Ásgeir Börkur: Nóg komið af útlendingum hjá Fylki Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. október 2014 11:30 Ásgeir Börkur er þekktur fyrir að gefa 110 prósent í hverjum einasta leik. vísir/valli
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðjumaðurinn klettharði sem leikur nú með GAIS í B-deildinni í Svíþjóð, er í stóru viðtali á knattspyrnuvefsíðunni 433.is þar sem hann ræðir veru sína í Svíþjóð og margt fleira. Hann ræðir meðal annnars um sitt uppeldisfélag Fylki sem var nálægt því að stela Evrópusæti í lokaumferð Pepsi-deildarinnar á kostnað Víkings. Árbæjarliðið var í fallbaráttu framan af móti en blandaði sér svo í Evrópubaráttuna undir lok deildarinnar. „Þetta byrjaði ekki vel en þegar Alli [Albert Brynjar Ingason] kemur aftur fer þetta að rúlla og algjörlega lífsnauðsynlegt fyrir klúbbinn að fá Alla til baka enda einn af bestu framherjum deildarinnar á góðum degi,“ segir Ásgeir Börkur. Hann hefur sterkar skoðanir á leikmannamálum félagsins og finnst nóg komið af útlendingum sem koma í Árbæinn og skilja lítið eftir sig. Tveir af þeim þremur erlendu leikmönnum sem Fylkir fékk fyrir tímabilið í sumar voru sendir heim áður en mótið kláraðist. „Mér finnst í fyrsta lagi þessi útlendinga kaupstefna Fylkis fullreynd. Þessi klúbbur hefur allt til alls, við erum með frábæra stúku, frábærar aðstæður og frábært fólk á bak við klúbbinn. Fylkir á ekki að þurfa fara eitthvað út í heim og ná sér í rándýra útlendinga sem þiggja bara pening frá klúbbnum og gefa nákvæmlega ekkert tilbaka,“ segir hann og bætir við: „Það er allt til alls í Árbænum, fullt af ungum og efnilegum leikmönnum í Fylki, gefa þeim tækifæri með meistaraflokki og veita þeim aðhald.“ „Fylkir hefur að mörgu leyti gert þetta vel enda var byrjunarliðið í sumar oft á tíðum eingöngu skipað uppöldum leikmönnum. Það þarf samt meira en að setja þá í treyju og segja þeim að fara út á völl og sparka í átt að sundlauginni,“ segir Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Allt viðtalið má lesa hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segja Viktor læra af þeim besta hjá Barcelona og greina frá næsta félaga hans Handbolti Ernirnir flugu hátt í Super Bowl og rassskelltu meistarana Sport Mikil sorg í hnefaleikasamfélaginu eftir óvænt andlát Sport Kennir í brjósti um Arnór en er líka á förum Enski boltinn Sumarfrí, siðareglur, fleiri varamenn og ekki mismunað eftir þjóðerni Fótbolti Dansari smyglaði inn fánum á sýninguna á Super Bowl Fótbolti Hneyksli í Tyrklandi: Fóru heim í fýlu yfir víti Fótbolti Slot sér ekki eftir því að hafa hvílt stjörnurnar Enski boltinn Lögreglan rannsakar söngva um stunguárás Enski boltinn Unnu Super Bowl á afmælisdaginn Sport Fleiri fréttir Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Sjá meira