Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2026 07:46 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Vísir/Lýður Valberg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu.
Þannig myndi Ísland taka fram úr ríkjum eins og Svartfjallalandi sem hafa verið í aðildarviðræðum um árabil. Í viðtali við Politico sem birt var í morgun vísar Þorgerður til þess að Ísland sé með EES-samninginn og því séu mörg af lögum ESB þegar lög hér. Taki Íslendingar þá ákvörðun að hefja viðræður á nýjan leik gæti ferlið tekið tiltölulega lítinn tíma. Þá sagði ráðherrann að stærsta hindrunin þegar kemur að inngöngu Íslands væri, „auðvitað“, fiskveiðistjórnun. Embættismaður innan ESB sló á svipaða strengi og Þorgerður í nýlegu viðtali við Politico og sagði að viðræðurnar gætu tekið eitt ár. Því til stuðnings er bent á að Ísland hafi þegar lokað ellefu af 33 samningsköflum ESB. Svartfjallaland náði nýverið þeim sama áfanga eftir margra ára viðræður. Kostir inngöngu heilli Íslendinga Þorgerður ítrekaði í viðtalinu að ef Íslendingar samþykkja viðræður í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst muni verða haldin önnur atkvæðagreiðsla að viðræðum loknum, takist yfir höfuð að klára þær, um aðild að Evrópusambandinu. Hún sagði að með atkvæðagreiðslunni væri verið að færa völdin í hendur þjóðarinnar en sagði að það væri bæði í hag Íslands og ESB að viðræðurnar ættu sér stað núna en ekki eftir tvö ár eða seinna en það. Þá sagði hún að kostir þess að ganga í ESB á þessum óvissutímum á alþjóðasviðinu heilluðu suma Íslendinga og sömuleiðis væri mikilvægt fyrir viðskiptalíf Íslands að komast í var í sambandinu. Þorgerður sagði að Ísland myndi hagnast bæði efnahagslega og öryggislega á inngöngu í Evrópusambandið. „Við höfum alltaf hærri verðbólgu og vexti en önnur ríki Evrópu og það er of mikil fákeppni í hagkerfinu,“ sagði Þorgerður. Uppfært: Fréttinni hefur verið breytt vegna mistaka. Fyrst stóð í fréttinni að Ísland gæti orðið aðili að ESB á einu og hálfu ári. Það var misskilningur en Þorgerður sagði í viðtalinu að viðræðum gæti verið lokið á einu og hálfu ári.
Evrópusambandið Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira