Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2026 14:04 Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Vísir/Vilhelm Forseti Íslands telur brýnt að landsmenn séu meðvitaðir um áhrif tækni á lýðræðið og skoðanamyndun í aðdraganda tveggja mikilvægra kosninga á þessu ári. Brýnt sé að búa til ramma um ábyrga notkun gervigreindar.
Áhrif samfélagsmiðla og gervigreindar á lýðræðislega umræðu og ferla er umfjöllunarefni Höllu Tómasdóttur forseta í aðsendri grein sem birtist á Vísi í dag. Hún segir að gervigreindartæknibylting sem nú stendur yfir kalli á ígrundun. Reynslan sýni að afleiðingarnar geti orðið allt aðrar en steft en er að þegar ný tækni er þróuð án ábyrgðar og samtals. „Þar nægir að nefna þróun samfélagsmiðla, sem áttu að efla tengsl milli fólks og jafnvel lýðræðislega þátttöku, en hafa jafnframt haft ýmis neikvæð áhrif á andlega líðan almennings, ekki síst barna og unglinga, traust í samfélaginu og opinbera umræðu,“ skrifar forsetinn. Fólk virðist fyrir vikið eiga erfiðara með að eiga yfirvegað samtal um flókin málefni. Umræðan eigi sér að mestu stað á vef- og samfélagsmiðlum. Hún verði iðulega hvöss og persónuleg enda sé þátttakendum umbunað fyrir upphrópanir frekar en ígrundun. „Gervigreindin hefur burði til að magna þessi neikvæðu áhrif enn frekar. Hún getur á andartaki framleitt efni sem virðist trúverðugt en er villandi, dreift óstaðfestum upplýsingum með ógnarhraða og haft áhrif á skoðanir okkar og líðan með hætti sem við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir.“ Kosningar kalli á yfirvegaða og heiðarlega umræðu Halla setur þetta í samhengi við sveitarstjórnarkosningar sem fara fram í næsta mánuði og þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið sem stefnt er á að fari fram í ágúst. Þær mikilvægur ákvarðanir kalli á yfirvegaða og heiðarlega umræðu. „Það er brýnt að við séum meðvituð um áhrif tækninnar á lýðræðislega ferla og skoðanamyndun og setjum henni skýran ramma þar sem við á,“ skrifar forsetinn en bendir jafnframt á að hægt sé að beisla tæknina til bættrar þjónustu og aukinnar þekkingar. Brýnt sé að samfélagið móti sér skýra stefnu um ábyrga og gagnlega notkun gervigreindar. Hún þurfi að ná til menntakerifisins, hugverkaréttar og hagnýtingar á verkum skapandi einstaklinga. „Slík stefna þarf einnig að standa vörð um persónuvernd og mannréttindi og síðast en ekki síst að tryggja varðveislu lýðræðisins,“ skrifar Halla.
Gervigreind Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Sveitarstjórnarkosningar 2026 Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira