Reykjavík Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Samkvæmt heimildum fréttastofu verður oddviti Samfylkingar kjörinn borgarstjóri á fundi borgarstjórnar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Stjórnmálafræðingur segir það krefjandi fyrir nýjan borgarstjóra að halda svo breiðu samstarfi gangandi. Innlent 21.2.2025 12:48 Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Rúta sem festist á túni við Höfða í gær olli miklu tjóni. Ökumaðurinn var reynslulítill en rútufyrirtækið ætlar sér að greiða allt tjón. Verkefnastjóri segir algengt að rútubílstjórar keyri á túninu. Innlent 21.2.2025 09:03 Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ætla að tjalda í Kópavogi þangað til að nýr meirihluti í Reykjavíkurborg sé sprunginn. Greint var frá því í dag að Heiða Björg Hilmisdóttir yrði næsti borgarstjóri en hún og Jón Pétur hafa eldað grátt silfur um einhvern tíma. Innlent 21.2.2025 08:01 Byggjum meira á Kjalarnesi Skoðun 21.2.2025 07:32
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Samkvæmt heimildum fréttastofu verður oddviti Samfylkingar kjörinn borgarstjóri á fundi borgarstjórnar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Stjórnmálafræðingur segir það krefjandi fyrir nýjan borgarstjóra að halda svo breiðu samstarfi gangandi. Innlent 21.2.2025 12:48
Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Rúta sem festist á túni við Höfða í gær olli miklu tjóni. Ökumaðurinn var reynslulítill en rútufyrirtækið ætlar sér að greiða allt tjón. Verkefnastjóri segir algengt að rútubílstjórar keyri á túninu. Innlent 21.2.2025 09:03
Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ætla að tjalda í Kópavogi þangað til að nýr meirihluti í Reykjavíkurborg sé sprunginn. Greint var frá því í dag að Heiða Björg Hilmisdóttir yrði næsti borgarstjóri en hún og Jón Pétur hafa eldað grátt silfur um einhvern tíma. Innlent 21.2.2025 08:01
Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Gerandi í máli Bryndísar Klöru Birgisdóttur hefur átt í samskiptum við lykilvitni í málinu. Rúv greinir frá. Hann sætir gæsluvarðhaldi á meðan málið er til meðferðar hjá dómstólum. Gerandinn er ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps. Innlent 20.2.2025 20:36
„Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segist hafa fulla trú á því að Heiða Björg Hilmisdóttir oddviti Samfylkingar verði afbragðsborgarstjóri. Vísir greindi frá því í dag að Heiða verði kjörinn borgarstjóri á aukafundi sem haldinn verður á morgun. Innlent 20.2.2025 20:25
Heiða Björg verður borgarstjóri Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn verður næsti borgarstjóri í Reykjavík. Heimildir fréttastofu herma þetta. Innlent 20.2.2025 18:29
Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Göngumaður rann í hálku á Esjunni og sneri á sér ökklann. Við það komst hann í sjálfheldu svo þurfti að aðstoða hann niður. Innlent 20.2.2025 17:35
Nýr borgarstjóri kynntur á morgun Nýr borgarstjóri tekur við völdum í Reykjavík á morgun þegar greidd verða atkvæði um tillögu nýs meirihluta á aukafundi borgarstjórnar. Innlent 20.2.2025 16:52
Refsing Dagbjartar þyngd verulega Landsréttur hefur þyngt fangelsisdóm Dagbjartar Guðrúnar Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri, í Bátavogsmálinu svokallaða. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hana í tíu ára fangelsi, en Landsréttur dæmdi hana í sextán ára fangelsi. Innlent 20.2.2025 15:12
Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Rúta ME travel sem sat pikkföst á túninu við Höfða í Reykjavík komst í ógöngur fyrr í dag. Þá var henni ekið á steyptan klump við Austurvöll en bannað er að aka rútum á því svæði í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 20.2.2025 14:41
Mokum ofan í skotgrafirnar Það var árið 2016 að Reykjavíkurborg keypti land í Skerjafirði af íslenska ríkinu. Tilgangurinn var að nota þetta frábæra byggingarland fyrir íbúðir í ört stækkandi borg sem Reykjavík sannarlega er. Það var sett í gang samkeppni og tillaga ASK arkitekta stóð upp að mati dómnefndar og vinna gat hafist. Skoðun 20.2.2025 14:31
Stórskemmdi grasflötina við Höfða Rútu á vegum ME travel var ekið inn á grasið við Höfða í Borgartúni á öðrum tímanum í dag og er þar pikkföst. Ljót för eru í blautu grasinu eftir rútuna en eigandi fyrirtækisins heitir því að bæta tjónið. Kínverskir ferðamenn voru um borð í rútunni og bíða nú eftir að rútan verði losuð. Innlent 20.2.2025 13:19
Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Heimar hf. hafa undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Tryggvagötu ehf., sem á fasteignirnar að Tryggvagötu 10 og 14. Fasteignirnar hýsa Exeter hótelið og samskiptafélagið Aton. Bygging fasteignanna var mjög umdeild enda var friðað hús rifið til þess að þeim yrði komið fyrir. Viðskipti innlent 20.2.2025 13:08
Þurfi að leggja meira í skóla án aðgreiningar svo stefnan virki Ásthildur Lóa Þórsdóttir, barna- og menntamálaráðherra, segir áríðandi að þegar erfið mál komi upp innan skóla sé strax tekið á þeim. Töluvert hefur verið fjallað um erfiða stöðu innan Breiðholtsskóla undanfarið. Faðir stúlku í 7. bekk steig nýverið fram og lýsti ofbeldismenningu innan skólans. Innlent 20.2.2025 12:01
Segja loforð svikin í Skálafelli Hópurinn Opnum Skálafell kallar eftir því að stjórnvöld og hluteigandi aðilar standi við gerða samninga um uppbyggingu í Skálafelli. Skíðasvæðið í Skálafelli hefur verið lokað í allan vetur, annað árið í röð. Fulltrúar hópsins óttast að stjórnvöld séu að reyna hlaupa undan gerðum samningum. Innlent 20.2.2025 11:51
María og Ingileif gjörbreyttu 150 fermetra parhúsi í Vesturbænum fyrir fimm milljónir Hjónin María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, og Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarkona Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fjárfestu í fallegu tæplega hundrað ára parhúsi við Hringbraut árið 2022. Lífið 20.2.2025 10:30
Bein útsending: Stærðin skiptir máli Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir ráðstefnu um risaframkvæmdir á Íslandi og mikilvægi vandaðrar verkefnastjórnsýslu (e. Project governance) á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Viðskipti innlent 20.2.2025 08:32
Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Hamborgarafabrikkunni Allt tiltækt slökkvilið var kallað út í nótt á þriðja tímanum þegar eldur kom upp í veitingastaðnum Hamborgarafabrikkunni, sem staðsettur er á Höfðatorgi við Katrínartún. Innlent 20.2.2025 06:44
Vongóð um að nýr meirihluti verði myndaður fyrir helgi Oddviti Pírata segist vongóður um að meirihlutaviðræðum síðustu daga verði lokið í þessari viku. Stólar og embætti hafi enn lítið verið rædd. Innlent 18.2.2025 17:19
Segir búið að teikna upp aðgerðir og boðar til aukafundar Boðað hefur verið til aukafundar í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur á morgun til að ræða stöðuna í Breiðholtsskóla. Staða skólans er eina málið sem er á dagskrá fundarins. Steinn Jóhannsson sviðsstjóri hjá skóla- og frístundsviði segir unnið að því að bregðast við svo börn séu örugg í skólanum og foreldrum líði vel með að senda börnin í skólann. Innlent 18.2.2025 16:07
Enginn með stöðu sakbornings í rannsókninni á Mánagarði Enginn er kominn með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á E. coli-smiti í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í október á síðasta ári. Innlent 18.2.2025 11:28
Minni pólitík, meiri fagmennska Nú bregður til tíðinda. Fjármálaráðherra kynnti fyrir helgi að valferli í fyrirtæki í eigu ríkisins verði nú byggt á faglegum forsendum. Skoðun 18.2.2025 11:17
Ný krydd í skuldasúpuna Á dagskrá fundar borgarstjórnar í dag eru mörg mál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram á yfirstandandi kjörtímabili. Málaskráin varpar meðal annars ljósi á tillögur sem fulltrúar flokksins hafa hingað til lagt fram svo að hægt sé að ná tökum á rekstri Reykjavíkurborgar. Skoðun 18.2.2025 10:31
Þingmanni blöskrar viðbragðsleysi skólastjóra Jón Pétur Zimsen, fyrrverandi skólastjóri og núverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega viðbrögð stjórnvalda og skólayfirvalda við alvarlegum agavanda í Breiðholtsskóla. Hann segir það óboðlegt að ofbeldismenningu hafi verið leyft að grassera þar árum saman án raunverulegra úrbóta. Innlent 18.2.2025 10:12
Einn „gekk berserksgang“ og annar vildi inn í Stjórnarráðshúsið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gærkvöldi eða nótt eftir að viðkomandi „gekk berserksgang“ í húsnæði hjálparstofnunar. Innlent 18.2.2025 06:21
Vatnslögn rofnaði við Hörpu Kaldavatnslögn fór í sundur við austurgafl tónleikahússins Hörpu í Reykjavík síðdegis. Framkvæmdastjóri segir tjónið óverulegt. Innlent 17.2.2025 22:13
Ofbeldi í Breiðholtsskóla: Hélt að málið væri á réttri leið Formaður skóla- og frístundaráðs segir Reykjavíkurborg hugsanlega ekki hafa stigið nógu fast niður varðandi ofbeldi í Breiðholtsskóla. Hún hélt að málið væri á réttri leið en svo reyndist ekki. Innlent 17.2.2025 20:36
Drög að málefnasamningi liggi fyrir Drög að málefnasamningi liggja fyrir í meirihlutaviðræðunum í Reykjavík meðal annars með nýjungum í húsnæðismálum, að sögn oddvita Samfylkingar. Þær hafi samið um fjölmargar aðgerðir í borginni og ætli að óska eftir auka borgarstjórnarfundi í vikunni. Innlent 17.2.2025 18:31
Sagðist ekki muna eftir árásinni en vissi að hann hefði gert eitthvað slæmt Drengurinn sem er ákærður fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps í Menningarnæturmálinu svokallaða sagðist í fyrstu muna lítið eftir atvikum málsins. Innlent 17.2.2025 16:55