Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. janúar 2026 11:14 J.D Vance ætlar að sitja fundinn. EPA/WILL OLIVER Lars Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur og Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra Grænlands funda með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna á morgun í Washington D.C og hefur J.D. Vance varaforseti einnig óskað þess að sitja fundinn.
Danska ríkisútvarpið greinir frá þessu. Þar segir að fundurinn fari því fram í Hvíta húsinu en Rasmussen ræddi málið við danska fréttamenn fyrir skömmu. Varaforsetinn verði því gestgjafi. Ráðherrann sat í morgun fund í utanríkismálanefnd danska þingsins vegna málefna Grænlands en líkt og komið hefur fram hafa bandarískir ráðamenn ítrekað lýst því yfir að þeir telji að Bandaríkin eigi að ná yfirráðum í landinu. Danski miðillinn segir að það sæti mikilla tíðinda að varaforsetinn hafi óskað eftir því að sitja fundinn. Það auki mikilvægi hans til muna og sýni fram á alvarleika málsins. Vance hefur verið einn helsti gagnrýnandi Danmerkur í ríkisstjórn Trump og meðal annars sagt fullum fetum að Danmörk sé slæmur bandamaður Bandaríkjanna. Rifjar danska ríkisútvarpið það upp þegar Vance tók Volodomír Selenskí Úkraínuforseta á teppið á fundi með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á síðasta ári. Løkke fari því líklega með þandar taugar á fundinn. Þá er einnig greint frá því að Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra Danmerkur hafi óskað eftir því að funda með Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO á mánudag í Brussel. Aðrir danskir miðlar fara einnig mikinn vegna þeirra tíðinda að Vance muni sitja fundinn. TV2 fullyrðir og hefur eftir Sofie Rud fréttaskýranda að þetta séu einfaldlega slæm tíðindi fyrir Danmörku. „Nú er eldvörpunni J.D. Vance bætt við í blönduna og hann gerður að gestgjafa, þannig það getur allt gerst.“
Danmörk Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira