„Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Jakob Bjarnar skrifar 18. maí 2026 16:10 Kjartan og Marta, gömlu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sóttu ákaft að Hildi Björnsdóttur í kosningabaráttunni undir merkjum Miðflokksins. Björn Bjarnason metur það svo að Hildi gæti reynst örðugt að líta hjá því í meirihlutaviðræðum við Miðflokkinn. vísir/samsett Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Reykjavíkurborg, segir í pistli að örðugt gæti reynst fyrir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna, að ganga til meirihlutasamstarfs við Miðflokkinn í ljósi þess hvernig þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir létu í aðdraganda kosninga.
Björn, sem þekkir öðrum mönnum betur innvolsið í Sjálfstæðisflokknum, segir Hildi ekki einvörðungu hafa unnið kosningabaráttuna í Reykjavík, hún hafi unnið kosningarnar. „Hún tók af skarið um skipan D-framboðslistans og uppskar óánægju gamalla borgarfulltrúa á listanum sem fóru í Miðflokkinn og skrifuðu þannig um Hildi að varla verður kennt við annað en níð,“ segir Björn í pistli sem hann birti nýverið. Marta og Kjartan hlutu ekki náð uppstillingarnefndar Sjálfstæðisflokksins í vetur og ákváðu í framhaldi af því að yfirgefa flokkinn. Björn segir það ráðast í tengslum við myndun meirihluta í borgarstjórn hvort Ari Edwald oddviti Miðflokksins leiði þetta fólk til áhrifa með borgarstjórnarflokki sínum. Þetta eru býsna hörð orð frá Birni, hjá Sjálfstæðisflokki eru svona atriði geymd en ekki gleymd. Og Ara er nokkur vandi á höndum. Borgarlínan gæti skipt sköpum Þó að nokkrir möguleikar séu í stöðunni virðist blasa við að Sjálfstæðisflokkur annaðhvort myndi meirihluta með Miðflokknum einum, en tveggja flokka meirihluti hefur yfirleitt verið það sem stjórnmálaflokkar vilja, eða ganga til samninga við Viðreisn og Framsóknarflokk. Morgunblaðið nefndi reyndar í morgun möguleika á breiðum borgaralegum meirihluta með öllum þessum flokkum en það er önnur saga enda erfitt að sjá oddvita Viðreisnar ganga á bak orða sinna þegar hún hafnaði samstarfi með Miðflokknum. Hér er hin svokallaða Borgarlína lykilbreyta. Eftir að Kjartan og Marta fengu ekki framgang á lista Sjálfstæðisflokksins yfirgáfu þau flokkinn og lýstu því yfir að þau væru ósammála stefnu Hildar í samgöngumálum. Þau tóku þá til óspilltra málanna og skrifuðu greinar þar sem þau réðust gegn Borgarlínu og hundskömmuðu Hildi, svo mjög að Björn segir að skrifin lýsi engu öðru en níði. Breiðsíðuárásir Kjartans og Mörtu Svo fáein dæmi séu nefnd, en þau efndu til skothríðar á sinn gamla flokk. Kjartan ritaði grein í Morgunblaðið sem birtist 24. apríl og sagði að þeir stjórnmálamenn sem styðji borgarlínu styðji þannig hundraða milljarða króna skattahækkun á íbúa höfuðborgarsvæðisins. „Ekki kemur á óvart að Samfylkingin og aðrir vinstri flokkar standi að slíkri skattahækkun en það kemur mörgum á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn geri það einnig,“ segir Kjartan í Facebook-færslu og birtir mynd af greininni. Þessi skrif fóru ekki fram hjá fyrrum flokksmönnum né heldur skrif Mörtu sem ekki dró af sér og skrifaði í grein sem hún kallar „Bláa bókin verður rauð“ og birtist 15. maí þar sem hún sakar Sjálfstæðisflokkinn um að hafa hafnað sinni eigin stefnu: „Nú er Reykjavík, þetta höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins, löngu fallið. Og það sem miklu verra er: Sjálfstæðisflokkurinn hefur hafnað sinni eigin stefnu í Reykjavík. Bláa bókin er orðin rauð. Oddvitinn í Reykjavík hefur í borgarstjórnarflokknum sl. átta ár tekið undir og stutt ýmis veigamestu stefnumál vinstri meirihlutanna. Þetta vitum við best sem höfum reynt að vinna með henni í borgarstjórn.“ En eins og Björg Magnúsdóttir sagði á Sprengisandi í gær: „Hildur er´ann.“ Hún á völina og hún á kvölina.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Sjá meira