Svíþjóð
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 38 ›
Aðildarumsókn Svía og Finna afgreidd á methraða Aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir Svía og Finna fá aðild að bandalaginu með met hraða. Putin Rússlandsforseti sé nú að uppskera stærra NATO með innrás sinni í Úkraínu, þvert á það sem hann stefndi að. Forsætisráðherra fagnar aðild Finna og Svía að NATO. Erlent 29.6.2022 13:19
Krefst þyngri refsingar yfir plastbarkalækninum Saksóknarar í Svíþjóð áfrýjuðu dómi yfir Paolo Macchiarini, ítölskum skurðlækni, sem er sakaður um að hafa beitt sjúklinga grófum líkamsmeiðingum með plastbarkaígræðslum sínum, í dag. Þeir sækjast eftir því að læknirinn hljóti þungan fangelsisdóm. Erlent 29.6.2022 12:40
NATO verði enn sterkara með inngöngu Finna og Svía Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist ákaflega fegin að hindranir við inngöngu Finna og Svía í NATO hafi verið fjarlægðar. Atlantsahafsbandalagið verði enn sterkara og öruggara með inngöngu ríkjanna tveggja. Innlent 28.6.2022 20:50
Tyrkir samþykkja aðild Svía og Finna að NATO Tyrkir hafa samþykkt aðildarumsókn Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Einn sögulegasti leiðtogafundur í sögu NATO hófst formlega í Madríd í dag þar sem meðal annars verður samþykkt að auka umsvif bandalagsins í austur Evrópu. Erlent 28.6.2022 18:53
Enn eitt aðsóknarmetið á kvennaleik er Svíþjóð hafði betur gegn Brasilíu Aldrei hafa fleiri áhorfendur fylgst með kvennaleik í Svíþjóð en þegar heimakonur unnu 3-1 sigur gegn Brasilíu í vináttulandsleik á Friends Arena í Solna í kvöld. Fótbolti 28.6.2022 18:23
Andersson, Erdogan og Niinistö funda á morgun Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti munu hittast á fundi á morgun til að ræða umsóknir Svíþjóðar og Finnlands að NATO. Erlent 27.6.2022 07:36
Svana Gísla framleiðir ABBA sýninguna í London: „Þetta hefur aldrei verið gert áður“ Framleiðandinn Svana Gísla hefur á undanförnum árum unnið hörðum höndum að því að láta stórsýninguna ABBA Voyage verða að veruleika. Svana og Ludvig Andersson framleiða sýninguna saman og unnu þau náið með leikstjóranum Baillie Walsh. Blaðamaður tók púlsinn á Svönu og fékk að heyra nánar frá þessu spennandi ferli. Tónlist 21.6.2022 10:00
Macchiarini sakfelldur fyrir eina plastbarkaígræðsluna Ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini var í morgun sakfelldur í einum af þremur ákæruliðum í tengslum við plastbarkaígræðslur sem hann framkvæmdi á árunum 2010 til 2012. Erlent 16.6.2022 10:11
Ekkert saknæmt við dauða Lars Vilks Lögregla í Svíþjóð hefur lokið við rannsókn á dauða listamannsins Lars Vilks og tveggja lögreglumanna sem fórust í bílslysi skammt frá Markaryd í Smálöndunum á síðasta ári. Niðurstaðan er sú að ekkert saknæmt hafi átt sér stað. Erlent 16.6.2022 07:54
Lína langsokkur eða Lóa langsokkur? Fyrst þegar Pippi Långstrump eftir Astrid Lindgren var þýdd á íslensku hét söguhetjan ekki Lína langsokkur, eins og við þekkjum hana í dag, heldur Lóa langsokkur. Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur og rithöfundur, vakti athygli á þessu á Twitter í gær. Menning 13.6.2022 14:01
MeToo-bylgja skellur á skipverjum í Danmörku og Svíþjóð Fjöldi kvenna sem vinna á sjó í Danmörku og Svíþjóð hafa greint frá kynferðislegu ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir við störf sín. Starfsmaður Maersk í Danmörku var beðin um að ræða sjálf við meintan geranda sinn til að leysa mál þeirra. Erlent 13.6.2022 10:42
Vantraust á ráðherra fellt og sænska stjórnin situr áfram Dómsmála- og innanríkisráðherra Svíþjóðar stóð af sér vantrauststillögu í sænska þinginu í dag. Magdalena Anderson forsætisráðherra hafði hótað því að ríkisstjórnin segði af sér ef vantrausti yrði lýst á ráðherrann. Erlent 7.6.2022 11:29
Líf sænsku stjórnarinnar í húfi í atkvæðagreiðslu um vantraust Úrslit atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á hendur dómsmálaráðherra Svíþjóðar sem fer fram í sænska þinginu í dag gætu ráðið örlögum ríkisstjórnar Magdalenu Anderson forsætisráðherra. Útlit er fyrir að ráðherrann standi tillöguna af sér naumlega. Erlent 7.6.2022 08:45
Bjartsýn á að Tyrkjum snúist hugur Umræða um staðfestingu á viðbótarsamningi Atlantshafsbandalagsins um inngöngu Svíþjóðar og Finnlands í bandalagið hófst á Alþingi í gær. Yfirgnæfandi stuðningur var við málið á þinginu, þvert á flokka. Innlent 2.6.2022 10:23
Langar biðraðir á flugvöllum um alla Evrópu Ferðasumarið er hafið og langar biðraðir hafa myndast á flugvöllum um alla Evrópu. Kerfisbilanir og skortur á starfsfólki spila inn í það, ásamt mikilli aukningu á ferðamönnum eftir tvö sumur í röð með heimsfaraldri. Erlent 1.6.2022 14:10
Tveir skotnir til bana í Örebro í nótt Tveir menn á þrítugsaldri voru skotnir til bana í sænsku borginni Örebro í gærkvöldi. Erlent 30.5.2022 08:03
Gullpálminn fyrir ádeilu með löngu æluatriði Kvikmyndin „Þríhyrningur depurðarinnar“ eftir sænska leikstjórann Ruben Östlund hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi. Henni er lýst sem meinhæðinni samfélagsádeilu með langdregnu æluatriði. Bíó og sjónvarp 29.5.2022 11:24
Zlatan í aðgerð og ferlinum mögulega lokið Zlatan Ibrahimovic verður frá keppni út þetta ár vegna meiðsla og mögulega er ferli þessa fertuga knattspyrnugoðs þar með lokið. Fótbolti 25.5.2022 16:02
„Beta er drottning í Kristianstad“ Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, segir það afar dýrmætt að hafa fengið að spila eitt tímabil undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur hjá Kristianstad. Hún talar afar vel um Elísabetu sem hefur stýrt Kristianstad frá 2009. Fótbolti 25.5.2022 09:00
Fyrsti rafmagnsflugmaður Íslands: „Ótrúlega spennandi að vera partur af þessari þróun“ Eyleif Ósk er 25 ára gömul og starfar sem flugkennari og flugmaður í Svíþjóð, þar sem hún sérhæfir sig í að fljúga rafmagns flugvélum. Eftir að hafa spurst fyrir hér heima segir hún ljóst að hún sé fyrsti rafmagns flugmaður Íslands. Blaðamaður hafði samband við Eyleif og fékk að skyggnast inn í hennar spennandi heim. Lífið 23.5.2022 15:06
Fer fram á fimm ára fangelsi yfir Macchiarini Saksóknari í Svíþjóð hefur farið fram á að ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini verði dæmdur í fimm ára fangelsi vegna grófra líkamsmeiðinga á þremur einstaklingum sem fengu grædda í sig plastbarka hjá lækninum. Sjúklingarnir létust allir fáeinum mánuðum eftir aðgerðirnar. Erlent 23.5.2022 14:24
Erdogan ræddi við Andersson og Niinistö um áhyggjur Tyrkja Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, átti samtöl við leiðtoga Svíþjóðar og Finnlands í dag, þar sem umræðuefnið voru umsóknir ríkjanna um aðild að Atlantshafsbandalaginu og andstaða Tyrklands við inngöngu þeirra. Erlent 21.5.2022 22:25
Erdogan vill fá „hryðjuverkamenn“ afhenta gegn samþykki fyrir aðild Reuters greinir nú frá því að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi gefið út hvað hann vill fá gegn því að samþykkja aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 18.5.2022 11:37
Svíar og Finnar hafa formlega sótt um aðild Svíar og Finnar hafa formlega skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 18.5.2022 07:48
200 ára hlutleysi kastað á glæ Núna hafa ríkisstjórnir Svíþjóðar og Finnlands samþykkt að sækja um aðild að hernaðarbandalaginu Nató og ríkisstjórn Íslands lýst því yfir að hún muni styðja þá umsókn. Þessi umsnúningur í utanríkisstefnu þessara áður hlutlausu landa kemur kannski ekki mjög á óvart. Bæði löndin hafa unnið náið með Nató síðan Kalda stríðinu lauk og í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu hefur orðið umsnúningur í afstöðu almennings til aðildar. Skoðun 18.5.2022 07:00
Óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá Utanríkisráðherra segir óviðeigandi af Tyrkjum að setja ótengd mál á dagskrá vegna umsóknar Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Hún gerir ráð fyrir að málið verði leyst. Innlent 17.5.2022 11:54
„Ég verð að segja að umhverfið hér er með því fallegasta sem ég hef séð“ Sænska Eurovision stjarnan Robin Bengtsson var staddur á Íslandi um helgina þar sem hann kom fram á árshátíð Arion banka sem haldin var í Kórnum. Hann nýtti ferðina til þess að kíkja í Bláa lónið með konunni sinni, dansaranum Sigrid Bernson. Lífið 9.5.2022 17:31
Svíar syrgja Bengt Johansson Sænski handknattleiksþjálfarinn Bengt Johansson, sem stýrði sænska karlalandsliðinu á sannkölluðu gullaldarskeiði þess í lok síðustu aldar, er látinn. Handbolti 9.5.2022 09:16
Brösuleg æfing hjá Svíum Fyrsti dagur okkar á Eurovision var heldur betur viðburðarríkur. Við mættum í blaðamannahöllina og tókum púlsinn á Kristínu Kristjánsdóttur hjá FÁSES, félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Tónlist 7.5.2022 14:04
Ólafur fer af Landspítala til Karolinska í Svíþjóð Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, hefur verið ráðinn til háskólasjúkrahússins Karolinska í Stokkhólmi í Svíþjóð sem forstöðumaður lungna- og ofnæmislækninga. Innlent 29.4.2022 12:56
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent