Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Árni Sæberg skrifar 27. maí 2026 10:15 Brot mannsins voru framin á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Vísir/Anton Brink Hannes Valle Þorsteinsson, fyrrverandi starfsmaður leikskólans Múlaborgar, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku á leikskólanum. Hann var sýknaður af ákæru fyrir kynferðislega áreitni gegn annarri stúlku, með því að hafa bitið hana í rassinn.
Dómur þess efnis var kveðinn upp í gær og birtur í dag. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga stúlkunni en sýknaður af annarri ákæru fyrir kynferðislega áreitni gagnvart annarri stúlku. Ný ákæra gefin út í apríl Hannes var upphaflega ákærður í nóvember síðastliðnum fyrir nauðgun með því að hafa tvisvar sinnum á árinu 2025 á leikskólanum haft önnur kynferðismök en samræði við stúlku. Hann hafi misnotaði freklega yfirburðarstöðu sína gagnvart stúlkunni, brugðist trausti hennar og trúnaði sem starfsmaður leikskólans og í annað skiptið jafnframt notfært sér að þannig var ástatt um stúlkuna að hún gat ekki spornað við verknaðnum sökum svefndrunga. Niðurstaða fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjavíkur var að hann hefði gerst sekur um nauðgun í öðru tilvikinu en ekki hafi tekist að sanna sekt hans hvað hitt tilvikið varðar. Þá var gefin út önnur ákæra á hendur honum í apríl og hún sameinuð málinu. Ekki hefur verið greint frá efni hennar áður. Hann var ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn stúlku en til vara fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa á árinu 2025 á leikskólanum í nokkur skipti bitið stúlkuna í rassinn. Hann var sýknaður af þeirri ákæru þar sem ekki var talið að háttsemi hans hafi verið kynferðislegs eðlis. Með tornæmi en sakhæfur Í kafla dómsins um ákvörðun refsingar segir að í málinu liggi fyrir ítarlegar upplýsingar um geðheilbrigði og þroska Hannesar. Niðurstöður tveggja greindarprófa sýni að hann hafi greind á tornæmisstigi. Samkvæmt tveimur matsgerðum geðlækna búi hann þó ekki við neinn geðsjúkdóm eða annað ástand sem gæti leitt til þess að hann teljist ósakhæfur. Í niðurstöðum yfirmatsgerðar komi fram að yfirmatsmenn telji ekkert hafa komið fram sem bendi til þess að refsing geti ekki borið árangur þrátt fyrir greind á tornæmisstigi. Fyrir dómi hafi þeir greint frá því að þeir teldu refsingu geta borið árangur þar sem Hannes væri ekki þroskaskertur og gerði sér grein fyrir því að hann hefði brotið af sér. Það sé því niðurstaða dómsins að ákvæði almennra hegningarlaga um ósakhæfi eigi ekki við um Hannes. „Þrátt fyrir tornæmi hefur ákærði getað starfað á almennum vinnumarkaði og ekkert bendir til þess að veruleg vandkvæði hafi komið upp í daglegu lífi hans. Tornæmi ákærða fellur ekki undir þroskahömlun, andlegan vanþroska eða annað sambærilegt ástand sem gæti leitt til þess að refsing gæti ekki borið árangur.“ Sóttist ekki eftir að vinna með börnum en nýtti tækifærið Þá segir að við ákvörðun refsingar verði litið til þess að meðferð málsins fyrir dómi hafi tekið nokkurn tíma, einkum vegna öflunar matsgerða. Til mildunar horfi að Hannes hafi játað háttsemi sína. Gögn málsins bendi til þess að hann hafi ekki sérstaklega leitast við að starfa með börnum eða sóst eftir því að vera einn með þeim. Engu að síður sé ljóst að hann hafi nýtt tækifærið þegar hann var í slíkri aðstöðu og misnotaði það traust sem honum var falið til að gæta ungra barna í leikskóla. Með háttsemi sinni hafi hann stefnt velferð og andlegu heilbrigði brotaþola í augljósa hættu. Brot hans hafi verið gróft og beinst að mikilvægum hagsmunum ungs barns í hans umsjá sem átti að njóta þar öruggs skjóls. Refsing hans þyki hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár. Hannesi var gert að greiða brotaþola 2,5 milljónir króna í miskabætur, helming málsvarnarlauna verjanda síns, sem námu alls átta milljónum króna, helming þóknunar réttargæslumanns, sem nam alls 990 þúsund krónum og helming annars sakarkostnaðar, sem nam alls 3,9 milljónum króna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Dómsmál Reykjavík Leikskólar Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Skóla- og menntamál Mest lesið „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira