fíkniefna
Lögreglan í New York hefur handtekið fjóra einstaklinga í tengslum við andlát leikarans Michael K. Williams. Mennirnir eru grunaðir um að hafa selt Williams banvæna blöndu fentanýls og heróíns.

Fórnarlamb flugumannsins sem kom til Íslands fær háar bætur
Kona sem breski flugumaðurinn Mark Kennedy braut gróflega fær háar bætur eftir að dómstóll í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu að lögreglan í London hafi brotið á mannréttindum hennar.

Játaði að hafa rænt fjögurra ára ástralskri stúlku
Ástralskur karlmauður á fertugsaldri hefur játað að hafa rænt fjögurra ára gamalli stúlku og halda henni fanginni í átján daga síðasta haust.

Drógu látinn mann inn á pósthús til að innheimta ellilífeyri hans
Lögreglan á Írlandi hefur hafið rannsókn á atviki þar sem tveir menn drógu lík látins manns inn á pósthús í þeim tilgangi að fá ellilífeyri hans greiddan út.

Tveir handteknir eftir að kennari var myrtur á Írlandi
Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morðið á Ashling Murphy, sem var myrt fyrir viku síðan þegar hún var úti að skokka í bænum Tullamor í Offaly sýslu á Írlandi.

Myrti eiginkonuna til að hefja nýtt líf með viðhaldinu
Tannlæknir í Bandaríkjunum er sakaður um að hafa myrt eiginkonu sína í því skyni að komast yfir tæpar fimm milljónir dollara, eða rúmar sex hundruð milljónir króna, í tryggingarfé.

Robert Durst er dáinn
Morðinginn og auðkýfingurinn Robert Durst er dáinn. Durst var 78 ára og var að afplána lífstíðardóm fyrir morðið á vinkonu sinni Susan Berman þegar hann lést í morgun.

Dómarinn á báðum áttum vegna samkomulagsins við Epstein
Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins virðist á báðum áttum þegar kemur að tilraun lögmanna Andrésar til að nýta sér gamalt samkomulag Giuffre við Jeffrey Epstein til að fá málinu vísað frá dómstólum. Dómarinn er þó sagður hafa virst efins um þessa túlkun lögmanna prinsins.

Telja samning Giuffre við Epstein fría Andrés prins af ábyrgð
Virgina Giuffre, sem kært hefur Andrés prins fyrir nauðgun, tók á móti greiðslu úr hendi Jeffrey Epstein árið 2009 gegn því að höfða ekki mál gegn „mögulegum sakborningum“ vegna kynferðisofbeldis.

Myrti sex í óútskýrðu ódæði: Reyndist með miklar heilaskemmdir
Phillip Adams, fyrrverandi NFL-leikmaður, var með töluverða áverka á framhluta heila þegar hann svipti sig lífi í apríl. Það gerði hann eftir að hann skaut sex manns til bana og þar af tvö börn.

OJ Simpson laus allra mála
Fótboltmaðurinn fyrrverandi og leikarinn OJ Simpson er frjáls maður, þrettán árum eftir að hann var sakfelldur fyrir vopnað rán.

Segir Maxwell hafa tekið þátt í kynferðislegum athöfnum
Kona sem sakar Jeffrey Epstein um að misnotað sig kynferðislega þegar hún var unglingur bar vitni um að Ghislaine Maxwell hefði tekið þátt í sumum kynferðislegum athöfnum þeirra fyrir dómi í New York í dag.