
Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi

Ráðherra vill jafna hlut kynjanna í stjórn KSÍ
Mennta- og menningarmálaráðherra telur mikilvægt að kynjahlutfall innan stjórnar KSÍ verði jafnað. Það sé einn af þeim hlutum sem verið sé að fara yfir en ráðherra mun funda með fráfarandi stjórn síðdegis í dag og fara yfir stöðu mála.

„Klara þarf að fara“
„Framferði Klöru er óboðlegt. Hún hefur fengið að skauta fram hjá sannleikanum ítrekað, axlar enga ábyrgð og virðist ekkert sjá rangt við sitt framferði. Hún reynir að varpa ábyrgðinni á öll önnur í kring um sig, en sér ekkert að hjá sér sjálfri.“

Garðar með ákall til fótboltastráka: „Þýðir ekki bara að snyrta toppinn af trénu“
Markaskorarinn Garðar Gunnlaugsson segir að meira þurfi til en nýja stjórn hjá KSÍ til að uppræta eitraða menningu fótboltans. Hann biðlar til fótboltastráka að beita sér í baráttunni fyrir heilbrigðara umhverfi innan fótboltans þar sem kvenfyrirlitning og mismunum gagnvart minnihlutahópum heyri sögunni til.

Stjórn KSÍ mun ekki víkja Klöru frá störfum
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, mun að öllu óbreyttu sinna störfum sínum fyrir sambandið áfram næstu mánuði. Hún ætlar ekki að stíga frá borði og sitjandi stjórn ætlar ekki að víkja henni frá störfum.

Landsbankinn óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ
Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra stuðningsaðila Knattspyrnusambands Íslands sem krefjast þess að sambandið geri hreint fyrir sínum dyrum. Forsvarsmenn bankans óskuðu í gær eftir fundi með framkvæmdastjóra og stjórn KSÍ.

Gangast við því að traust samfélagsins til KSÍ sé „algjörlega horfið“
Forsvarsmenn KSÍ munu funda með öllum samstarfsaðilum sínum á næstu dögum, hlusta á sjónarmið þeirra og upplýsa um þær aðgerðir sem sambandið hyggst grípa til. Þetta kemur fram í tilkynningu sem KSÍ sendi á fjölmiðla seint í gærkvöldi.

Segir tilkynningu um hópnauðgun hafa komið inn á borð KSÍ
KSÍ hefur til meðferðar tilkynningu um hópnauðgun. Þetta kom fram í máli Klöru Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, í tíufréttum RÚV í kvöld þegar hún var spurð hvort mál Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur væri eina kynferðisafbrotamálið sem hún vissi af á borði sambandsins.

Erlendir miðlar fjalla um mál KSÍ: „Skandall skekur Ísland“
Fjölmargir erlendir fjölmiðlar hafa greint frá afsögn Guðna Bergssonar, fráfarandi formanns Knattspyrnusambands Íslands, sem og ofbeldisbroti landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórssonar bæði í dag og í kvöld.

„Get ekki boðið mér og minni fjölskyldu uppá þann viðbjóð sem hefur verið sagt um okkur“
Ásgeir Ásgeirsson, einn stjórnarmanna KSÍ sem sagði af sér í kvöld, birti stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann kvaðst afar ósáttur við þá gagnrýni sem stjórnarfólk sambandsins hefur sætt síðustu daga.

Klara Bjartmarz ætlar að halda áfram
Klara Bjartmarz hyggst halda áfram sem framkvæmdastjóri KSÍ eftir að ný stjórn sambandsins tekur við. Stjórn KSÍ hefur tilkynnt að hún ætli að stíga til hliðar í kjölfar umfjöllunar um viðbrögð sambandsins við ásökunum um ofbeldi af hendi landsliðsmanna.

Stjórn KSÍ segir af sér
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands, varafulltrúar hennar og landshlutafulltrúar hafa ákveðið að segja af sér. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Boðað verður til aukaþings hjá sambandinu með fjögurra vikna fyrirvara.

Gautaborg fordæmir hegðun Kolbeins og er með málið til skoðunar
IFK Gautaborg, lið Kolbeins Sigþórssonar, sendi frá sér tilkynningu í kvöld vegna kynferðisbrots hans árið 2017. Hegðun hans er fordæmd og málið er til skoðunar hjá félaginu.

Stjórnin fundar áfram og íhugar hvort hún segi af sér
Fundahöld standa enn yfir hjá stjórn KSÍ þar sem viðbrögð sambandsins við tilkynningum um ofbeldisbrot eru meðal annars til umræðu. Stjórnarmenn hafa varist frétta af stöðu mála í dag en háværar kröfur eru uppi um að stjórnin stígi til hliðar.

Gefum kynbundnu ofbeldi rautt spjald
Nýafstaðnir atburðir innan knattspyrnuhreyfingarinnar hafa varla farið framhjá neinum þar sem frásagnir af kynbundnu ofbeldi knattspyrnumanna í fremstu röð hefur komið upp á yfirborðið. Forysta knattspyrnusambandsins hefur því miður ekki játað opinberlega vitneskju um ofbeldið og hefur mistekist að miðla þeim sjálfsögðu skilaboðum að kynbundið ofbeldi verði aldrei liðið innan knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi.

Samningar lausir og framhaldið velti á umbótum hjá KSÍ
Icelandair fundaði með forsvarsfólki Knattspyrnusambands Íslands í dag um stöðu mála innan sambandsins. Samningar milli Icelandair og KSÍ eru nú lausir en Icelandair segir að sambandið verði að sýna fram á áætlun um umbætur áður en ákvörðun verður tekin um áframhaldandi samstarf.

Verði aldrei þannig að þolandi mæti fyrir stjórn KSÍ
Ástæða þess að stjórn Knattspyrnusambands Íslands ákvað að taka Kolbein Sigþórsson úr landsliðshópi Íslands er ofbeldismál sem skekið hefur knattspyrnuhreyfinguna undanfarna daga. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Stjórn KSÍ fundar í annað sinn í dag
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, fundaði í hádeginu og mun funda aftur á Teams klukkan fimm. Þetta staðfestir Gísli Gíslason varaformaður KSÍ í samtali við fréttastofu. Hann vildi ekkert gefa upp um efni fundarins eða hvort yfirlýsingar væri að vænta að honum loknum.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ ræðir mál KSÍ á fundi
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og ólympíusambands Íslands fundar nú og ræðir meðal annars mál KSÍ.

Ingó tróð upp í fimmtugsafmæli stjórnarmanns KSÍ
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, tróð upp í fimmtugsafmæli Tómasar Þóroddssonar stjórnarmanns KSÍ fyrir tíu dögum síðan. Tómas er einn þeirra sem skrifaði undir yfirlýsingu stjórnar KSÍ um að staðið sé með þolendum ofbeldis.

Krefjast þess að KSÍ boði tafarlaust til aukaþings: „Orðspor íslenskrar knattspyrnu er stórlega skaðað“
Knattspyrnudeildir níu félaga hafa krafist þess að KSÍ boði tafarlaust til aukaþings.

Hetjurnar okkar
Hugmyndir um staðalmyndir kynjanna eru áþreifanlegar í samfélaginu og ýta undir og viðhalda misrétti. Á þeim byggir líka hetjudýrkun á þekktum einstaklingum af karlkyni eins og tónlistarmönnum, útrásarvíkingum og afreksmönnum í íþróttum, einkum þó fótbolta sem oftar en ekki eru kallaðir „fótboltagoðsagnir“, „knattspyrnuhetjur“ og þó oftast „strákarnir okkar.“ .

Stuðningsaðili óskar eftir samtali við KSÍ vegna frétta síðustu daga
Coca-Cola á Íslandi, CCEP, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu Knattspyrnusambands Íslands í íslensku samfélagi í kjölfar frétta síðustu daga. Hefur félagið í bréfi óskað eftir samtali við fulltrúa KSÍ um málið.

Rúmenar fjalla um „risahneyksli“ á Íslandi
Rúmenskir fjölmiðlar velta sér í dag upp úr fréttum af næstu andstæðingum Rúmeníu í undankeppni HM karla í fótbolta; íslenska landsliðinu. Í fyrirsögnum er talað um „risahneyksli á Íslandi“.

Öfgar og Bleiki fíllinn boða til mótmæla gegn KSÍ
Aðgerðahóparnir Öfgar öfgar og Bleiki fíllinn hafa boðað til mótmæla næstkomandi fimmtudag vegna máls KSÍ. Hóparnir segja að öll stjórn KSÍ verði að segja af sér, ekki aðeins formaður sambandsins.

ÍTF krefst þess að framkvæmdastjóri og stjórn KSÍ víki
Stjórn Íslensks toppfótbolta, ÍTF, krefst þess að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, og stjórn sambandsins stígi frá borði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum.

„Þarf að hreinsa meira til en að láta Guðna einan bera þennan kross“
Óánægja er innan fótboltahreyfingarinnar á Íslandi með niðurstöðu maraþonfundar KSÍ um helgina. Að mati ÍTF, hagsmunasamtaka félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, þarf að gera breytingar á stjórn KSÍ.

Stjórn KSÍ tók Kolbein út úr hópnum vegna miskabótamálsins
Brotthvarf Kolbeins Sigþórssonar úr íslenska landsliðshópnum í fótbolta var samkvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ. Kolbeinn er leikmaðurinn sem greiddi Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur miskabætur eftir að hafa brotið á henni haustið 2017, samkvæmt heimildum Vísis. Rúnar Már Sigurjónsson dró sig sjálfur úr hópnum og eru tvær ástæður gefnar fyrir því í yfirlýsingu KSÍ.

Hermann og Martin gagnrýna aumingjana sem fela sig
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, tekur undir orð föður síns, Hermanns Haukssonar, að hetjur í málefnum líðandi stundar séu bæði þolendur og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir sem hefur farið mikinn í umræðu um kynferðisofbeldi undanfarna daga.

Bar kappið KSÍ ofurliði?
Fyrir okkur sem höfum barist fyrir alhliða jafnrétti í íþróttamenningu í mörg ár hafa sl. sólarhringar verið allt að óraunverulegir. Afhjúpun þeirrar menningar sem ríkir innan KSÍ hefur hér með átt sér stað.

Engin formleg tillaga um aukaþing borin upp á fundi stjórnar
Stjórn KSÍ ætlar að sitja fram að næsta ársþingi sem fram fer í febrúar. Þó var rætt á fundi stjórnarinnar um helgina að boða til aukaþings þar sem kosin yrði ný stjórn. Þetta herma heimildir fréttastofu.