Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2026 20:59 Masoud Pezeshkian sakaði Bandaríkjamenn um stríðsglæpi. AP Photo/Heather Khalifa Forseti Írans sakaði Bandaríkin um hryðjuverk í ræðu sinni fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og sagði Írani aldrei myndu beygja sig og bugta fyrir Bandaríkjunum. Þá hélt hann á myndum af hinum látna leiðtoga Ayatollah Khameinei sem og af látnum almennum borgurum. Á sama tíma lýsti hann Írani opna fyrir viðræðum en sendinefnd Bandaríkjanna yfirgaf salinn.
Stríð milli landanna hefur staðið yfir í að verða sjö mánuði. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í sinni ræðu í þinginu í gær að hann stæði frammi fyrir erfiðri ákvörðun, sem gæti falið í sér gjöreyðingu íslamska lýðveldisins í Íran. Masoud Pezeshkian forseti Íran segir Írani ekki munu láta slíkar hótanir á sig fá. Hann hóf ræðu sína á að lyfta mynd af Ayatollah Khameini æðsta leiðtoga Íran sem Bandaríkjamenn og Ísraelar felldu í upphafi átakanna í febrúar. Þá hélt hann einnig á myndum af almennum borgurum, flestir skólakrakkar, sem Íranir hafa sagt að hafi látist í bandarískum loftárásum í Minab og í Lamerd í Íran. Bandaríkjamenn hafa sagt loftárásir í Minab til rannsóknar en þvertaka fyrir að bera ábyrgð á dauða almennra borga í Lamerd. „[Trump] hlýtur að vita að andspyrna írönsku þjóðarinnar mun aðeins aukast í ljósi refsiaðgerða, aukins þrýstings og aukins yfirgangs. Við munum aldrei beygja okkur né bugta,“ sagði forsetinn meðal annars. Hann ítrekaði þó að írönsk stjórnvöld væru reiðubúin til viðræðna og til samninga en myndu ekki sætta sig við valdbeitingu. Horfa má á ræðuna í heild sinni hér fyrir neðan. Þá sagði hann að Bandaríkin yrðu að láta af lokunum sínum við Hormússund, sem Íranir hafa ítrekað sjálfir einnig lokað fyrir annarri skipaumferð. „Það gengur ekki að allir hagnist á Hormússundi á meðan okkur er meinaður aðgangur að siglingum um þessa vatnaleið,“ sagði hann. Hann ítrekaði einnig að Íran myndi ekki gefa eftir rétt sinn til að nýta kjarnorku. Fullyrti hann að landið myndi ekki leitast við að þróa kjarnorkuvopn en það er það sem Ísrael og Bandaríkin hafa óttast mest.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira