Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. maí 2026 12:43 Guðrún Hafsteinsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ræddu málin í Sprengisandi. Samsett/Ívar Fannar Formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segja niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna áfellisdóm yfir ríkisstjórninni og vísbendingu um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer. „
Ég átti von á góðri niðurstöðu en ég var undrandi og glöð og þakklát í gær þegar ég sá niðurstöðuna og hvað við vorum að gera góða hluti,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í Sprengisandi í morgun. Sjálfstæðisflokkurinn vann yfirburðasigur til að mynda í Reykjavík, Kópavogi og víðar um landið. Guðrún segir að frambjóðendur flokksins hafi mætt sterkir og samstíga sem skilaði góðum árangri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var einnig viðmælandi í Sprengisandi og hóf viðtalið á því að óska Guðrúnu til hamingju. „Ég er mjög glöð með gengið okkar. Við erum að styrkja okkur og bæta um allt land. Í fyrsta sinn er sveitarstjónarfólk í öllum kjördæmum landsins,“ segir Þorgerður. Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, tók undir og hampaði velgengi flokksins síns sem þrátt fyrir að missa fulltrúa í Reykjavík vann til að mynda stóra sigra á Ísafirði og Höfn í Hornafirði. „Þetta leit ekki vel út fyrir sex til átta vikum, sérstaklega í Reykjavík, en við náðum inn fulltrúa og það var ekki langt í Magneu,“ segir hún. Skýr skilaboð Lilja segir að niðurstöður kosninganna hafi verið afar skýr skilaboð og geti jafnvel sagt til um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fari. „Forsætisráðherrann var í framboði í öllum kjördæmum, í öllum sveitarfélögum. Þetta eru erfið tíðindi fyrir ríkisstjórnina þannig að það er alveg rétt. Það er heilmikið að gerast í stjórnmálunum en þetta voru skýr skilaboð kjósenda um framtíðina,“ segir Lilja. Lilja Alfreðsdóttir mætti einnig í Sprengisand.Vísir/Ívar Fannar Guðrún tekur undir orð Lilju og segir ekki hægt að líta fram hjá niðurstöðunum eftir að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var svo áberandi í kosningabaráttunni. „Þetta er áfellisdómur fyrir forsætisráðherra og ríkisstjórnina,“ segir Guðrún. Þorgerður segist ekki sammála því. Bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn séu gamalgrónir flokkar og hafi ákveðið forskot á sveitarstjórnarstiginu. „Við erum allar með reynslu, að sjálfsögðu er það þannig að það er ekki alltaf sem ríkisstjórnarflokkarnir koma vel út úr sveitarstjórnarkosningum en ég er mjög stolt af því hvernig Viðreisn er að koma út.“ Hún segir þá að það sé fólk sem jafnvel kjósi Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn sem sé opið fyrir áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. „Ég veit ekkert hvað gerist í næstu atkvæðagreiðslu,“ segir Þorgerður. Gagnrýnir tímasetninguna Talið var leitt að öðru, Lilja segist afar ánægð með unga fólkið sem tók þátt í kosningabaráttunni og Þorgerður að nýafstaðnar kosningar verði án efa eitthvað sem gert verður upp í sögunni. Guðrún fann sig hins vegar knúna til að ræða stöðu ríkisstjórnarinnar. „Ég vil árétta það sem ég segi að það er ekki hægt að líta fram hjá því að ríkisstjórnin er löskuð eftir þessa niðurstöðu gærdagsins. Þjóðin hefur talað mjög skýrt og við sáum að það segir okkur að það eru ákveðnir erfiðleikar á stjórnarheimilinu,“ segir hún og bætir við að hún gerir ráð fyrir því að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna strax á miðvikudag. „Ég hef gagnrýnt tímasetninguna og það minnsta sem ríkisstjórnin gæti gert væri að sýna þjóðinni þá virðingu.“ „Samstarfið er sterkt og ég ætla ekki að dvelja við það ef fólki er heitt í hamsi. Höldum áfram og vinnum saman,“ segir Þorgerður. „Við erum að bæta okkur, við í Viðreisn, og það er ekki hægt að túlka það sem óánægju.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Bylgjan Sprengisandur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Sjá meira