

HM karla í handbolta 2025
HM í handbolta karla fer fram í Króatíu, Danmörku og Noregi dagana 14. janúar til 2. febrúar 2025.
Leikirnir

Markvörður Dags enn að jafna sig eftir árás liðsfélaga
Króatíski landsliðsmarkvörðurinn Matej Mandic hefur verið útskrifaður af spítala, eftir að liðsfélagi hans kýldi hann í andlitið, en talið er að Dagur Sigurðsson muni samt ekki geta nýtt krafta hans á HM í handbolta í janúar.

Gæti mætt Íslandi á HM: „Algjört æði“
„Það yrði algjör snilld,“ segir Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha sem gæti mætt Íslandi á HM í handbolta í byrjun næsta árs, sem leikmaður Grænhöfðaeyja. Hafsteinn er nýkominn úr sinni fyrstu keppnisferð með liðinu. Hún gekk vel fyrir utan smá tungumálaörðugleika. Aðdragandinn að því að Hafsteinn spili fyrir heimaland föður síns er nokkuð langur.

Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“
Ómar Ingi Magnússon, lykilmaður í íslenska landsliðinu í handbolta sem og stórliði Magdeburgar, segir því fylgja mikil vonbrigði og svekkelsi að hafa meiðst illa í síðasta leik með þýska liðinu. Að öllum sé það ekki séns fyrir hann að ná heilsu fyrir komandi Heimsmeistaramót.

Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir það mikið högg ef Ómar Ingi Magnússon verður ekki með á HM í næsta mánuði. Hann er samt ekki tilbúinn að útiloka þátttöku hans á mótinu.

Ómar Ingi ekki með á HM
Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon mun ekki geta tekið þátt á HM með íslenska landsliðinu í næsta mánuði sökum meiðsla sem hann varð fyrir í leik með Magdeburg um síðastliðna helgi.

Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu
Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon meiddist á ökkla er Magdeburg tók á móti Bietigheim í þýsku deildinni í handbolta í dag.

Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM
Það gekk ýmislegt á í búningsklefa króatíska handboltafélagsins RK Zagreb eftir leik liðsins í Meistaradeildinni í vikunni. Eftirmálin eru allt annað en góðar fréttir fyrir landsliðsþjálfarann Dag Sigurðsson.

Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM
Sex nýliðar eru á 35 manna lista sem landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið yfir menn sem leyfilegir verða á HM í handbolta í Króatíu í janúar.

Elliði segir HM ekki í hættu
Elliði Snær Viðarsson, fremsti línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, segir ekki hættu á því að hann missi af HM í janúar þó að hann glími nú við meiðsli.

Snorri missir ekki svefn, ennþá
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fagnar því að fá fágætan landsliðsglugga til að fara yfir málin með strákunum okkar. Hann hlakkar til leiks kvöldsins við Bosníu í Laugardalshöll.

Mæta Svíum í tveimur leikjum fyrir HM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum fyrir heimsmeistaramótið í janúar.

„Vel liðið eftir minni eigin sannfæringu og fylgi því“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta kemur bráðum saman og hefur keppni í undankeppni Evrópumótsins 2026. Augu liðsins eru þó einnig á undirbúningi fyrir næsta stórmót. Sjálft heimsmeistaramótið í janúar Þeir fáu dagar sem liðið fær saman á næstu mánuðum eru mikilvægir og segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari hug sinn vafalaust á öðrum stað en hugur leikmanna á þessum tímapunkti. Snorri gerir eina stóra breytingu á hópi Íslands. Sveinn Jóhannsson fær tækifærið í línumannsstöðunni. Reynsluboltinn Arnar Freyr Arnarsson þarf að sitja eftir heima.

Arftaki Kristjáns óvænt hættur
Svíar eru í leit að nýjum landsliðsþjálfara í handbolta eftir að Glenn Solberg tilkynnti óvænt að hann væri hættur, tveimur árum fyrir lok samningstíma.

Duvnjak búinn að lofa Degi
Eftir Ólympíuleikana í París í sumar og orð sem Domagoj Duvnjak, skærasta stjarna Króata í handbolta, lét falla benti allt til þess að hann hefði spilað sinn síðasta leik fyrir Dag Sigurðsson. Svo er hins vegar ekki.

Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM
Ísland verður í riðli með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum á HM í handbolta karla á næsta ári.

Færeyingar misstu af HM sætinu með einu marki
Færeyingar þurfa að bíða áfram eftir að komast á heimsmeistaramótið í handbolta en landslið þeirra tapaði með átta mörkum gegn Norður-Makedóníu nú rétt í þessu og samanlagt 61-60.

Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM
Ísland tryggði sér farseðil á heimsmeistaramótið í handbolta 2025 með afar öruggum 24-37 sigri gegn Eistlandi ytra. Ísland vann fyrri leik liðanna 50-25 og einvígið samanlagt 87-49.

Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna
Eistlendingar viðurkenna að nær ómögulegt sé fyrir þá að slá út Íslendinga í umspilinu um sæti á HM í dag, enda fór fyrri leikur liðanna 50-25 í Laugardalshöll.

Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM
Sex leikir fóru fram í dag í umspili um laus sæti á heimsmeistaramótinu í handbolta 2025 og litu nokkur óvænt úrslit dagsins ljós. Um fyrri leiki liðanna var að mætast en leikið er heima og að heiman.

Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er svo gott sem komið á HM 2025 eftir 25 marka sigur á Eistlandi, 50-25, í fyrri leik liðanna í umspili í gær.

Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu
Færeyjar eru á barmi þess að komast á HM í handbolta í fyrsta sinn eftir stórsigur á Norður-Makedóníu, 34-27, í fyrri leik liðanna í umspili í kvöld. Færeyingar standa því afar vel að vígi fyrir seinni leikinn á laugardaginn.

Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann vægast sagt öruggan sigur er liðið tók á móti Eistum í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2025. Lokatölur 50-25, en seinni leikur liðanna fer fram í Eistlandi á laugardaginn.

„Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“
Gísli Þorgeir Kristjánsson átti hörkuleik fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta er liðið vann 25 marka risasigur gegn Eistlandi í undankeppni HM í kvöld, 50-25.

Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“
Einar Bragi Aðalsteinsson lék sinn fyrsta leik fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta er liðið vann 25 marka risasigur gegn Eistum í kvöld, 50-25.

„Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“
„Þetta er eitthvað sem þú reiknar ekki með sem þjálfari,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir sannkallaðan stórsigur gegn Eistum í kvöld, 50-25.

Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“
Janus Daði Smárason segir leikinn við Eistland í kvöld skyldusigur og er staðráðinn í að komast með Íslandi inn á næsta heimsmeistaramót í handbolta.

Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld
Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið leikmannahóp Íslands sem mætir Eistlandi í kvöld í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramóti karla í handbolta.

„Það er stórmót í húfi“
Viggó Kristjánsson verður í eldlínunni í kvöld þegar íslenska handboltalandsliðið mætir Eistlandi í baráttunni um sæti á HM í handbolta en í þessum tveimur umspilsleikjum er í boði sæti á heimsmeistaramótinu sem fer fram í janúar á næsta ári.

Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta mæta Eistlandi í Laugardalshöll í kvöld, í baráttu sinni um að komast á HM í janúar, og er enn hægt að fá miða á leikinn.

Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“
Gísli Þorgeir Kristjánsson kom beint af Keflavíkurflugvelli á landsliðsæfingu í fyrradag en liðsfélagi hans Janus Daði Smárason var kominn töluvert fyrr á svæðið. Miklum farangri Gísla var um að kenna.