„Hvítir drepa ekki hvíta“ Samúel Karl Ólason skrifar 25. október 2018 21:46 Gregory Bush fór fyrir dómara í dag, sem sagði hann vera ógn við samfélagið. AP/Scott Utterback
Maður sem sakaður er um að hafa myrt tvo í matvöruverslun í Kentucky í Bandaríkjunum í gær, hlífði manni í búðinni og sagði, samkvæmt vitni: „Hvítir drepa ekki hvíta“. Bæði fórnarlömb hans voru svört og skömmu áður en hann byrjaði að hleypa af skotum hafði hann reynt að komast inn í kirkju í bænum Louisville sem er að mestu sótt af þeldökkum íbúum. Árásarmaðurinn heitir Gregory Bysh og er 51 árs gamall. Fórnarlömb hans hétu Maurice Stallard, 69 ára, og Vicki Lee Jones, 67 ára. Bush hefur verið ákærður fyrir tvö morð og fyrir að stofna lífi tíu manns í hættu.Samkvæmt héraðsmiðlinum Wave3 News gekk Bush inn í Kroger-matvöruverslun og skaut þar Stallard í hnakkann með skammbyssu. Þá skaut hann Stallard nokkrum sinnum til viðbótar, stakk byssunni aftur í hulstur sem hann var með og gekk svo út. Þar dró hann byssuna aftur á loft og skaut Jones margsinnis á bílastæðinu við verslunina.Eftir það reyndi almennur borgari, sem einnig var vopnaður að stöða Bush. Þá hóf Bush skothríð sem lögreglan segir að hafi ógnað lífi borgara á svæðinu. Á meðan á þessu stóð sagði vitni við Wave3 News að faðir hans hefði átt stutt samskipti við hinn vopnaða Bush. Hann hafi hlíft manninum og sagt að hvítir menn dræpu ekki hvíta menn.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Innlent Fleiri fréttir Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sjá meira