Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. júní 2026 06:47 Samkvæmt CNN hefur Trump nú lýst því yfir samtals 39 sinnum að samkomulag sé svo gott sem í höfn. Getty/Samuel Corum Enn og aftur fer tvennum sögum af því hvort Bandaríkjamenn og Íranir séu við það að undirrita friðarsamkomulag eða ekki. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að samkomulag væri allt að því í höfn en utanríkisráðuneyti Íran dró það til baka og sagði enga niðurstöðu liggja fyrir.
Forsetinn lét ummælin falla þegar hann aflýsti umfangsmiklum árásum sem hann hafði boðað en hann hafði meðal annars látið í veðri vaka að Bandaríkjamenn myndu taka yfir Kharg-eyju, sem hefur að geyma mikilvæga olíuinnviði. Hann hefur í gegnum tíðina verið þekktur og harðlega gagnrýndur fyrir að vera yfirlýsingaglaður en draga svo úr eða hætta við. Gagnrýnendur hans kalla fyrirbærið TACO, Trump til mikillar óánægju: Trump Always Chickens Out. Þess ber að geta að menn hafa oftar en ekki verið fegnir því að forsetinn hafi ekki staðið við orð sín. Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði að aðilar hefðu náð saman um stóran hluta texta samkomulagsins en ítrekaði að Íranir myndu ekki gera málamiðlar varðandi „rauðar línur“. Ónefndur embættismaður sagði að enn væru helmingslíkur á því að ekkert yrði af samkomulagi og fréttastofan Tasnmi sagði að fólk ætti að hunsa yfirlýsingar Trump þar til tilkynning bærist frá stjórnvöldum í Íran. Jafnvel þótt samkomulag næðist virðist ljóst að það yrði til skamms tíma, þar sem drög kveða á um frekari viðræður varðandi kjarnorkumál og afléttu refsiaðgerða. Rauðar línur Írana hafa varðað birgðir landsins af auðguðu úrani, takmörk á framleiðslu eldflauga og stuðning stjórnvalda við samtök og hópa annars staðar í Mið-Austurlöndum.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira