Handbolti

Handbolti

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Viktor Gísli varð fár­veikur á HM

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson veiktist á HM félagsliða í Egyptalandi á dögunum, þar sem hann var með Evrópumeistaraliði Barcelona, en er allur að braggast.

Handbolti
Fréttamynd

Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru

Elín Klara Þorkelsdóttir spilaði góðan leik fyrir IK Sävehof í sænsku úrvalsdeild kvenna í handbolta þegar liðið tók á móti Skara HF. Þrátt fyrir að hafa spilað vel þurfti hún að sætta sig við 32-30 tap gegn erfiðum andstæðingi.

Handbolti
Fréttamynd

„Náðum ekki að klukka þá framan af“

Aron Pálmarsson, þjálfari FH, segir að leikmenn sínir hafi fengið dýrmæta lexíu þegar franska liðið Limoges tók þá í kennslustund í fyrri hálfleik í leik liðanna í Evrópudeild EHF í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. 

Handbolti
Fréttamynd

Náðu að vinna sterkt spænskt lið

Íslendingaliðið Gummersbach náði að vinna nauman sigur á CB Ciudad í Evrópudeild karla í handbolta. Leikurinn var mjög jafn en á lokasprettinum náði Gummersbach að sækja sigurinn og endaði leikurinn 34-30.

Handbolti
Fréttamynd

Slakur fyrri hálf­leikur varð Val að falli

Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals.

Handbolti
Fréttamynd

„Þeir eiga allt þetta hrós fylli­lega skilið“

Nýklipptur Aron Pálmarsson stýrir FH í kvöld í fyrsta sinn í heimaleik í Evrópukeppni þegar liðið tekur á móti einu besta liði Frakklands, Limoges, í Evrópudeildinni í handbolta. Ungstirni FH-liðsins sýndu á Spáni í fyrsta leik að þau eru til alls líkleg.

Handbolti
Fréttamynd

Dýr­mætur sigur HK-inga

HK kom sér upp fyrir Víking og Stjörnuna með því að leggja Stjörnuna að velli í Kórnum í kvöld, 35-31, í Olís-deild karla í handbolta.

Handbolti
Fréttamynd

FH hélt Sel­fossi á botninum

FH kom sér aftur á sigurbraut í kvöld eftir tapið nauma í Hafnarfjarðarslagnum í síðustu umferð en liðið vann Selfoss á útivelli, 36-31.

Handbolti