Emil notar KSÍ til að losna frá KR 7. október 2014 11:30 Framherjinn Emil Atlason vill losna frá KR Vísir/Arnþór
Framherjinn Emil Atlason hefur leitað til samninganefndar KSÍ til að losna undan samningi sínum við KR. Þetta staðfestir Kristinn Kjærnsted, formaður knattspyrnudeildar KR, en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Forsaga málsins er sú að Emil skrifaði undir tveggja ára samning við KR í febrúar 2012 sem renna átti út nú í október. Sá samningur var með möguleika á einhliða eins árs framlengingu af hálfu KR. Félagið nýtti sér réttinn til framlengingar í apríl á síðasta ári og er Emil því samningsbundinn Vesturbæjarliðinu fram í október á næsta ári. Eftir því sem næst verður komist telja Emil og hans fólk að framlengingin standist ekki lög og vilja rifta henni sem myndi gera það að verkum að Emil væri laus allra mála hjá félaginu nú í október. Samninganefnd KSÍ hefur fengið greinargerðir frá báðum aðilum en ekki niðurstaða liggur ekki fyrir. Emil spilaði fjórtán leiki með KR í Pepsideildinni í sumar og skoraði tvö mörk. Hann hefur hins vegar verið sjóðandi heitur með íslenska U-21 árs landsliðinu, skoraði átta mörk í jafnmörgum leikjum í undankeppni EM 2015 og verður væntanlega í sviðsljósinu þegar Ísland mætir Danmörku í fyrri umspilsleik um sæti á EM á næsta ári í Álaborg á föstudaginn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dagur sló í gegn á sviðinu: „Gefið honum ríkisborgararétt“ Handbolti Valskonur í Eyjum þegar öllu var frestað: „Brast nú út smá hlátur“ Handbolti Pavel rýfur þögnina: „Þetta kemur Keflavík ekkert við“ Körfubolti Ekki komið að kveðjustund hjá Gunnari Nelson Sport Fyrsti sitjandi forsetinn á Super Bowl Sport Franska stórliðið staðfestir komu Dags Handbolti Sonur Jordans handtekinn með kókaín Körfubolti Þunnskipuð og ísköld framlína ekki endilega stærsta vandamál Amorim Enski boltinn Útskýrði af hverju Napoli fékk ekki Garnacho Enski boltinn Ný tækifæri fyrir syni Péturs: „Auðvitað saknar maður þess að vera með þeim“ Körfubolti Fleiri fréttir Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Vigdís Lilja seld til Anderlecht KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Sjá meira