Sport

Fabregas tapaði veðmáli gegn Caballero og þurfti að kaupa handa honum Range Rover

Anton Ingi Leifsson skrifar
Fabregas og Caballero í leik með Chelsea.
vísir/getty

Cesc Fabregas, nú miðjumaður Mónakó í Frakklandi, en fyrrum leikmaður meðal annars Chelsea sagði frá skemmtilegri sögu á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi.

Fabregas sagði að eftir æfingu Chelsea árið 2018 hafi hann ákveðið að taka nokkrar vítaspyrnur. Hann hafi iðulega veðjað við markverðina og þennan dag árið 2018 hafi hann veðjað við Willy Caballero.

Fabregas hafði ekki klikkað mörgum spyrnum svo hann sagði við Willy að hann fengi Range Rover ef hann myndi verja frá honum. Allt liðið var að horfa á spyrnuna en Fabreags brást bogalistinn.

Leikmönnum Chelsea fannst það ansi skemmtilegt og því þurfti Fabregas að standa við stóru orð sín. Hann fann ónýtan Range Rover, borgaði 950 pund fyrir hann og daginn eftir var hann mættur á æfingasvæði Chelsea.

Caballero var himinlifandi með bílinn þangað til að hann sá að það var sprunga í rúðunni og síðar kom í ljós að bíllinn var ekki upp á sitt besta.

Fabregas er nú á mála hjá Mónakó en Caballero er enn í herbúðum Chelsea.

View this post on Instagram

So, after a player already told the story to the press of what happened one day in 2018 and many people asked me if it s true, there we go. Many times for many years after training, I stay a little bit longer to take some penalties. I always made little bets with the goalkeepers to put a bit of spice into the challenge. For some reason, I never really missed one. So one day i got too confident and it got a of out of hand. It was Willy Caballero s turn and I told him that if he saved it I d get him a Range Rover. Unfortunately for me, he saved it in front of the whole team so you can imagine how it went... I went from feeling the most confident, to feeling the most stupid guy on earth . Everybody obviously was shouting and laughing that I had to pay my debt. I went to a scrapyard and I found a destroyed Range Rover that couldn t be used at all for £950 so I said, you know what? I ll get that. The next day they brought it to the training ground and well... I ll show you the rest on a video. The lesson of the story is: Don t bet at all at any cost. @willycaba

A post shared by Cesc Fàbregas (@cescf4bregas) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×