Skoðun

Gunnar Nelson, fegurðin og kappið

Bjarni Karlsson skrifar
Fréttaveita Vísis gerði fésbókarstöðufærslu mína um Gunnar Nelson að umtalsefni sl. mánudag í grein sem nefndist Klerkur líkir bardaga Gunnars Nelsons við klám. Mig langar að fylgja þessu máli örstutt eftir.

Við megum vera stolt af Gunnari Nelson. Hann ber með sér allt sem góðan íþróttamann prýðir; hógværð og háttvísi, ögun og einbeitni. Persóna hans sýnir að sönn íþrótt varðar fyrst sigur iðkandans yfir sjálfum sér. Allt annað kemur á eftir.

Sá sem keppir gerir það auk þess alltaf í samanburði við aðra hvort heldur keppt er í hraða, hittni, fimi, líkamlegri yfirbugun eða hverju öðru.

Fegurðinni fórnað

Séra Friðrik sem stofnaði Val lagði áherslu á það við sína drengi að láta ekki kappið bera fegurðina ofurliði og hefur það orðið mörgum að leiðarljósi.

Ég hef nú horft á allmarga UFC-bardaga og þar þykir mér fegurðinni fórnað fyrir kappið. Þá er ég ekki að segja að iðkun fjölbragðaglímu hljóti alltaf að fela í sér ljótleika eða að starf Mjölnis og annarra félaga sem kenna fólki glímutök sé rangt. Ég held raunar að bardagaíþróttir séu mikilvægar og gott fyrir allt fólk að iðka þær.

Mér þykir þessi tiltekna íþróttakeppni eins og hún birtist almenningi í fjölmiðlum þó ekki bera með sér þá fegurð sem ég tel að eigi að fylgja íþróttum. Ljótleikinn í þessu er sá að í stað þess að leggja andstæðinginn með glímubrögðum er hann afmennskaður með höggum og spörkum svo bein jafnvel brotna og menn berjast og verjast í blóði sínu uns annar liggur við þröskuld örkumlunar á meðan áhorfendaskarinn fagnar.

Klámgildið

Þar er komin tengingin við klámið sem jafnframt mun vera eitt vinsælasta netefni okkar nútíma. Klám er lýsing á kynferðislegu samneyti þar sem fegurðin er ofurliði borin. Ég velti því s.s. fyrir mér hvort vinsældir UFC-keppninnar standi í samhengi við klámgildi hennar í þeim skilningi að á sama hátt og klám rænir kynferðisleg samskipti fegurð sinni ræni UFC-keppnin íþróttina sinni fegurð. Eftir stendur greddan og kappið, hvort tveggja gott og gilt en ófullnægjandi eitt og sér.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×