Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. maí 2026 19:30 Donald Trump varði deginum í að spila golf. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt.
Reuters greinir frá og hefur eftir háttsettum írönskum embættismanni. Samkvæmt tillögunni yrði stríðinu lokið og með tryggingu fyrir því að Ísrael og Bandaríkin myndu ekki ráðast aftur á Íran. Þá segir embættismaðurinn að Íranir hafi einnig lagt til að ræða úransauðgun sína seinna, eitthvað sem Trump vill ólmur stöðva. Þeir krefjast þó þess að Bandaríkjamenn viðurkenni rétt sinn til að auðga úran í friðsamlegum tilgangi. Trump hefur ítrekað sagt að Íranir megi ekki búa til né eiga kjarnorkuvopn auk þess sem hann væri ósattur við nýjustu tillögu þeirra. „Þeir eru ekki að koma með samkomulag sem við þurfum. Við ætlum að gera hlutina almennilega, við ætlum ekki að fara snemma og eiga síðan í vandræðum aftur eftir þrjú ár,“ sagði Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær. Á blaðamannafundinum var einnig til umræðu hvort forsetinn þyrfti nú leyfi frá Bandaríkjaþingi til að framlengja stríðið en bandarísk lög segja að forsetinn þurfi samþykki þings fyrir áframhaldandi stríðsrekstri sextíu dögum eftir að tilkynning um slíkan rekstur barst. Trump taldi sig þó ekki þurfa slíkt leyfi þar sem stríðsrekstrinum í Íran hefði í raun lokið þegar samið var um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran í byrjun apríl. Fjórar vikur eru liðnar síðan Ísraelar og Bandaríkjamenn hættu árásum sínum á Íran og boðað var tveggja vikna vopnahlé. Þó er enn ekki komið samkomulag um að binda enda á stríðið og hefur fjöldi ríkja fundið fyrir því. Íranir hafa lokað fyrir umferð um Hormússund en fimmtungur af allri olíu er fluttur um sundið. Að sama skapi hafa Bandaríkjamenn komið á herkví við strendur Írans.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira