NATO
1 2 3 4 5 6 … 26 ›
Langþráð nýtt líf Helguvíkur í boði NATO Samningur um milljarða uppbyggingu í Helguvík á Reykjanesi var undirritaður í morgun. NATO fjármagnar framkvæmdirnar og á utanríkisráðherra von á frekari viðveru NATO hér á landi í kjölfarið. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar framkvæmdunum sem hafa haft langan aðdraganda. Innlent 27.11.2025 21:23
Útgjöld Íslands til varnarmála duga til – í bili Áform íslenskra stjórnvalda um að verja einu og hálfu prósenti af vergri landsframleiðslu í varnartengd útgjöld fyrir árið 2035 duga í bili að sögn Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, sem varði deginum á Íslandi í dag. Innlent 27.11.2025 19:49
Lýsti Íslandi sem „augum og eyrum“ Nató Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins lýsti Íslandi sem „augum og eyrum“ bandalagsins í Atlantshafi eftir fund hans og forsætisráðherra í dag. Honum þótti mikið koma til heimsóknar sinnar á öryggissvæðið við Keflavíkurflugvöll. Innlent 27.11.2025 15:23
Kristrún og Rutte boða til blaðamannafundar Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, er mætti á fund Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðið klukkan eitt í dag. Þau svara spurningum blaðamanna á blaðamannafundi klukkan 14:25 í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 27.11.2025 13:24
Íslandsheimsókn þegar uppi er flókin og erfið staða í NATO Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, glímir við eina flóknustu og erfiðustu stöðu sem bandalagið hefur staðið frammi fyrir í árafjöld að mati hernaðarsagnfræðings. Bæði er uppi breytt pólitísk staða innan sjálfs bandalagsins vegna afstöðu Bandaríkjastjórnar en einnig er ófriðvænlegt í álfunni. Innlent 27.11.2025 12:51
Gæti þýtt aukna viðveru NATO hér á landi Í dag var undirritaður samningur um uppbyggingu mannvirkja í Helguvík í samstarfi við Atlantshafsbandalagið og nemur fjárfesting NATO allt að tíu milljörðum króna. Utanríkisráðherra segir framkvæmdina sýna að Ísland sé verðugur bandamaður innan NATO. Innlent 27.11.2025 11:55
Tíu milljarða fjárfesting í Helguvíkurhöfn vegna NATO Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, undirrituðu viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu mannvirkja í Helguvíkurhöfn á tíunda tímanum í morgun. Innlent 27.11.2025 10:17
Fundar með Kristrúnu, Þorgerði og þingmönnum á Íslandi í dag Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, heimsækir Ísland í dag. Hann mun eiga fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og með fulltrúum utanríkismálanefndar og Íslandsdeildar NATO þingsins. Innlent 27.11.2025 06:32
Helsti styrkleiki Íslands sé orðinn að veikleika og landið „freistandi skotmark“ Strategísk hnattræn lega Íslands, sem áður stuðlaði að öryggi landsins, er nú meginorsök þess hve viðkvæmt landið er gagnvart ytri ógnum. Þannig er það sem lengi var helsti öryggisstyrkleiki landsins orðinn að veikleika. Þetta er mat greinanda í öryggis- og varnarmálum sem skrifar greiningu um öryggismál Íslands sem birtist í stórri erlendri hugveitu í gær. Innlent 25.11.2025 12:51
Fundað um frið í Abú Dabí Bandarískir og rússneskir erindrekar komu saman í Abú Dabí í Sameinuðu furstadæmunum í morgun. Þar stendur til að ræða frið í Úkraínu og tillögurnar sem fyrir liggja. Ólíklegt þykir að Rússar muni samþykkja þessar tillögur, sem hafa tekið nokkrum breytingum frá því þær litu fyrst dagsins ljós. Erlent 25.11.2025 12:03
Hafna kröfu Rússa um undanhald frá Dónetsk Erindrekar og embættismenn frá Bandaríkjunum, Úkraínu og öðrum ríkjum Evrópu koma saman í Genf í Sviss í dag þar sem ræða á umdeildar friðartillögur sem eiga að koma frá Bandaríkjamönnum, varðandi stríðið í Úkraínu. Úkraínskir og evrópskir erindrekar eru sagðir tilbúnir til að samþykkja þó nokkra af liðum ætlunarinnar en ætla að krefjast töluverðra breytinga. Erlent 23.11.2025 13:09
Þingmenn segja eitt en Rubio annað: Margsaga um uppruna og tilgang friðartillagnanna Bandarískir þingmenn sögðust í gærkvöldi hafa rætt við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og að hann hefði sagt þeim að friðartillögur sem Bandaríkjamenn væru að reyna að fá Úkraínumenn til að samþykkja væru „óskalisti“ Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Þingmennirnir höfðu eftir Rubio að tillögurnar mörkuðu ekki raunverulega afstöðu Bandaríkjanna. Erlent 23.11.2025 08:46
Trump býður upp á uppskrift að stríði og spillingu – ekki friði 28 punkta „friðaráætlunin“ sem Bandaríkin og Rússland vilja þröngva upp á Úkraínu og Evrópu er rangnefni. Þetta er engin friðaráætlun. Hún er þess í stað upplegg sem veikir Úkraínu, skapar sundrung milli Bandaríkjanna og Evrópu og undirbýr jarðveginn fyrir stærra stríð í framtíðinni. Umræðan 22.11.2025 12:51
Pútín tekur vel í „friðaráætlun Trumps“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að friðaráætlun sem kynnt var fyrir ráðamönnum í Úkraínu á dögunum, gæti verið grunnur að friðarsamkomulagi milli Rússlands og Úkraínu. Á fundi þjóðaröryggisráðs Rússlands í gærkvöldi hótaði Pútín að leggja undir sig enn meira landsvæði í Úkraínu, verði áætlunin ekki samþykkt. Erlent 22.11.2025 08:32
Hernaðarstuðningur hækkar ekki og Rutte kunnugt um „íslenska öryggismódelið“ Ekki stendur til að auka hernaðarstuðning við Úkraínu á næsta ári þótt gert sé ráð fyrir að útgjöld Íslands til öryggis- og varnarmála hækki um einn og hálfan milljarð á milli ára. Útgjöld Íslands komast ekki á blað í samanburði við önnur bandalagsríki en forsætisráðherra gerir ráð fyrir að framlag Íslands verði rætt í heimsókn framkvæmdastjóra NATO til landsins í næstu viku. Vinna stendur yfir á vettvangi NATO sem og hér innanlands við að skilgreina hvaða útgjöld megi telja til 1,5% framlags bandalagsríkja af vergri landsframleiðslu til að efla varnir og viðnámsþrótt. Innlent 21.11.2025 20:33
„Annaðhvort þessir 28 liðir eða gífurlega erfiður vetur“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði þjóð sína í dag og sagði hana í einhverri erfiðustu stöðu sem þjóðin hefði upplifað. Helstu bandamenn Úkraínumanna reyndu að þvinga þá til að gera slæmt samkomulag við Rússa, sem hefðu reynt að sigra Úkraínu í ellefu ár. Erlent 21.11.2025 15:52
Hóta að skera á flæði vopna og upplýsinga skrifi Selenskí ekki fljótt undir Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hafa hótað því að skera á flæði upplýsinga og vopna til Úkraínumanna. Það verði gert skrifi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ekki fljótt undir friðaráætlun sem Úkraínumenn komu ekkert að því að semja og þykir halla verulega á þá. Erlent 21.11.2025 13:30
Svona lítur friðaráætlun Bandaríkjamanna og Rússa út Bandarískir erindrekar kynntu í gær 28 liða friðaráætlun fyrir ráðamönnum í Kænugarði. Áætlunin þykir þegar umdeild og var henni í gær lýst sem „óskalista“ Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Erlent 21.11.2025 10:33
Mark Rutte heimsækir Ísland Mark Rutte framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins er væntanlegur í heimsókn til Íslands þann 27. nóvember næstkomandi. Um er að ræða vinnuheimsókn og er þetta hans fyrsta heimsókn til Íslands í stöðu framkvæmdastjóra síðan hann tók við af Jens Stoltenberg í október 2024. Innlent 17.11.2025 09:14
Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Vöxtur ferðaþjónustu og koma danskra hermanna virðast ætla að bjarga grænlenska þorpinu Kangerlussuaq frá því að leggjast í eyði. Það varð til vegna flugvallar og bjuggust flestir við að byggðin myndi hrynja við brotthvarf millilandaflugs í fyrra. Annað er að koma á daginn. Erlent 9.11.2025 21:51
Sakar Evrópu um stríðsæsingu Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sakaði í morgun ríki Evrópu um stríðsæsingu. Ráðherrann sagði að Rússar hefðu engan áhuga á að ráðast á nokkurt ríki í Atlantshafsbandalaginu (NATO) eða Evrópusambandinu en að NATO vildi tryggja sér yfirráð yfir Evrasíu. Erlent 28.10.2025 14:09
Bresk freigáta í Akureyrarhöfn Freigáta breska flotans, HMS Somerset, er komin til hafnar á Akureyri. Heimsóknin er liður í „yfirstandandi aðgerðum Konunglega breska flotans í Norður-Atlantshafi. Innlent 26.10.2025 19:36
Vinstrikona gegn ESB og NATO líklegur næsti forseti Írlands Tvær konur bítast um embætti forseta Írlands í kosningum sem fara fram í dag. Sósíalisti sem er neikvæður í garð Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins hefur mælst með forskot í skoðanakönnunum. Erlent 24.10.2025 15:51
Varnar- og öryggisstefna fyrir Ísland: Áhersla á Norðurslóðir, NATO og samstarf við Bandaríkin Þingsályktunartillögu um fyrstu formlegu stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum hefur verið dreift á Alþingi. Tillagan felur í sér þrettán megináherslur, meðal annars um aukna þátttöku Íslands í starfi og verkefnum Atlantshafsbandalagsins, að efla varnarsamstarf við Bandaríkin og annað tvíhliða samstarf við bandalagsríki, og að styrkja þátttöku Íslands í svæðisbundnu samstarfi, einkum á Norðurslóðum. Tillagan er í megindráttum í samræmi við þær fjórtán lykiláherslur sem samráðshópur þingmanna lagði til í skýrslu sem kynnt var í september. Innlent 24.10.2025 08:11
Verja kjarnorkuvopn sín á norðurslóðum með leynilegu eftirlitskerfi Rússneski herinn hefur um árabil komið fyrir leynilegum skynjurum á hafsbotni í norðurhöfum til að vakta skipasiglingar Atlantshafsbandalagins. Eftirlitskerfið leynilega var búið til með tækni frá Svíþjóð og öðrum Vesturlöndum. Erlent 23.10.2025 17:00
Leggur viðskiptaþvinganir á rússneska olíurisa Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað þungar refsiaðgerðir á hendur tveimur stærstu olíurisum Rússlands. Hann sakar Rússlandsstjórn um ónóga viðleitni til að koma á friðarsamkomulagi vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 22.10.2025 23:39
Samkomulag við Þjóðverja eigi að tryggja varnir og öryggi Íslendinga Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, undirrituðu í dag tvíhliða viljayfirlýsingu um varnarmál í tengslum við heimsókn Pistoriusar til Íslands. Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að með yfirlýsingunni sé lagður grunnur að auknu samstarfi Íslands og Þýskalands sem efli eftirlit og öryggi á Norður-Atlantshafi og sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins. Innlent 19.10.2025 21:18
Ræddi Gasa við Hegseth og bauð honum til Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fund varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í gær, þar sem varnir bandalagsríkja gegn fjölþáttaógnum og stuðningur bandalagsins við Úkraínu voru meðal annars í brennidepli. Þá átti hún meðal annars spjall við Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, um Gasa auk þess sem Þorgerður hvatti hann til að koma í heimsókn til Íslands. Innlent 16.10.2025 12:33
Rússneskur kafbátur í fylgd sænska hersins Sænski herinn hefur í morgun fylgt rússneskum kafbáti á Eystrasalti. Bæði skip og þota sænska hersins fylgja kafbátnum sem í gær sigldi inn Eystrasalt um Stórabelti að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá sænska hernum í morgun. Erlent 15.10.2025 08:02
Danir stórefla varnir Grænlands með freigátum og orustuþotum Dönsk stjórnvöld hafa í samráði við Grænlendinga tilkynnt um stóraukin hernaðarútgjöld vegna Grænlands og norðurslóða. Ákvörðunin þýðir miklar framkvæmdir á næstu árum í þessu næsta nágrannalandi Íslands og aukna viðveru herflugvéla og herskipa. Innlent 14.10.2025 21:21