Lífið

Gagn­rýnir inni­halds­efnin í matnum sem börnin fá: „Mér vægast sagt brá“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sólveig ásamt börnunum sínum tveimur. Þau mæta alltaf með mat að heiman í skólann.
Sólveig ásamt börnunum sínum tveimur. Þau mæta alltaf með mat að heiman í skólann.

Er maturinn í grunnskólum borgarinnar gjörunninn? Iðjuþjálfinn Sólveig Kristín Björgólfsdóttir hefur vakið gríðarlega athygli fyrir skrif sín og gagnrýni á skólamat barnanna í grunnskólum borgarinnar.

Gagnrýni Sólveigar kemur einna helst fram á Instagram-síðu hennar.

Það geta foreldrar til að mynd sent henni skilaboð um matinn sem boðið er upp á í grunnskólum borgarinnar og á öllu landinu.

Mæta með mat í skólann

Sólveig og maður hennar Páll Aðalbjörnsson segjast neyðast til að búa til allan mat barnanna heima og senda svo matinn með í skólann því þau eru ekki sátt við að í skólamatnum eru svo mörg ónauðsynleg aukaefni sem ekki eru góð fyrir þau.

Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og hitti Sólveigu í síðustu viku.

„Þegar krakkarnir mínir fóru í grunnskóla hérna á Seltjarnarnesinu og Skólamatur tók við þá var ég pínu forvitin því við fórum sjálf í svo mikla vegferð eftir mín heilsufarsvandamál. Að fara í gengum hvað við erum að borða og hvað við erum að setja í matinn,“ segir Sólveig sem fór í kjölfarið að skoða vefsíðu Skólamats og hvað væru innihaldsefnin í matnum sem í boði var.

„Mér vægast sagt brá af því að ég get ekki séð að þetta teljist sem eitthvað annað en gjörunninn matvæli,“ segir Sólveig en þá nefnir hún til sögunnar allskyns aukaefni, gerviefni og fleira í innslaginu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.