„Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands“ Smári Jökull Jónsson skrifar 7. mars 2026 13:01 Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor fór yfir stöðu mála varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB. Prófessor í stjórnmálafræði segir skotgrafir í Evrópusambandsrumræðu virkilega djúpar og að búast megi við harkalegri umræðu á Alþingi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við sambandið.
Forystukonur ríkisstjórnarflokkanna tilkynntu í gær að eftir helgi verði lögð fram þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu og fer atkvæðagreiðslan fram 29. ágúst næstkomandi. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir Ísland standa sterkara gagnvart ESB núna en þegar farið var í aðilarviðræður eftir efnahagshrunið og ástæðurnar séu ekki bara Íslands. „Evrópusambandið hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum og það hefa verið aðildarviðræður við ríki sem eru mun fátækari heldur en Ísland og standa miklu veikari í lýðræði og öðru slíku. Þær hafa reynt á sambandið þannig að ég hygg að að bandalagið finnist ágætt að taka við ríki eins og Íslandi, sem er efnahagslega sterkt og með traustan, lýðræðislegan grundvöll,“ sagði Eiríkur í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er ágætis ára fyrir Evrópusambandið núna að taka við Íslandi meðan að Ísland leit út fyrir að vera baggi síðast,“ en Ísland hóf viðræður við sambandið um aðild fyrst árið 2009 áður en þær voru settar á ís í tíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem forsætisráðherra. „Evrópusambandið hefur meiri hag núna að mæta óskum Íslands“ Þá geri landfræðileg lega Íslands það að verkum að ESB sjái ávinning fólgin í að teygja sig til Íslands í ljósi breyttra aðstæðna í öryggismálum álfunnar og heimsins. „Það að Evrópusambandið er að taka til sín öryggismálin í miklu meira mæli heldur en áður, það gerir það að verkum að að Evrópusambandið telur ákveðinn ávinning fólgin í því að teygja sig til Íslands í svona landfræðilegu tilliti. Þannig að Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands heldur en það hafði árið 2009.“ Öryggismálin séu að breytast. „Það er verið að endurraða öllum aðþjóðastjórnmálum á þessu öðru kjörtímabili Donalds Trump.“ Formaður Miðflokksins útilokaði í gær að málið myndi hljóta skjóta meðferð á þingi og Eiríkur segir að málið gæti reynst erfitt fyrir ríkisstjórnina á þingi en sagði tímaramma stjórnarinnar ekki óraunhæfan. Ríkisstjórnin hafi sýnt að hún sé tilbúin að setja tímaramma fyrir umræður. „Skotgrafirnar í Evrópusambandsumræðunni á Íslandi eru bara virkilega djúpar og menn stökkva beint ofan í þær beggja vegna víglínunnar. Þannig að það má alveg gera ráð fyrir mjög harkalegri umræðu sem mun dragast og jafnvel að einhverjir freistist til þess að taka málið í gíslingu í einhvers konar málþófi. Þá fer þetta í klassíska störukeppni á milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Báðir aðilar gætu séð hag í slíku ástandi gagnvart sínum kjósendum.“ Segir grundvallarmun á stöðu Flokks fólksins nú og VG árið 2009 Vitað mál er að ríkisstjórnarflokkarnir þrír eru ekki sammála í afstöðu sinni um aðild að ESB. Í stjórnarsáttmálanum var samið um að fara þjóðaratkvæðagreiðsluna sem nú stendur fyrir dyrum en Eiríki sýnist ekki að þessi skoðanamunur innan stjórnarinnar gæti orðið henni til trafala. „Það er grundvallarmunur á þingmönnum Flokks fólksins í þessu máli nú og var meðal þingmanna Vinstri grænna á sínum tíma sem að voru í aktívri andstöðu gegn ferlinu sem þá var. Svo virðist sem að þingmenn Flokks fólksins hafi fallist á þessa niðurstöðu að vísa málinu til þjóðarinnar. Það var ekki gert á sínum tíma.“ „Þannig að það er algjörlega lögmæt pólitísk afstaða þingmanns, að jafnvel þó að hann sé andvígur aðild að Evrópusambandinu, þá fallist hann á að það sé þjóðin sem að ráði í því máli og styðji þess vegna þjóðaratkvæðagreiðsluna sem slíka.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Alþingi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Sjá meira