Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. maí 2026 08:47 Já eða Nei... það er spurningin. Getty Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur til breytingar á tillögu utanríkisráðherra að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið og að svarmöguleikarnir verði einfalt „Já“ eða „Nei“. Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir í umsögn sinni um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu að það sé mat meirihlutans að stoðum hafi ekki verið rennt undir þá fullyrðingu að draga verði í efa að umsókn Íslands um aðild að ESB sé enn í gildi. Bent er á að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi staðfest þann skilning stjórnvalda á Íslandi að umsókn Íslands sé enn í gildi. Hins vegar þurfi einnig að horfa til þess að gild umsókn feli ekki í sér vissu um að hægt verði að hefja viðræður þar sem frá var horfið, það er að segja að unnt sé að viðhalda afrakstri aðildarviðræðnanna sem fram fóru á árunum 2009 til 2013. Nefndin skoðaði tvær útfærslur á spurningunni, annars vegar þá sem meirihlutinn leggur til og hins vegar þá sem minnihlutinn leggur til, eins og sjá má hér fyrir neðan. Orðalag spurninganna var lagt undir landskjörstjórn, sem lagði blessun sína yfir báðar útgáfur og sagði þær uppfylla skilyrði um skýrleika, skiljanleika og hlutleysi. Upphafleg tillaga utanríkisráðherra: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Tillaga meirihlutar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Já Nei Tillaga minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?“ Já Nei Meirihlutinn hafnaði þeirri útgáfu sem minnihlutinn styður á þeirri forsendu að hún gefi til kynna að viðræður séu á upphafsreit og að jafnvel að Ísland þurfi að sækja um á ný. Segir í umsögn meirihlutans að mikilvægt sé að spurningin vísi í fyrri aðildarviðræður, án þess að afstaða sé tekin til stöðu þeirra. Samkvæmt umsögn minnihlutans vill hann bæði fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni frá 29. ágúst til 17. október og breyta spurningunni. Minnihlutinn segist sannarlega sammála orðalaginu í spurningu utanríkisráðherra, að verið sé að ganga til viðræðna „á ný“, en túlkar það ólíkt. Það er að segja á meðan ráðherra geri ráð fyrir að verið sé að hefja gamlar viðræður á ný, telji minnihlutinn að um nýjar viðræður sé að ræða þar sem aðildarumsóknin frá 2009 hafi sannarlega verið dregin til baka. Umsögn meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Umsögn minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir í umsögn sinni um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu að það sé mat meirihlutans að stoðum hafi ekki verið rennt undir þá fullyrðingu að draga verði í efa að umsókn Íslands um aðild að ESB sé enn í gildi. Bent er á að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi staðfest þann skilning stjórnvalda á Íslandi að umsókn Íslands sé enn í gildi. Hins vegar þurfi einnig að horfa til þess að gild umsókn feli ekki í sér vissu um að hægt verði að hefja viðræður þar sem frá var horfið, það er að segja að unnt sé að viðhalda afrakstri aðildarviðræðnanna sem fram fóru á árunum 2009 til 2013. Nefndin skoðaði tvær útfærslur á spurningunni, annars vegar þá sem meirihlutinn leggur til og hins vegar þá sem minnihlutinn leggur til, eins og sjá má hér fyrir neðan. Orðalag spurninganna var lagt undir landskjörstjórn, sem lagði blessun sína yfir báðar útgáfur og sagði þær uppfylla skilyrði um skýrleika, skiljanleika og hlutleysi. Upphafleg tillaga utanríkisráðherra: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Tillaga meirihlutar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Já Nei Tillaga minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?“ Já Nei Meirihlutinn hafnaði þeirri útgáfu sem minnihlutinn styður á þeirri forsendu að hún gefi til kynna að viðræður séu á upphafsreit og að jafnvel að Ísland þurfi að sækja um á ný. Segir í umsögn meirihlutans að mikilvægt sé að spurningin vísi í fyrri aðildarviðræður, án þess að afstaða sé tekin til stöðu þeirra. Samkvæmt umsögn minnihlutans vill hann bæði fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni frá 29. ágúst til 17. október og breyta spurningunni. Minnihlutinn segist sannarlega sammála orðalaginu í spurningu utanríkisráðherra, að verið sé að ganga til viðræðna „á ný“, en túlkar það ólíkt. Það er að segja á meðan ráðherra geri ráð fyrir að verið sé að hefja gamlar viðræður á ný, telji minnihlutinn að um nýjar viðræður sé að ræða þar sem aðildarumsóknin frá 2009 hafi sannarlega verið dregin til baka. Umsögn meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Umsögn minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Upphafleg tillaga utanríkisráðherra: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Tillaga meirihlutar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Já Nei Tillaga minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?“ Já Nei
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira