Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi á Seyðisfirði Lovísa Arnardóttir skrifar 19. maí 2025 12:48 Björgunarsveitarmenn við störf í mynni Patreksfjarðar. Landsbjörg Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum.
Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg að útkallið á Seyðisfirði hafi komið upp úr klukkan eitt hafi borist tilkynning frá fólkinu sem hafi verið á siglingu á litlum skemmtibát. Bátnum hafði á einhvern hátt hvolft og fólkið sem var um borð, fimm manns, komist á kjöl bátsins. Björgunarsveitin Ísólfur hafi brugðist við þessu og sjósett björgunarbát, Björgunarskipið Hafbjörg á Neskaupstað auk smærri björgunarbáts björgunarsveitarinnar Gerpis á Neskaupstað. Auk þess var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kölluð út. Um tuttugu mínútum eftir útkall var búið að bjarga öllum skipverjum um borð í björgunarbát Ísólfs, Árna Vilhjálmsson og var þá öðrum snúið við, skipum, bátum og þyrlu samkvæmt tilkynningu Landsbjargar. Fólkið var samkvæmt tilkynningu flutt í land og varð ekki meint af þessu óhappi. Í kjölfarið fór áhöfn Árna Vilhjálms aftur á slysstað og náði að koma bátnum á réttan kjöl og draga til hafnar. Aðgerðum í Seyðisfirði var lokið upp úr þrjú í nótt. Fjögur útköll vegna strandveiðibáta Síðar, í morgun, bárust svo með skömmu millibili fjögur útköll vegna strandveiðibáta í vandræðum. Fyrsta útkallið var vegna báts í Faxaflóa, skammt undan Syðra Hrauni, sem hafði orðið fyrir vélarbilun. Skipverji þurfti að drepa á vél bátsins ella hefði sjór flætt inn. Björgunarbáturinn Margrét Guðbrands frá Björgunarfélagi Akraness fór á vettvang og tók bátinn í tog og fer með hann til Akraness. Annað útkallið barst um tíu mínútum síðar vegna báts í Ísafjarðardjúpi sem var án vélarafls. Björgunarsveitin Kofri fór í það verkefni á nýjum björgunarbát sveitarinnar, Svan, og eru skipin nú í mynni Ísafjarðardjúps á leið til lands. Björgunarskipið Vörður II r nú á leið til hafnar á Patreksfirði í þéttri þoku en með fiskibátinn í togi.Landsbjörg Klukkutíma síðar, eða rétt upp úr klukkan átta, barst svo beiðni frá litlum fiskibát í mynni Patreksfjarðar, enn á ný vegna vélarbilunar. Björgunarskipið Vörður II hélt þegar út til aðstoðar og er nú á leið til hafnar á Patreksfirði samkvæmt tilkynningu í þéttri þoku en með bátinn í togi. Og rétt um níu í morgun barst svo fimmta útkallið, þegar áhöfn Hannesar Þ Hafstein, björgunarskipsins í Sandgerði var kölluð út vegna lítils fiskibáts sem staddur var vestur af Syðra Hrauni með bilaða vél.
Björgunarsveitir Sjávarútvegur Múlaþing Vesturbyggð Akranes Ísafjarðarbær Suðurnesjabær Mest lesið Afdrif Hörpunnar enn á huldu Innlent RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Innlent Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Erlent Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Innlent „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Innlent Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Innlent Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Innlent Hnúfubakur í banastuði í Hvalfirði Innlent Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Innlent Verði að kunna íslensku til að geta hjúkrað Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur í banastuði í Hvalfirði Steinn verður reistur við og brúin yfir Mógilsá löguð RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi „Skiptir máli að við séum öll að tala sama tungumál“ Göngubrúin sett upp í nótt og Sæbrautin lokuð á meðan Brýna fyrir eigendum að skilja hunda ekki eftir í bílum Hársbreidd frá hitameti í borginni Grindvíkingar fá að gista heima í sumar og hjúkrunarfræðingar vilja hertar reglur „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Forsetahjónin á leið á heimssýninguna í Japan Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Vill að háskólinn laði til sín landflótta fræðimenn frá Bandaríkjunum Afdrif Hörpunnar enn á huldu Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Verði að kunna íslensku til að geta hjúkrað Tveir menn handteknir eftir að hafa komið sér fyrir í sameign húss Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Sjá meira