Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Gloria Steinem er látin

Gloria Steinem, blaðamaður, rithöfundur og baráttukona sem ruddi brautina í annarri bylgju femínismans, er látin 92 ára að aldri. Steinem stofnaði femíniska tímaritið Ms. Magazine árið 1971 og varð eitt helsta andlit femínisma í Bandaríkjunum á áttunda, níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kvið­dóm­endur fá síðasta séns

Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar í fimm daga. Það hefur ekki borið árangur en búist er við því að í dag fái þeir sinn síðasta séns til að komast að niðurstöðu. Annars verður málinu gegn konunni sem kyrkti þrjú ung börn sín vísað frá dómi.

Erlent
Fréttamynd

Neitar að hafa myrt Charlie Kirk

Tyler Robinson, 23 ára karlmaður frá Utah, neitar sök í ákæru á morðinu á hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk. Dómari hefur úrskurðað að saksóknarar megi krefjast dauðarefsingar í réttarhöldunum.

Erlent
Fréttamynd

Á­tökin við Persa­flóa stig­magnast á ný

Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkja­her hefur á­rásir á Íran á ný

Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. 

Erlent
Fréttamynd

Ná ekki saman um sak­hæfi Clancy

Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga.

Erlent
Fréttamynd

Apple fær nýjan for­stjóra

John Ternus er nýr forstjóri bandaríska tæknirisans Apple. Hann tók við starfinu af Tim Cook sem leiddi gegndarlausan vöxt fyrirtækisins í krafti vinsælda snjallsíma þess.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Miley losar sig við eftir­nafnið

Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. 

Tónlist
Fréttamynd

Glæpa­foringi dæmdur fyrir morðið á Tu­pac

Fyrrum glæpaforinginn Duane „Keffe D“ Davis var í nótt fundinn sekur um að hafa skipulagt morðið á rapparanum Tupac Shakur sem var myrtur árið 1996. Málið hefur verið eitt mest umtalaðasta morðmál Bandaríkjanna síðustu þrjátíu árin.

Erlent
Fréttamynd

Segir af sér eftir á­rekstra við Hegseth

Daniel P. Driscoll, hermálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér í kjölfar árekstra við Pete Hegseth varnarmálaráðherra sem hefur látið reka þaulreynda leiðtoga úr Bandaríkjaher síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Highway 61 Revisited fagnar 61 árs af­mæli

Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk.

Tónlist
Fréttamynd

Galliano slaufað og ó­vissa með Met Gala næsta árs

Forsvarsmenn Metropolitan-listasafnsins og Met Gala-kvöldsins hafa hætt við að heiðra breska hönnuðinn John Galliano. Met Gala næsta árs átti að vera tileinkað ævistarfi hönnuðarins en hann hefur í gegnum tíðina valdið hneykslan vegna rasískra og andgyðinglegra yfirlýsinga. Ekki liggur fyrir hvert þema kvöldsins verður í staðinn.

Lífið
Fréttamynd

Ris, fall og óútskýrð auð­æfi Jeffrey Epstein

Jeffrey Epstein var ákærður árið 2007 fyrir kynferðisbrot gegn tugum kvenna og hefði hæglega getað fengið lífstíðarfangelsi. Lögmenn hans gerðu leynilegan samning við yfirvöld sem endaði með því að hann hlaut átján mánaða dóm og afplánaði þrettán þeirra í fangelsi. Haustið 2008 var Epstein sóttur í fangelsi í Flórída á hverjum morgni, sex daga vikunnar, af einkabílstjóra sem skutlaði honum á skrifstofu góðgerðarstofnunar og svo aftur í fangelsið að kvöldi.

Lífið
Fréttamynd

Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að á­rásum á Kharg-eyju

Íranir hafa svarað fyrir árásir Bandaríkjamanna á skotflaugapalla á Larak-eyju með árásum á herstöðvar í Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá hafa fjölmiðlar í Íran greint frá því að kviknað hafi í olíuflutningaskipi á Hormússundi, eftir að skipið lenti á tveimur tundurduflum.

Erlent
Fréttamynd

Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glæ­nýju hlut­verki

Þau Finneas O´Connell og Claudia Sulewski gengu í það heilaga á dögunum en sá fyrrnefndi er bróðir söngkonunnar Billie Eilish, sem gaf hjónin einmitt saman. Herlegheitin, sem fóru fram á búgarði í Kaliforníu, voru vel sótt og meðal gesta voru þau Justin og Hailey Bieber, Jason Sudeikis, Kristen Bell og fleiri. 

Lífið