Samninganefnd: Emil samningsbundinn KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. nóvember 2014 14:53 Vísir/Arnþór
Samninganefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli Emils Atlasonar og knattspyrnudeildar KR vegna ágreinings um ákvæði í samnings hans við deildina. Emil skrifaði undir tveggja ára samning við KR í febrúar árið 2012 sem rann út í síðasta mánuði. KR ákvað hins vegar að virkja ákvæði í samningnum um framlengingu til eins árs. Samninganefnd komst að þeirri niðurstöðu að KR hefði verið í fullum rétti og er því samningurinn gildur. „Þjálfarinn [Bjarni Guðjónsson] hefur nú það verkefni á sinni könnu að ræða við leikmanninn,“ sagði Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, í samtali við Vísi. „Það er alveg klárt mál að mínu mati að samningurinn er runninn út. KR-ingarnir vilja meina að þeir hafi átt rétt á að framlengja samninginn án þess að ég hefði neitt um það að segja. Þetta var aldrei útskýrt þannig fyrir mér,“ sagði Emil í samtali við Morgunblaðið þann 23. október og sagðist hann vilja losna frá KR. „Þetta eru auðvitað ekki ákjósanlegar aðstæður en hann er ungur og óharðnaður leikmaður. Við setjumst nú niður og ákveðum framhaldið,“ sagði Kristinn sem sagði að afstaða KR í málinu hafi verið skýr frá fyrsta degi. „Það var svo ekki fyrr en á haustmánuðum fyrr en að við fengum skilaboð frá pabba hans [Atla Eðvaldssyni, fyrrum þjálfara KR] þar sem hann fór að tala um ólöglega framlengingu.“ „En nú er búið að úrskurða að þetta hafi allt saman verið rétt, eins og við töldum ávallt.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Emil notar KSÍ til að losna frá KR Framherjinn Emil Atlason hefur leitað til samninganefndar KSÍ til að losna undan samningi sínum við KR. Þetta staðfestir Kristinn Kjærnsted, formaður knattspyrnudeildar KR, en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. 7. október 2014 11:30 Mest lesið „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Íslenski boltinn „Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“ Körfubolti Asensio skaut Villa áfram Enski boltinn „Óafsakanlegt hvernig við mættum til leiks“ Körfubolti Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti Albert kom við sögu í naumum sigri Fótbolti „Ákveðnir í því að gefa þeim enga von“ Körfubolti Embiid frá út leiktíðina Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti Fleiri fréttir Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? Sjá meira
Emil notar KSÍ til að losna frá KR Framherjinn Emil Atlason hefur leitað til samninganefndar KSÍ til að losna undan samningi sínum við KR. Þetta staðfestir Kristinn Kjærnsted, formaður knattspyrnudeildar KR, en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. 7. október 2014 11:30
Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti