Erlent „
131 132 133 134 135 136 137 138 139 … 334 ›
„Við erum ekki Amazon“ Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, hefur hvatt ráðamenn í Úkraínu til að sýna meira þakklæti á opinberum vettvangi fyrir vopnasendingar. Þegar honum barst beiðni frá Úkraínu um vopn í fyrra, svaraði hann með því að segja: „Við erum ekki Amazon“. Erlent 12.7.2023 15:00
Úkraína nær NATO aðild en nokkru sinni fyrr Aðalframkvæmdastjóri NATO segir Úkraínu komna nær NATO aðild en nokkru sinni fyrr. Úkraínuráð Atlantshafsbandalagsins kom saman til síns fyrsta fundar í morgun, þar sem meðal annars var rætt um þriggja þátta áætlun um fulla aðild Úkraínu að bandalaginu. Erlent 12.7.2023 14:00
Wagner-liðar tóku stefnuna á kjarnorkuvopnageymslur Þegar málaliðar Wagner stefndu hraðbyr að Moskvu í uppreisn þeirra í síðasta mánuði, breytti hópur þeirra um stefnu og keyrði í átt að rússneskri herstöð þar sem kjarnorkuvopn eru geymd. Málaliðarnir komust í allavega hundrað kílómetra fjarlægð frá herstöðinni, sem kallast Voronezh-45. Erlent 12.7.2023 08:37
Einn fylgjenda Manson látinn laus eftir 53 ár í fangelsi Leslie Van Houten hefur verið látið laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað 53 ára dóm fyrir aðild sína að morðinu á Leno og Rosemary LaBianca. Van Houten var 19 ára gömul þegar hún tók þátt í morðunum sem einn af fylgjendum Charles Manson. Erlent 12.7.2023 07:50
„Hjartsláttarfrumvarp“ samþykkt í Iowa Ný lög hafa verið samþykkt í Iowa í Bandaríkjunum sem banna þungunarrof í nær öllum tilvikum eftir að hjartsláttur finnst, sem er yfirleitt eftir sex vikna meðgöngu, fyrir þann tíma sem flestar konur vita að þær eru óléttar. Erlent 12.7.2023 07:02
Leiðtogar NATO samþykktu áætlun um aðild Úkraínu Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins hafa samþykkt þrjá þætti til undirbúnings aðildar Úkraínu að NATO og einfaldað aðildarferlið sjálft. Sérstakt Úkraínuráð heldur sinn fyrsta fund á morgun þar sem Úkraínumenn mæta öðrum leiðtogum bandalagsins á jafnréttisgrundvelli. Erlent 11.7.2023 19:35
Fundu lík barns í fjöru Líkamsleifar ungs barns fundust í fjöru við Miðjarðarhafið í morgun. Talið er að barnið hafi verið tveggja til þriggja ára en líkamsleifarnar eru taldar hafa verið í nokkurn tíma í sjónum. Erlent 11.7.2023 15:01
Sögulegur leiðtogafundur NATO í Vilníus Svíum verður boðin formleg aðild að Atlantshafsbandalaginu á tveggja daga leiðtogafundi bandalagsins sem hófst í Vilníus í Litháen í morgun. Einnig verða teknar ákvarðanir um uppfærslu á varnar- og fælingarmætti NATO í austurhluta Evrópu og leiðarvísir lagður að aðild Úkraínu að bandalaginu. Erlent 11.7.2023 11:59
Þarf ekki að borga tugi milljóna í fundarlaun Söng- og leikkonan Lady Gaga þarf ekki að greiða konu hálfa milljón dala í fundarlaun fyrir að skila hundum hennar. Konan, sem hefur verið dæmd vegna hundaránsins, fór í mál gegn Gaga og hélt því fram að hún ætti rétt á peningunum, þar sem söngkonan hefði heitið því að spyrja engra spurninga ef hún fengi hundana aftur. Erlent 11.7.2023 11:16
Ungverjar einnig hlynntir aðild Svía að NATO Yfirvöld í Ungverjalandi ætla að styðja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið en utanríkisráðherra landsins sagði í morgun að samþykkt innngöngu Svía væri nú eingöngu tæknilegs eðlis. Tyrkir og Ungverjar voru þeir einu sem settu sig á móti inngöngu Svía en Peter Szijjarto, áðurnefndur utanríkisráðherra, sagði í síðustu viku að Ungverjar myndu fylgja Tyrkjum, skiptu þeir síðarnefndu um skoðun. Erlent 11.7.2023 10:27
Vill fresta réttarhöldum fram yfir kosningar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á að réttarhöldum yfir honum vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu verði frestað þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Þeir segja óréttlátt að rétta yfir Trump á þessu ári, þar sem Trump verði upptekinn við kosningabaráttu og vegna annarra sakamála sem að honum beinast. Erlent 11.7.2023 09:14
Ítreka öryggi bóluefnanna og vara við falsupplýsingum Alþjóðasamband lyfjastofnana (ICMRA) hefur sent frá sér yfirlýsingu til að ítreka og vekja athygli á öryggi bóluefnanna við Covid-19 og röngum og misvísandi upplýsingum sem eru í umferð. Erlent 11.7.2023 08:20
Fox enn í vanda vegna samsæriskenninga Carlson Fox News á enn yfir höfði sér mögulega rándýrt mál vegna sjónvarpsmannsins Tucker Carlson, sem miðillinn lét fjúka fyrr á árinu. Málið varðar eina af samsæriskenningum Carlson, sem hann hefur haldið áfram að halda frammi í nýjum hlaðvarpsþætti sínum. Erlent 11.7.2023 07:57
Nassar stunginn tíu sinnum í fangelsinu í Flórída Larry Nassar, fyrrverandi læknir landsliðs Bandaríkjanna í fimleikum, var stunginn að minnsta kosti tíu sinnum í fangelsinu þar sem hann dvelur. Nassar var dæmdur í 175 ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega á liðsmönnum landsliðsins. Erlent 11.7.2023 07:22
Erdogan samþykkir NATO-aðild Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hefur samþykkt aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, greindi frá þessu í kvöld. Erlent 10.7.2023 19:47
Forsetinn endurkjörinn með 87 prósent atkvæða Shavkat Mirziyoyev hefur verið endurkjörinn sem forseti Mið-Asíuríkisins Úsbekistans. Samkvæmt tölum frá kjörstjórn hlaut forsetinn 87,1 prósent atkvæða í kosningunum sem fram fóru í gær og mun hann því sitja sitt þriðja kjörtímabil. Erlent 10.7.2023 14:41
Rutte hyggst segja skilið við stjórnmálin Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir að hann muni segja skilið við stjórnmálin eftir komandi þingkosningar. Greint var frá því fyrir helgi að hollenska ríkisstjórnin væri sprungin vegna deilna innan stjórnarliðsins um innflytjendamál. Erlent 10.7.2023 08:49
Bátur með rúmlega 200 innanborðs týndur við Kanaríeyjar Spænskt björgunarlið leitar nú að bát undan ströndum Kanaríeyja en talið er að 200 flóttamenn hið minnsta séu um borð. Erlent 10.7.2023 08:35
Þrjú börn meðal látinna eftir árás á leikskóla í Kína Sex eru látnir eftir árás á leikskóla í borginni Lianjiang í Guangdong-héraði í Kína. Meðal látnu eru þrjú börn, tveir foreldrar og einn kennari. Erlent 10.7.2023 08:34
Biden og Sunak funda um mögulega aðild Úkraínu að Nató Joe Biden Bandaríkjaforseti og Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, munu funda í Lundúnum í dag þar sem efsta mál á dagskrá verður ósk Úkraínumanna um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 10.7.2023 07:01
Þrír prestar sakaðir um að nauðga konu reglulega í rúmlega þrjátíu ár Kona á sextugsaldri á spænsku eyjunni Mallorca hefur sakað þrjá presta um að hafa nauðgað sér reglulega í meira en 30 ár. Faðir hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi frá barnæsku. Erlent 9.7.2023 14:30
Ók um á vespu og skaut fólk af handahófi Lögreglan í New York segist hafa handtekið mann sem ók um götur borgarinnar í gær á vespu og skaut á fólk af handahófi. Hann skaut einn 87 ára gamlan mann til bana og særði þrjá aðra. Erlent 9.7.2023 14:19
Þekktur sjónvarpsmaður sendi táningi fé fyrir nektarmyndir Ónafngreindur en vel þekktur sjónvarpsmaður hjá Breska ríkisútvarpinu (BBC) stendur frammi fyrir ásökunum um að hafa borgað táningi fyrir kynferðislegt myndefni. Hann er sagður hafa lagt þúsundir punda inn á reikning stúlkunnar. Erlent 9.7.2023 11:00
Rússar reiðir eftir að Erdogan sleppti verjendum Maríupól Fimm af leiðtogum úkraínskra hermanna í Maríupól fengu í gær að fara frá Tyrklandi til Úkraínu, í fylgd með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Það að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi leyft þeim að fara til Úkraínu hefur reitt yfirvöld í Moskvu til reiði. Erlent 9.7.2023 08:57
Banna teiknimyndina um Bósa Ljósár Nýr meirihluti hægri flokkanna á Spáni hefur bannað sýningu myndarinnar um Bósa ljósár í litlum bæ á Norður-Spáni. Í myndinni sjást tvær konur kyssast eitt augnablik. Erlent 8.7.2023 14:30
Verja klasasprengjusendingar til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði í gær þá ákvörðun sína að senda klasasprengjur til Úkraínu. Hann sagði ákvörðunina erfiða en vopnin eru ólögleg í mörgum löndum heims. Erlent 8.7.2023 14:13
Heimsótti Snákaeyju eftir fimm hundruð daga stríð Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fór nýverið til Snákaeyju á Svartahafi þar sem hann minntist þeirra hermanna sem féllu þar í átökum við Rússa. Þá markaði hann að fimm hundruð dagar eru liðnir frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst og hét því að frelsa öll þau svæði sem Rússar hafa hernumið. Erlent 8.7.2023 09:45
Ríkisstjórn Hollands sprungin Ríkisstjórn Hollands er sprungin vegna ósættis stjórnarflokkana um innflytjendamál. Ríkisstjórnin hefur verið ósammála um hvernig hún eigi að snúa sér í málaflokknum í nokkurn tíma en um eitt og hálft ár er síðan hún tók til starfa. Erlent 7.7.2023 22:41
Bjargaði kúm úr logandi hlöðu Lögreglumaður í Wisconsin ríki í Bandaríkjunum bjargaði á dögunum þremur kúm úr logandi hlöðu. Næturvakt hans var að ljúka þegar hann kom auga á reyk sem kom úr hlöðu á bóndabæ. Hann mætti á vettvang og fór í hlöðuna þar sem hann fann kýrnar fastar. Erlent 7.7.2023 18:56
Biden sendir Úkraínumönnum klasasprengjur Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur samþykkt að sjá Úkraínumönnum fyrir klasasprengjum, sem eru bannaðar í flestum ríkjum heims. Aðstoðin verður veitt á grundvelli undanþáguákvæðis vegna þjóðaröryggis. Erlent 7.7.2023 12:19