ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2026 08:07 Tveir starfsmenn Ríkisháskóla Flórída voru skotnir til bana í skotárás í apríl í fyrra. Byssumaðurinn leitaði sér ráða hjá ChatGPT um hvernig hann ætti að bera sig að. Vísir/EPA Ekkja manns sem var drepinn í skotárás í Flórída í Bandaríkjunum halda því fram að spjallmennið ChatGPT hafi ráðlagt árásarmanninum að drepa börn til þess að vekja sem mesta athygli. Hún hefur stefnt eiganda spjallmennisins fyrir dómi. Í stefnu ekkjunnar gegn OpenAI er vísað til langra „samræðna“ Phoenix Ikner við ChatGPT í aðdraganda skotárásar í Ríkisháskóla Flórída í apríl í fyrra. Ikner skaut tvo til bana og heldur ekkjan því fram að gervigreindin hafi átt þátt í árásinni. Þannig hafi Ikner fylgt leiðbeiningum gervigreindarinnar um hvernig hann ætti að bera sig að við upphaf skotárásarinnar. Hann hafi meðal annars hlaðið upp myndum af skotvopnum sem hann hafði orðið sér úti um. Spjallmennið á einnig að hafa ráðlagt Ikner að mun líklegra væri að skotárásin hlyti athygli á landsvísu ef börn væru á meðal fórnarlamba. „Jafnvel tvö eða þjú fórnarlömb geta dregið meiri athygli,“ á ChatGPT að hafa sagt verðandi morðingjanum. Ekkjan sakar OpenAI um að bera ábyrgð á skotárásinni á hluta til á þeim forsendum að fyrirtækið hafi ekki gert yfirvöldum viðvart um fyrirspurnir Ikners, að því er segir í frétt NBC-sjónvarpsstöðvarinnar um málið. Því hafna fulltrúar fyrirtækisins. Spjallmennið hafi svarað fyrirspurnum Ikners með staðreyndum sem hafi verið aðgengilegar á netinu. Það hafi hvorki hvatt hann til dáða né ýtt undir ólöglegar eða skaðlegar athafnir. Fyrirtækið ver sig einnig í máli sem sjö fjölskyldur fórnarlamba mannskæðrar skotárásar í kanadískum skóla höfðuðu gegn því á svipuðum forsendum. Þá stefndi fjölskylda unglingspilts sem svipti sig lífi fyrirtækinu en spjallmennið ráðlagði barninu að leita sér ekki andlegrar hjálpar og lýsti fyrir því hvernig það gæti búið til hengingaról. Gervigreindarspjallmenni eru þekkt fyrir að keppast við að segja notendum sínum það sem þeir vilja heyra. Áhyggjur hafa verið um að þau geti þannig magnað upp ranghugmyndir andlega veiks fólks. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Gervigreind Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Tækni Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira
Í stefnu ekkjunnar gegn OpenAI er vísað til langra „samræðna“ Phoenix Ikner við ChatGPT í aðdraganda skotárásar í Ríkisháskóla Flórída í apríl í fyrra. Ikner skaut tvo til bana og heldur ekkjan því fram að gervigreindin hafi átt þátt í árásinni. Þannig hafi Ikner fylgt leiðbeiningum gervigreindarinnar um hvernig hann ætti að bera sig að við upphaf skotárásarinnar. Hann hafi meðal annars hlaðið upp myndum af skotvopnum sem hann hafði orðið sér úti um. Spjallmennið á einnig að hafa ráðlagt Ikner að mun líklegra væri að skotárásin hlyti athygli á landsvísu ef börn væru á meðal fórnarlamba. „Jafnvel tvö eða þjú fórnarlömb geta dregið meiri athygli,“ á ChatGPT að hafa sagt verðandi morðingjanum. Ekkjan sakar OpenAI um að bera ábyrgð á skotárásinni á hluta til á þeim forsendum að fyrirtækið hafi ekki gert yfirvöldum viðvart um fyrirspurnir Ikners, að því er segir í frétt NBC-sjónvarpsstöðvarinnar um málið. Því hafna fulltrúar fyrirtækisins. Spjallmennið hafi svarað fyrirspurnum Ikners með staðreyndum sem hafi verið aðgengilegar á netinu. Það hafi hvorki hvatt hann til dáða né ýtt undir ólöglegar eða skaðlegar athafnir. Fyrirtækið ver sig einnig í máli sem sjö fjölskyldur fórnarlamba mannskæðrar skotárásar í kanadískum skóla höfðuðu gegn því á svipuðum forsendum. Þá stefndi fjölskylda unglingspilts sem svipti sig lífi fyrirtækinu en spjallmennið ráðlagði barninu að leita sér ekki andlegrar hjálpar og lýsti fyrir því hvernig það gæti búið til hengingaról. Gervigreindarspjallmenni eru þekkt fyrir að keppast við að segja notendum sínum það sem þeir vilja heyra. Áhyggjur hafa verið um að þau geti þannig magnað upp ranghugmyndir andlega veiks fólks. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Gervigreind Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Tækni Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira