„Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. ágúst 2026 09:58 Það verður sérstök stund á sunnudag þegar Sævar Atli og félagar í Brann mæta fyrrverandi þjálfaranum Frey Alexanderssyni. Vísir/getty Sævar Atli Magnússon er byrjaður að spila aftur eftir erfið meiðsli og bíður spenntur eftir því að mæta fyrrum læriföður sínum, Frey Alexanderssyni, í Íslendingaslag um helgina.
Sævar Atli meiddist illa í landsleik Íslands og Frakklands á síðasta ári. Eftir níu mánuði, fjórar skurðaðgerðir og alvarlega blóðsýkingu, sneri hann aftur á völlinn með liði Brann fyrr í mánuðinum. „Maður á vonda og góða daga en það er klárlega uppgangur í þessu og hnéð verður betra og betra. Allar mínútur sem maður fær fara í þennan fræga banka. En þetta er á uppleið, klárlega,“ segir Sævar Atli. Lærifaðirinn horfinn á braut Meðan Sævar var frá vegna meiðsla urðu miklar breytingar hjá Brann og Freyr Alexandersson, sem hafði áður þjálfað Sævar hjá Leikni Reykjavík og Lyngby í Danmörku, var rekinn. „Það var alveg sérstakt. Ég fékk að vita þetta aðeins á undan þegar hann heyrði í mér. Og maður fékk mikið, pressan, blaðamennirnir hérna í Bergen eru rosalegir. Það var strax haft samband við mann, hvort maður væri að fara fyrst hann var farinn, eða hugsa sín mál,“ „Þetta er í annað sinn sem ég missi Frey sem þjálfara. Ég missti hann líka í Lyngby, á annan hátt, þá fór hann sjálfur. En það er klárlega erfitt því hann fékk mig til liðsins. En svona er fótboltaheimurinn, þetta er fljótt að gerast. Ég fýla þjálfarateymið sem er núna og elska að vera í Brann. Þetta breytir ekki mínum hugsunarhætti, þannig séð,“ segir Sævar Atli. Bræður berjast Freyr var strax ráðinn til starfa hjá Rosenborg af íþróttastjóranum þar, Alfreð Finnbogasyni. Undir stjórn Freys hefur Rosenborg unnið fyrstu þrjá leiki tímabilsins og um helgina er komið að stóra Íslendingaslagnum. Rosenborg heimsækir Brann á sunnudag. Hvernig verður að mæta Freysa? „Ég er alveg búinn að hugsa mikið um þetta. Það verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin, í hinum boðvanginum. Við sjáum hvernig orkustigið hans verður, hann verður peppaður ef ég þekki hann rétt,“ „Þetta er bara risa leikur fyrir okkur og hann. Það er mikið verið að tala um þetta sem einhvern hefndarleik fyrir hann, ég er ekkert viss um að hann hugsi þetta þannig. Þeir eru á góðu skriði og alltaf þegar þessi tvö stórlið mætast eru hörkuleikir. Ég held þetta verði geggjað sama hvað,“ „Ég held að hann fái góðar móttökur. Hann var mjög vel liðinn hér og þetta var mjög óvænt. En ég held að stuðningsmennirnir taki vel á móti honum þegar hann kemur út. Það verður gaman að sjá hvernig leikurinn mun fara, hvort við skorum fyrst eða þeir, hvort hann muni fagna og allt þetta. Þetta spilar allt inn í. Það verður gaman að sjá og þetta verður mjög skemmtilegur leikur,“ segir Sævar Atli. Innslagið úr Sportpakkanum má sjá í spilaranum.
Norski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Espanyol - Real Madrid | Madrídingar mættir undir stjórn Mourinho Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Sjá meira