Sýnum samstöðu Á morgun er heilsdags kvennaverkfall á Íslandi og þá eru komin 48 ár síðan konur lögðu niður störf og mótmæltu um allt land með mjög eftirminnilegum hætti. Það er auðvitað sorgleg staðreynd að öllum þessum árum síðar séu konur enn í þeim sporum að þurfa að leggja niður störf og mótmæla en það er því miður veruleikinn. Skoðun 23. október 2023 14:30
„Áhyggjur varaseðlabankastjóra eru óþarfar ef útgjaldareglu verður komið á“ Áhyggjur varaseðlabankastjóra um að mikil aukning tekna ríkissjóðs umfram áætlanir fari sjálfkrafa í meiri útgjöld, sem hún vill leysa með sérstakri tekjureglu, eru „óþarfar“ ef þess í stað verður tekin upp útgjaldaregla í lögum um opinber fjármál, að sögn þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Rannsóknir hafa sýnt að frumástæða hallarekstrar ríkissjóða sé framúrkeyrsla á útgjaldahlið en ekki skortur á tekjum. Innherji 23. október 2023 14:18
Af dyggðaskreytingu Reykjavíkurborgar Mannekla á leikskólum Reykjavíkurborgar er ekki ný af nálinni. Borgarstjórarnir okkar tveir hafa farið mikinn í fjölmiðlum og við foreldra leikskólabarna um hvernig þeir hyggjast ætla að bæta úr þessum vanda með ýmiskonar aðgerðum en allt kemur fyrir ekki, það næst ekki að ráða í stöður á nýju leikskólunum sem hafa verið byggðir og þeir leikskólar sem eru nú þegar starfræktir eru margir hverjir illa mannaðir. Skoðun 23. október 2023 12:01
Tólf milljarða vanti í íslenskan landbúnað Bændasamtökin krefjast þess að komið verði til móts við afkomubrest bænda frá 1. janúar á þessu ári og út samningstíma búvörusamninga. Eins og var gert í sprettgreiðslum til bænda í fyrra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum en þar segir að ef ekki verði brugðist við megi búast við fjöldagjaldþroti hjá bændum. Neytendur 23. október 2023 11:48
Atvinnuöryggi vegna barneigna Einn af hornsteinum jafnréttisbaráttunnar hér á landi er að tryggja rétt til fæðingarorlofs og tryggja atvinnuöryggi barnshafandi kvenna og síðar beggja foreldra, þannig að óheimilt sé að segja starfsmanni upp störfum vegna fyrirhugaðs fæðingar- eða foreldraorlofs. Skoðun 23. október 2023 11:01
Fæðingarorlof í anda jafnaðarmennsku Hvernig sköpum við réttlátara og sterkara fæðingarorlofskerfi á Íslandi? Skoðun 23. október 2023 10:01
Vinstri beygju bjargað fyrir horn Í grein á Vísi á laugardag um fyrirhugaðar umferðarþrengingar við gatnamót Hringbrautar, Eiðsgranda og Ánanausta, hélt ég því fram að einni hugmynd þar að lútandi væri ætlað að útiloka vinstri beygju frá nyrsta hluta Hringbrautar, vestur Eiðsgrandann. Skoðun 23. október 2023 07:31
Skilur sársaukann og áföllin að baki neyslunni Halldóra Mogensen segist skilja vel áföllin og sársaukann sem keyrir marga vímuefnanotendur áfram. Sjálf hafi hún leitað í vímuefni sem ung manneskja. Það ferðalag hafi endað á erfiðum stað en hefur orðið til þess að fíkniefnalöggjöf og afglæpavæðing hefur verið þingkonunni afar hugleikin. Svo hugleikin að nú hefur hún í fimmta sinn mælt fyrir frumvarpi um afglæpavæðingu. Innlent 23. október 2023 07:00
Vinstri beygjan við Eiðsgranda aldrei í hættu Vinstri beygjan af Hringbraut á Eiðsgranda við JL-húsið er ekki í hættu líkt og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur haldið fram. Beygjan sem lagt er til að hverfi er úr porti nokkrum metrum frá hringtorginu. Innlent 22. október 2023 12:18
Grænir flöskuhálsar Nýlega sat ég í starfshóp á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem hafði það hlutverk að skoða þarfir samfélagsins í Vestmannaeyjum út frá málaflokkum ráðuneytisins. Niðurstaða hópsins hvað orkumálin snertir er að nauðsynlegt er að tvöfalda flutningsgetu raforku til Vestmannaeyja svo hægt verði að koma á móts við núverandi þarfir samfélagsins sem og þær þarfir sem skapast með kröfu um orkuskipti. Skoðun 22. október 2023 09:30
Ósammála um breytt gatnamót við JL-húsið Deilt er um framkvæmdir við JL-húsið sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir gerðar í nafni umferðaröryggis. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir framkvæmdirnar óhjákvæmilegar eftir ítrekaðar kvartanir frá íbúum svæðisins. Innlent 21. október 2023 21:31
Forstjóri Ríkiskaupa segir að persónulegur ávinningur megi ekki ráða för Forstjóri Ríkiskaupa segir að persónulegur ávinningur ríkisstarfsmanna, þar með talið alþingismanna, þegar hið opinbera kaupir flugferðir fyrir starfsfólk, megi ekki ráða för. Hún segir að rammasamningur um flugfargjöld sé í endurskoðun. Innlent 21. október 2023 12:06
Ályktun kvenna í borgarstjórn í tilefni af kvennaverkfalli Á kvennaári Sameinuðu Þjóðanna 1975 var fyrst boðað til Kvennafrís á Íslandi þar sem konur voru hvattar til að leggja niður launuð og ólaunuð störf í heilan dag, þann 24. október. Tilgangurinn var að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samfélagið og að undirstrika kröfu kvenna um jafna stöðu og kjör á við karla í íslensku samfélagi. Um 90% kvenna á Íslandi tóku þátt í þessum sögulega viðburði sem markaði ákveðin vatnaskil í þróun jafnréttismála á íslandi. Skoðun 21. október 2023 12:00
Annað hvort komist allir í pottinn eða enginn Konur og kvár komast ekki í sund á Selfossi á kvennafrídaginn en karlar munu geta stungið sér ofan í. Í sundlaugum Reykjavíkurborgar verður annað hvort opið fyrir alla eða lokað fyrir alla en gert er ráð fyrir að þjónusta borgarinnar verði afar skert þennan dag. Innlent 21. október 2023 11:15
Vinstrimenn banna vinstri beygju í Vesturbænum Í fréttum að undanförnu hafa Seltirningar lýst yfir áhyggjum sínum af fyrirhuguðum, róttækum breytingum á gatnamótum Hringbrautar og Eiðisgranda, við JL-húsið. Þar er um er að ræða eina helstu samgönguæðina inn og út úr sveitarfélagi þeirra. Skoðun 21. október 2023 11:00
„Þú ert með völdin!“ Stuðningsfólk Palestínumanna sótti hart að ráðherrum fyrir ríkisstjórnarfund í morgun. Mótmælendur kröfðust tafarlausrar fordæmingar íslenskra stjórnvalda á árásum Ísraelsmanna á Gasasvæðinu síðustu vikur og afhentu forsætisráðherra lista með tvö þúsund undirskriftum til stuðnings Palestínu. Innlent 20. október 2023 11:59
Katrín hyggst leggja niður störf á þriðjudag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hyggst leggja niður störf næstkomandi í kvennaverkfalli næstkomandi þriðjudag. Innlent 20. október 2023 11:47
„Getum ekki horft á fjöldamorð í beinni útsendingu“ Mótmælendur hafa safnast saman við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem ráðherrar halda reglulegan fund. Þess er krafist að ríkisstjórnin fordæmi aðgerðir ísraelska hersins í Palestínu. Forsætisráðherra verður afhendur undirskriftalisti við lok fundar. Innlent 20. október 2023 09:25
Friður sé forsenda framfara í loftslagsmálum Utanríkisráðherra Danmerkur segir stríðsátök í heiminum geta haft neikvæð áhrif á samstarf þjóða í loftslagsmálum. Hringborð norðurslóða hafi því sjaldan verið eins mikilvægt. Forsætisráðherra er á sama máli. Friður sé forsenda framfara. Innlent 19. október 2023 23:40
Þingmenn flytja og húsgögnin sett á sölu Stefnt er að því að ný bygging Alþingis verði tekin í notkun fyrir mánaðamót. Starfsmenn þingsins eru orðnir spenntir að flytja starfstöðvar sínar en gert er ráð fyrir að byggingin spari ríkið níutíu milljónir á hverju ári. Innlent 19. október 2023 20:00
Þórdís Kolbrún segir hækkun launa í krónutölu ekki málið Eftir stuttar hamingjuóskir var hart sótt að Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur nýjum fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Hún sagði ekki tekjuvanda heldur útgjaldavanda hjá ríkinu. Sá vandi yrði ekki leystur með nýjum fjárfrekum verkefnum. Innlent 19. október 2023 11:20
Utanríkisráðherra segir fórnarlömbin ekki spyrja hver skaut Enn er óvíst hver ber ábyrgð á sprengingu sem varð allt að fimm hundruð manns að bana á Gasasvæðinu í gær. Nýr utanríkisráðherra segir að í stóra samhenginu skipti ekki máli hver beri ábyrgð heldur þurfi að bjarga óbreyttum borgurum sem búa á Gasa og í Ísrael. Innlent 18. október 2023 19:31
Fyrsta símtal Bjarna í embætti til Úkraínu Fyrsta símtal Bjarna Benediktssonar í embætti utanríkisráðherra var til Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu. Innlent 18. október 2023 18:39
Að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram Árið 1993 kom félagsmálaráðuneytið því til leiðar að kosið var um sameiningar sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Ráðuneytið, sem sinnti meðal annars sveitarstjórnarmálum, hafði lengi hvatt til hreppa og kaupstaði landsins til að mynda stærri og sjálfbærari einingar, en undirtektir verið harla litlar. Skoðun 18. október 2023 16:00
Leita hugmynda að nafni nýs húsnæðis Alþingis Alþingi hefur boðað til samkeppni um nafn á nýja skrifstofubyggingu Alþingis. Samkeppnin er opin almenningi og verður tilkynnt um niðurstöðuna á fullveldisdaginn, 1. desember næstkomandi, en ráðgert er að nýbyggingin verði tekin í notkun á næstu vikum. Innlent 18. október 2023 14:51
Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar heldur áfram að vaxa Óánægja með störf ríkisstjórnarinnar heldur áfram að vaxa, rúm 56 prósent mælast nú óánægð en aðeins sextán prósent ánægð. Þetta sýnir ný Maskínukönnun. Af kjósendum ríkisstjórnarinnar eru kjósendur Framsóknarflokksins og Vinstri grænna óánægðastir. Innlent 18. október 2023 14:43
Þolmörkum í ferðaþjónustu víða náð Til að bregðast við þeim áskorunum sem hröð fjölgun ferðamanna hefur í för með sér þarf að skoða betur leiðir til virkrar álagsstýringar á ferðamannastöðum til þess að vernda náttúruna, bæta flæði, öryggi og upplifun gesta. Skoðun 18. október 2023 14:00
Hannað hér – en sigrar heiminn Hvern hefði órað fyrir því að íslenskir eikarvaðfuglar gætu flogið svo víða? Eða að íslenskt geimhagkerfi yrði til þess að tengja saman milljónir manna? Eða að íslenskt grjót yrði eftirsóknarvert í nytjahluti. Einhverja – en þó fæsta. Skoðun 18. október 2023 11:30
Framtíðin er núna! Þær öru breytingar sem samfélag okkar gengur í gegnum kalla á nýja nálgun. Lausnir gærdagsins standast ekki kröfur dagsins í dag. Stjórnmál fortíðarinnar veikja möguleika okkar á að takast á við breytta heimsmynd. Skoðun 18. október 2023 09:01
Enn og aftur ræðum við fátækt Í dag 17. október er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Það hefur gengið illa að uppræta fátækt á Íslandi þó fátækt sé alvarlegt samfélagslegt mein sem bitnar því miður hvað mest á börnum. Árið 2021 (Hagstofan) átti rúmlega 51% einstæðra foreldra erfitt með að láta enda ná saman og víst er að staðan er mun verri núna og versnar hratt í því umhverfi sem vaxtahækkanir valda, minnkandi kaupmáttur, hækkun útgjalda og húsnæðiskostnaðar svo dæmi séu nefnd. Skoðun 17. október 2023 22:30