Martin Hermannsson gerði mikið fyrir liðsfélaga sína þegar Alba Berlin tapaði naumlega fyrir Anadolu Istanbul í framlengdum leik í EuroLeague.
Martin skoraði aðeins fjögur stig sjálfur í leiknum, sem Berlin tapaði 106-105 eftir framlengingu. Hann gaf hins vegar 11 stoðsendingar á liðsfélaga sína á þeim 20 mínútum sem hann spilaði.
Leikurinn var mjög jafn og spennandi, eins og gefur að skilja þar sem þurfti að framlengja, en í hálfleik voru heimamenn í Istanbul þremur stigum yfir 43-40. Eftir fjóra leikhluta var staðan 95-95.
Þetta var annar leikur Alba í EuroLeague þennan veturinn og sá fyrsti sem tapaðist eftir sigur í fyrsta leik.
Naumt tap eftir framlengingu hjá Martin og félögum
Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar

Mest lesið





„Við völdum okkur ekki andstæðinga“
Handbolti

Glórulaus tækling Gylfa Þórs
Íslenski boltinn




Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“
Íslenski boltinn