Selja allar sínar veraldlegu eigur og byrja á núllpunkti Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 10. janúar 2022 21:31 Guðmundur Aðalsteinn Þorvarðarson og Vilhjálmur Jón Guðjónsson í blómabúðinni Barónessunni á Barónsstíg. Vísir/Vilhelm Guðmundur Aðalsteinn Þorvarðarson og Vilhjálmur Jón Guðjónsson hafa ákveðið að loka blómabúðinni Barónessunni á Barónsstíg eftir tveggja ára rekstur. Þeir ætla að skilja við allt sitt veraldlega á þessu ári og njóta lífsins, við hvað er þó enn óvíst.
Guðmundur hefur verið blómakaupmaður í tugi ára en hann lauk námi í blómaskreytingum frá Iðnskólanum í Osló árið 1985. Síðan þá hefur hann brasað við ýmislegt, hann átti og rak blómabúð í Osló í 13 ár og rak svo Ráðhúsblóm í Bankastræti í átta ár. Eftir það fluttu þeir Vilhjálmur til Suður-Afríku þar sem þeir bjuggu og störfuðu í tíu ár áður en þeir sneru aftur heim og stofnuðu Barónessuna. Reksturinn hófst með miklum látum og gekk vel framan af en í september fékk Guðmundur alvarlegt hjartaáfall, sem fékk hann til að endurmeta stöðuna. Guðmundur segir ekkert ákveðið um hvað taki við hjá þeim hjónum.Vísir/Vilhelm „Við vorum einir í miðborginni þegar við byrjuðum þarna á Barónsstíg. Það eru núna fjórar blómabúðir í göngufæri frá okkur og svo er ég búin að vera í fjörutíu ár í blómabissness og það er bara kominn tími til að slappa aðeins af,“ segir Guðmundur. Barónessan opnaði í október 2019 og var þá nóg að gera hjá þeim Vilhjálmi. „Það sem ég hélt að yrði hæg uppbygging varð stormur. Ég hélt þetta yrði dúll á mér einum en svo vorum við fjögur og höfðum næg verkefni en það hefur bara þynnst út. Það er voðalega gott að vera sjálfur bílstjórinn en leyfa ekki bankanum eða skattinum að taka ákvörðun fyrir mann. Við tókum bara þá ákvörðun að selja húsnæðið og skipta okkur ekkert af því hvað kæmi þar í staðin,“ segir Guðmundur. Selja allt sem þeir eiga En hvað tekur þá við hjá þeim Vilhjálmi? „Frí. Við erum að gera mjög óvenjulega hluti fyrir menn á okkar aldri, við erum búnir að selja heimilið okkar líka og við erum að selja allt innbúið okkar. Þannig að við erum að losa okkur við allt veraldlegt sem heldur manni,“ segir Guðmundur, sem segir þó öruggt að þeir Vilhjálmur muni ferðast eitthvað. „Við lærðum það af starfsfólkinu okkar í Suður-Afríku að sumt þeirra átti ekki borð og stóla en þetta var hamingjusamt fólk og við hugsum okkur að við séum menntskælingar, nýbúnir með stúdentspróf á leið út í heiminn. En núna eigum við fjármuni til að lifa því lífi vel.“ Guðmundur og Vilhjálmur hafa rekið Barónessuna í rúm tvö ár. Vísir/Vilhelm Það sé þó erfitt að kveðja allar sínar veraldlegu eigur. „Þetta er ákveðinn prósess að kveðja hlutina. Ég á til dæmis borðstofuborð sem ég hef átt í fimmtíu ár og er frá átjándu öld og það er dálítið tilfinningaríkt að kveðja en þetta er prósessinn sem við erum í, að losa okkur við þessar eigur,“ segir Guðmundur. Nú byrji þau hjónin aftur á núllpunkti, eftir tugi ára á vinnumarkaði. Þeir séu enn ekki búnir að ákveða hvað taki við, þó þeir séu að losa sig við allar sínar eigur. „Þó við höfum verið giftir í 25 ár eigum við sitthvorn drauminn, minn draumur hefur verið að búa í sveit hérna heima á Íslandi, ég fékk eiginlega alveg nóg af sól og 40 stiga hita í Suður-Afríku. En við erum hjón og tökum ákvörðun saman um framtíðina, hvernig sem verður. Framtíðin er óskrifað blað og árið 2022 verður spennandi.“
Reykjavík Tímamót Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira