Óttast að landsliðskonur verði stimplaðar föðurlandssvikarar Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. mars 2026 15:15 Landsliðið á von á vondu ef fyrirmælum sjónvarpsmannsins er fylgt eftir. Albert Perez/Getty Images Kvennalandslið Íran í fótbolta keppti á Asíumótinu í gærkvöld og landsliðskonurnar ákváðu að taka ekki undir þegar íranski þjóðsöngurinn var spilaður. Lýsandi leiksins í ríkissjónvarpinu segir þær svíkja föðurlandið á stríðstímum og leikmannasamtökin hafa miklar áhyggjur af ummælunum.
Þjóðsöngurinn var saminn þegar klerkastjórnin tók við valdataumum í Íran árið 1979. Með því að taka ekki undir þjóðsönginn eru landsliðskonurnar sagðar mótmæla klerkastjórninni sem Bandaríkin og Ísrael standa nú í stríði við og vilja steypa af stóli. „Ég þarf bara að segja eitt. Svikarar á stríðstímum verða að svara fyrir sínar gjörðir,“ sagði lýsandi leiksins í íranska ríkissjónvarpinu þegar þjóðsöngurinn hljómaði en enginn leikmaður tók undir. „Þetta eru ekki lengur táknræn mótmæli eða eitthvað svoleiðis. Á stríðstímum, eins og sakir standa núna… Að syngja ekki þjóðsönginn er einhver mesta vanvirðing og svik við föðurlandið sem hægt er að hugsa sér. Fólkið og ráðamenn í landinu ættu að meðhöndla þetta mál þannig, að þær séu svikarar á stríðstímum, ekki horfa á þetta sem einhvers konar mótmæli eða táknrænan gjörning,“ hélt lýsandinn áfram. Leikmannasamtökin FIFPRO og asíska knattspyrnusambandið AFC hafa lýst yfir miklum áhyggjum af stöðunni í ljósi þessara ummæla í opinberri ríkisútsendingu. Þau hafa biðlað til alþjóða knattspyrnusambandsins FIFA að skerast í málið og tryggja að landsliðskonurnar geti snúið aftur heim til Íran án þess að þurfa að óttast stjórnvöld þar í landi. Ljóst er nefnilega að ef fyrirmælum sjónvarpslýsandans verður fylgt eftir og landsliðskonurnar verða stimplaðar sem svikarar á stríðstímum mun það hafa alvarlega afleiðingar fyrir þær.
Fótbolti Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira