BL hefur afhent þrjú þúsund rafbíla BL við Sævarhöfða afhenti í síðustu viku þrjú þúsundasta rafbílinn frá því að fyrirtækið hóf sölu rafbíla árið 2013. Bíllinn sem afhentur var er af gerðinni BMW iX Atelier xDrive40, sem er nýjasti fjórhjóladrifni jepplingurinn frá BMW. Bíllinn, sem hefur um 425 km drægni, er 326 hestöfl og getur dregið 2,5 tonn á dráttarkróki sem er mesta dráttargetan á rafbílamarkaðnum. Bílar 14. mars 2022 07:00
Volswagen ID Buzz kynntur til leiks Rafbíllinn ID Buzz frá Volkswagen mun vera til bæði sem van og sem strumpastrætó. Hann sækir innblástur í klassíska hönnun á Volskwagen sem gekk undir nafninu rúgbrauð á Íslandi. Bílar 13. mars 2022 07:01
Ný nálgun í rafvæðingu frá Nissan með e-Power Nissan kynnir í sumar skilvirku og hljóðlátu rafdrifnu aflrásina e-Power fyrir Nissan Qashqai sem felst í meginatriðum í eiginleikum og upplifun af akstri rafbíls án þess að nokkru sinni þurfi að stinga bílnum í samband til að hlaða. Tæknin kom fyrst fram í Nissan Note á ákveðnum mörkuðum árið 2017 en hún felst í því að sparneytin bensínvél hleður orku beint inn á rafhlöðu bílsins þaðan sem 188 hestafla rafmótor fær orku til að knýja bílinn áfram. Hinn sívinsæli Qashqai verður fyrsti bíllinn á Evrópumarkaði með tækninni þegar fyrstu bílarnir koma á markað í júní. Bílar 11. mars 2022 07:01
Hleypa lofti úr dekkjum í skjóli nætur í þágu loftslagsbaráttu Hópur breskra aðgerðasinna í loftslagsmálum hefur gripið til þeirra ráða að hleypa lofti úr dekkjum hundruð jeppa og jepplinga í stórborgum Bretlands. Hópurinn vill útrýma slíkum bílum á þéttbýlum svæðum. Erlent 10. mars 2022 11:22
Eldsneytisverð muni sveiflast mikið á næstu vikum Framkvæmdastjóri N1 telur líklegt að miklar sveiflur verði í eldsneytisverði á næstu dögum og vikum. Bensínverð fór yfir 300 krónur á lítrann í dag hjá flestum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu. Neytendur 9. mars 2022 18:01
Viðlíka verðhækkun í Evrópu ekki sést í manna minnum „Þetta er auðvitað skelfileg verðþróun. Við sjáum það bara að á tíu dögum hefur verðið hækkað um 20 kr. til neytenda á útsölustöðum og það sér ekki endilega fyrir endann á þessu þannig að við vitum ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér.“ Innlent 9. mars 2022 13:17
Indian eFTR Hooligan rafhjólið Rafknúin reiðhjól eru á mikilli siglingu og njóta sífellt meiri vinsælda. Nýjasta viðbótin í þá flóru er Indian eFTR Hooligan sem hefur útlit sem er alls ekki mjög reiðhjólalegt í laginu. Bílar 9. mars 2022 07:00
Kviknaði í stórum jeppa á Hólmsheiði Eldur kviknaði í stórum jeppa á Hólmsheiði á fjórða tímanum í dag. Ökumaður náði að keyra bílinn út af veginum og koma sér út úr honum. Innlent 8. mars 2022 15:54
LiveWire ætlar að selja 100.000 rafmótorhjól á ári LiveWire er rafmótorhjóla angi goðsagnakendna mótorhjólaframleiðandans Harley-Davidson. Fyrirtækið ætlar sér stóra hluti í rafmótorhjólaleiknum á næstunni. Mikill vöxtur er fyrirhugaður á næstu átta árum. Bílar 6. mars 2022 07:01
Teslueigendur uggandi vegna óbætts vatnstjóns eins þeirra Eigendur rafbíla af gerðinni Tesla virðast vera uggandi eftir fréttir af óbættu vatnstjóni eins þeirra. Margir þeirra segjast ætla að skipta um tryggingar og sumir íhuga jafnvel að falla frá kaupum á pöntuðum Teslum. Neytendur 3. mars 2022 21:18
Tesla firrar sig ábyrgð: Situr uppi með milljóna króna tjón eftir að hafa ekið í poll Samkvæmt ábyrgðarskilmálum Tesla ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjónum sem verða þegar Teslu-bifreið er ekið í vatn sem er dýpra en 20 sentímetrar. Þetta segir Hafþór Pálsson, sem varð fyrir því að glæný Tesla tjónaðist þegar hann ók í poll á dögunum. Innlent 3. mars 2022 11:02
Polestar O2 hugmyndabíllinn er rafmagns blæjubíll O2 er annar hugmyndabíllinn frá Polestar og er honum ætlað að kynna hugmyndir framleiðandans um nýja kynslóð rafbíla. Bílar 3. mars 2022 07:00
Sprakk á rúmlega tíu bílum í röð eftir sömu holuna Fjöldi bíla sat fastur með sprungin dekk eftir holu á vegi í Kópavogi fyrr í kvöld. Ökumaður segist hafa talið rúmlega tíu bíla í bílaröðinni sem myndaðist, allir með sprungið á dekkjum. Innlent 2. mars 2022 22:09
Kia EV6 valinn Bíll ársins í Evrópu Rafbíllinn Kia EV6 hefur verið valinn Bíll ársins í Evrópu árið 2022. Kia EV6 hefur fengið góðar viðtökur síðan hann var frumsýndur á síðasta ári. Bílar 2. mars 2022 07:00
Bylting í bílamálun með sjálfvirkri blöndunarvél PPG er einn fremsti lakkframleiðandinn heims og selur nýjustu tækni og tól til bílasprautunar. Fyrirtækið lætur meðal annars framleiða sjálfvirkar lakkblöndunarvélar sem skila ítrustu nákvæmni í blöndun. Samstarf 1. mars 2022 13:12
Toyota með flestar nýskráningar í febrúar Toyota seldi flesta bíla í febrúar, með 124 eintök nýskráð. Nissan var í öðru sæti með 91 eintak nýskráð. Alls voru 1293 ökutæki nýskráð í febrúar, það er aukning um 34 prósent frá því í febrúar í fyrra. Tölurnar eru byggðar á tölfræðivef Samgöngustofu. Bílar 1. mars 2022 07:00
Rivian er á góðri leið að aukinni framleiðslu Framkvæmdastjóri bandaríska rafbílaframleiðandans Rivian, RJ Scaringe segir að fyrirtækið sé „á góðri leið í átt að aukinni framleiðslu.“ Hann hefur einnig sagt að félagið stefni á 10% markaðshlutdeild á rafbílamarkaði fyrir árið 2030. Bílar 26. febrúar 2022 07:01
Jeppasýning Toyota á morgun Bílaumboðið Toyota ætlar að halda árlega jeppasýningu sína á morgun. Venju samkvæmt verður mikið um jeppa á sýningunni sem haldin verður í sýningarsal Toyota í Kauptúni. Sýningin verður opin á morgun á milli 12-16. Bílar 25. febrúar 2022 07:01
Toyota og Yamaha þróa vetnis vél saman Samstarfinu er ætlað að skila af sér átta strokka, fimm lítra 444 hestafla vetnisvél. Markmiðið er einnig að komast að því hvort vetni sé raunverulegur kostur fyrir brunahreyfilsvélar. Bílar 23. febrúar 2022 07:00
Renault er að vinna að vetnisbíl Franski framleiðandinn kynnti nýlega hugmyndabíls sem notast við vetni. Myndin af hugmyndabílnum gefur lítið upp en bíllinn gæti verið afar spennandi. Sérstaklega þar sem um vetnisbíl er að ræða. Er um straumhvörf að ræða? Bílar 21. febrúar 2022 07:00
BMW iX - Sannur BMW BMW iX er stærsti rafdrifni bíllinn frá BMW hingað til. Um er að ræða fimm manna rafjeppling, þar sem mikið hefur verið lagt upp úr upplifun við hönnun. Upplifunin er BMW út í gegn, sem er áhugavert. Bílar 20. febrúar 2022 07:01
Brennandi skip fullt af lúxusbílum á reki um Atlantshaf Flutningaskipið Felicty Ace er nú á reki um Atlantshaf eftir að það kviknaði í því á miðvikudaginn. Skipið er fullt af lúxusbílum frá Porsche og Wolkswagen. Viðskipti erlent 18. febrúar 2022 07:39
Myndband: Aptera sólarorkubíllinn stingur Tesla Model 3 af í spyrnu Aptera Motors er fyrirtæki sem framleiðir þriggja hjóla sólarorkudrifin rafbíl sem er frekar fljótur. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi má sjá Aptera í beta útgáfu sem og alpha útgáfu í spyrnu á móti Telsa Model 3 og Audi R8. Bílar 18. febrúar 2022 07:00
Kia efst áttunda árið í röð hjá J.D. Power Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun bandaríska greiningarfyrirtækisins J.D. Power yfir bílaframleiðendur. Þetta er áttunda árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könnun J.D. Power í flokki bíla sem teljast magnsölubílar. Þetta er þó í fyrsta skipti sem Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílmerki, ekki einungis magnsöluframleiðendur og því er sannarlega um tímamót að ræða. Bílar 16. febrúar 2022 07:00
Genesis GV60 með drift- og innskotsstillingu Genesis er lúxus útgáfa af Hyundai bílum, svipað og Lexus er hjá Toyota. Genesis miðar frekar á BMW og Audi á meðan Hyundai miðar á aðra keppinauta. Genesis bifreiðar hafa nánast eingöngu verið fáanlegar í Bandaríkjunum. Nú stefnir í að breyting verði þar á, Evrópa er á planinu. Bílar 14. febrúar 2022 07:00
Dacia Duster nálgast tvær milljónir framleiddar Fljótlega á þessu ári verða þau tímamót í sögu Dacia Duster að tveggja milljónasta eintakinu verður ekið af færibandi bílaverksmiðjunnar í Mioveni í Rúmeníu. Framleiðsla bílsins hófst árið 2010. Bílar 13. febrúar 2022 07:00
Nýja bílasölusvæðið K7 opnar formlega Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Hyundai notaðir bílar, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru búin að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði á milli Hestháls 15 og Krókháls 7 í Reykjavík og munu opna það formlega í dag, laugardag. Nýja bílasölusvæðið, sem ber heitið K7 með tilvísun í Krókháls 7, er rúmlega 23 þúsund fermetrar að stærð. Það var sérstaklega skipulagt fyrir bílasölurnar fjórar og rúmar alls um 800 bíla. Bílar 12. febrúar 2022 07:00
Fljúgandi rafbíllinn Jetson One Jetson One er eins manns flugbíll sem er hannaður til að minna á kappakstursbíl. Bíllinn er framleiddur af sænska fyrirtækinu Jetson. Hann var fyrst kynntur í október í fyrra. Bílar 9. febrúar 2022 07:01
Sjóvá semur við nýja aðila til að sjá um vegaaðstoðina Tryggingafélagið Sjóvá hefur gert samning við Securitas um að sinna vegaaðstoð fyrir viðskiptavini tryggingafélagsins. Viðskipti innlent 8. febrúar 2022 07:54
Subaru Outback fékk hæstu einkunn Euro NCAP Aðstoðarkerfi Subaru Outback fékk hæstu meðaleinkunn hjá Euro NCAP, fimm stjörnur fyrir framúrskarandi öryggi og afköst. Euro NCAP, er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu. Úttektin á aðstoðarbúnaði fólksbílaframleiðenda fór fram á árunum 2020 og 2021. Bílar 8. febrúar 2022 07:01