
Tyrkland

Ungverjar einnig hlynntir aðild Svía að NATO
Yfirvöld í Ungverjalandi ætla að styðja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið en utanríkisráðherra landsins sagði í morgun að samþykkt innngöngu Svía væri nú eingöngu tæknilegs eðlis. Tyrkir og Ungverjar voru þeir einu sem settu sig á móti inngöngu Svía en Peter Szijjarto, áðurnefndur utanríkisráðherra, sagði í síðustu viku að Ungverjar myndu fylgja Tyrkjum, skiptu þeir síðarnefndu um skoðun.

Erdogan samþykkir NATO-aðild Svía
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hefur samþykkt aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, greindi frá þessu í kvöld.

Rússar reiðir eftir að Erdogan sleppti verjendum Maríupól
Fimm af leiðtogum úkraínskra hermanna í Maríupól fengu í gær að fara frá Tyrklandi til Úkraínu, í fylgd með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Það að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi leyft þeim að fara til Úkraínu hefur reitt yfirvöld í Moskvu til reiði.

Freista þess að tryggja aðild Svía í Vilníus í næstu viku
Joe Biden Bandaríkjaforseti tók á móti Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Hvíta húsinu í gær, þar sem leiðtogarnir ræddu meðal aðildarumsókn Svía að Atlantshafsbandalaginu.

Ráðist inn í sænska sendiráðið í Bagdad vegna Kóranbrennu
Hópur reiðra mótmælenda réðst inn í sænska sendiráðið í Bagdad. Mótmælin voru boðuð eftir að írakskur maður kveikti í Kóraninum fyrir utan mosku í Stokkhólmi í gær. Fjöldi múslimaríkja hefur fordæmt bókabrennuna.

Icelandair hefur samstarf við Turkish Airlines
Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning sem felst í því flugfélögin munu geta boðið viðskiptavinum sínum tengingar á milli leiðakerfa sinna og þannig aukið úrval tengimöguleika.

Sigur Erdogans staðfestur
Recep Tayyip Erdogan var í dag endurkjörinn forseti Tyrklands. Hann verður forseti í fimm ár til viðbótar og mun þá hafa verið í embætti í aldarfjórðung. Hann hafði betur gegn mótframbjóðandanum Kemel Kilicdaroglu í seinni umferð forsetakosninga.

Stefnir í fimmta kjörtímabil Erdogan
Þrátt fyrir að það sé mjótt á munum í seinni umferð forsetakosninganna í Tyrklandi stefnir allt í að Erdogan Tyrklandsforseti nái enn einu sinni endurkjöri. Forsetatíð Erdogan er orðin tuttugu ár og hann verður áfram forseti næstu fimm árin ná hann endurkjöri. Hann ávarpaði stuðningsmenn sína fyrir skömmu og lýsti yfir sigri í kosningunum.

Erdogan í góðri stöðu fyrir aðra lotu
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er í góðri stöðu eftir fyrstu lotu forsetakosninga. Flokkarnir á bakvið hann héldu líklega meirihluta á þingi og hann er aðeins rúmlega hálfu prósentustigi frá því að tryggja sér meirihluta atkvæða.

Allar líkur á annarri umferð í forsetakosningunum í Tyrklandi
Mestar líkur virðast nú vera á því að önnur umferð muni fara fram í forsetakosningunum í Tyrklandi, þar sem kosið verður á milli tveggja efstu frambjóðandanna.

Bilið milli Erdogan og Kilicdaroglu minnkar
Munurinn milli forsetaframbjóðenda í Tyrklandi hefur minnkað síðan fyrstu tölur bárust í kvöld. Enginn frambjóðandi er með yfir helming atkvæða eins og stendur. Endi kosningarnar þannig þarf að ganga aftur til kosninga.

Erdogan leiðir en Kilicdaroglu er sigurviss
Núverandi forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, leiðir forsetakosningarnar í landinu eftir fyrstu tölur. Búið er að telja tæplega rúm fjörutíu prósent atkvæða og fékk Erdogan um 52,5 prósent þeirra. Helsti andstæðingur Erdogan í kosningunum, Kemal Kilicdaroglu, fékk 41,55 prósent atkvæða.

Twitter sagt láta undan þrýstingi Erdogan
Andófsmaður og rannsóknarblaðamaður eru á meðal þeirra sem samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa fallist á að fela fyrir tyrkenskum notendum sínum rétt fyrir mikilvægustu kosningar í landinu í áraraðir. Twitter hefur ekki sagt hvers kyns efni miðilinn samþykkti að ritskoða.

Skrúfa fyrir valið efni korter í kosningar
Samfélagsmiðillinn Twitter hefur tilkynnt að ákveðið efni á miðlinum verði ekki aðgengilegt notendum hans í Tyrklandi. Gríðarlega mikilvægar kosningar verða í landinu á morgun en litlu sem engu munar á sitjandi forsetanum Erdogan og keppinauti hans Kemal Kilicdaroglu í skoðanakönnunum.

Gera sér vonir um að velta Erdogan úr sessi
Tyrkneska stjórnarandstaðan vonast til þess að tuttugu ára valdatíð Receps Erdogan forseta ljúki eftir forseta- og þingkosningar sem fara fram á sunnudag. Erdogan er ekki talinn hafa staðið eins veikt og nú áður, að stórum hluta vegna óstjórnar í efnahagsmálum.

Hækkar laun um 45 prósent rétt fyrir kosningar
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, tilkynnti í morgun að laun opinberra starfsmanna yrðu hækkuð um 45 prósent. Nokkrir dagar eru í forsetakosningar í Tyrklandi en skoðanakannanir gefa til kynna að Erdogan sé í vandræðum.

Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra.

Íslenskar björgunarsveitir fengu viðurkenningu frá Erdogan
Tyrkir héldu í dag athöfn til að þakka erlendum og tyrkneskum björgunarsveitum sem sinntu björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir í Tyrklandi sjötta febrúar. Fulltrúi íslenskra björgunarsveita var meðal þeirra sem tóku við heiðursorðu frá Tyrklandsforseta á athöfninni.

110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi
Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu.

Tyrkland leggur blessun sína yfir umsókn Finnlands
Finnland og Svíþjóð óskuðu eftir því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið, NATO, á síðasta ári í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Umsóknin hefur strandað á Tyrklandi en nú hefur tyrkneska þingið samþykkt umsóknina. Öll aðildarríki bandalagsins hafa því nú samþykkt inngöngu Finnlands.

Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili.

Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna
Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu.

Stjórnarandstaðan sameinast um mótframbjóðanda gegn Erdogan
Sex stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi, sem jafnan hafa verið sundraðir í sínum störfum, hafa náð saman um forsetaframbjóðanda sem þeir vonast til að muni ná að koma Recep Tayyip Erdogan af forsetastóli í kosningunum sem fram fara í landinu í maí.

Þrír látnir í Tyrklandi eftir skjálfta gærdagsins
Björgunarsveitir í Tyrklandi leita nú aftur að fólki í rústum húsa eftir að tveir öflugir skjálftar riðu þar yfir í gær.

Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands
Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu.

Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild
Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun.

Atsu fannst látinn í rústum
Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn.

Tala látinna komin í 45 þúsund
Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi.

„Þetta var miklu, miklu stærri atburður en við höfðum æft“
Seinni hluti íslenska hópsins sem var við störf á jarðskjálftasvæðinu í Tyrklandi kom heim til Íslands í dag. Teymisstjóri hópsins segir frábært að geta hjálpað en að sama skapi sé gott að vera komin heim.

Færði heimsbyggðinni þakkir fyrir aðstoðina
Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, þakkaði í dag öllum þeim ríkjum sem hafa boðið fram aðstoð sína eftir skjálftana mannskæðu í síðustu viku en að hans sögn hafa hundrað ríki boðist til að aðstoða og eru björgunarsveitir frá 76 löndum núna í Tyrklandi.