

Ekki lítur út fyrir að Þjóðhátíð verði haldin í Vestmannaeyjum í ár vegna kórónuveirufaraldursins. Jónas Guðbjörn Jónsson, varaformaður Þjóðhátíðarnefndar, segir aðstæður ekki líta vel út og ólíklegt sé að hátíðin fari fram í ár, í aðeisn þriðja skipti skipti í 145 ára sögu Þjóðhátíðar í Eyjum.
Loka hefur þurft af ákveðið svæði Breiðholtslaugar vegna framkvæmda við undirlag leiktækja við laugina. Leiktækin og undirlag þeirra var sett upp síðasta sumar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar nú kosti um fimm milljónir króna.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í mjög annarlegu ástandi við Austurvöll upp úr klukkan hálf sex í gærkvöldi. Sá hafði verið að áreita fólk.
Handboltamaðurinn og lífskúnstnerinn Ólafur Stefánsson, skemmti gestum og gangandi á Laugaveginum í dag en hann stóð fyrir viðburðinum Kakó og undrun með Óla Stef fyrir utan Vínstúkuna Tíu sopa.
Óskað var eftir skjótri aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu klukkan 18:25 í gærkvöldi vegna karlmanns Breiðholti. Sá var í mjög annarlegu ástandi og hafði veist að barni og konu.
Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli dróst saman um 96% í júní samanborið við sama tíma í fyrra. Samdrátturinn hefur haft gríðarleg áhrif á ýmsa ferðamannatengda afþreyingu í borginni allt niður í 95% samdrátt.
Formaður velferðarráðs og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar segir ofbeldi ungmenna sem gjarnan er deilt á samfélagsmiðlum sé mikið áhyggjuefni. Erfitt geti verið að bregðast við slíku ofbeldi en það sé alveg nýtt á nálinni að ofbeldinu sé dreift á samfélagsmiðlum.
Göngugarpurinn Margrét Rósa Kristjánsdóttir hrósar happi að vera á lífi eftir að kletturinn sem féll úr Esjunni um helgina þeyttist naumlega framhjá henni.
Fyrsti áfangi breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnesi verður boðinn út í vikunni.
Meintur árásarmaður var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Formaður Samfylkingarinnar segir lokunina hörmuleg tíðindi. Hann vill fara í þveröfuga átt og hefja markvissa uppbyggingu fyrir norðan.
Dóra Ólafsdóttir, elsti núlifandi Íslendingurinn, fagnar 108 ára afmæli í dag. Hún man vel eftir Kötlugosinu 1918 og rámar einnig í tíma spænsku veikinnar á Íslandi.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og áheyrnarfulltrúar Miðflokksins og Flokks Fólksins voru harðorðir í gagnrýni á nýju deiliskipulagi Reykjavíkurborgar um uppbyggingu nýs hverfis í Skerjafirði.
Búið er að opna fyrir gangandi umferð um tröppur sem liggja frá Vesturgötu að Grófinni í Tryggvagötu í miðbæ Reykjavíkur. Lóðarhafi lokaði fyrir leiðina með grindverki síðasta sumar, en deilt var um hvort slík lokun stæðist deiliskipulag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nótt afskipti af manneskju í annarlegu ástandi sem tilkynnt var um að hefði komið inn í verslun í miðborginni og hótað að stinga starfsmann.
Tvær konur sem voru á göngu í Esjunni forðuðu sér naumlega undan grjóthruni úr klettabeltinu austan við Þverfellshornið. Önnur þeirra hlaut smávægileg meiðsli.
Sólarhringurinn var annasamur hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dælubílar voru boðaðir í fimm minniháttar útköll í gær.
Talið er að lögreglumaður hafi handleggsbrotnað eftir að ráðist var á hann í miðborginni skömmu fyrir miðnætti.
Ákvörðunin er liður í aðgerðum borgarinnar vegna kórónuveirufaraldursins að sögn formanns borgarráðs.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem reyndist vopnaður hnífi á skemmtistað í miðborginni. Maðurinn reyndi að veitast að öðrum manni.
Forsetinn tekur á móti fyrstu gestum sínum í kvöld.
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hefur borist fjöldi ábendinga um húsnæði þar sem óttast er að brunavörnum og aðbúnaði sé ábótavant í framhaldi af brunanum á Bræðraborgarstíg. Slökkviliðsstjóri segir ærið tilefni til að endurskoða lög.
Vatnsmýri er ákjósanlegasta staðsetningin fyrir framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands samkvæmt frumathugun Framkvæmdasýslu ríkisins.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann til þriggja mánaða, skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa veist að barnsmóður sinni að kvöldi 16. febrúar 2018 fyrir framan dóttur þeirra.
Vistfélagið Þorpið úthlutaði í dag fyrstu íbúðum sínum í Gufunesi. Verð íbúðanna lækkaði um 700 þúsund krónur að meðaltali, miðað við það sem áður var auglýst fyrir umsækjendum um íbúðirnar. Þrír umsækjendur voru um hverja íbúð.
Bíó Paradís við Hverfisgötu mun hefja starfsemi að nýju í haust, en kvikmyndahúsið hefur verið lokað frá 1. maí.
Það er ekki langt síðan Elliðaárnar opnuðu fyrir veiði og júlí sem er gjarnan besti tíminn í ánni rétt gengin í garð.
Vegkaflinn var fræstur á mánudag þar sem nýlagt malbik á veginum stóðst ekki staðla um viðnám.
Fólkið sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag hét Finnur Einarsson, 54 ára, og Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, 53 ára.
HönnunarMars fór fram dagana 24. til 28. júní en þó hátíðinni hafi formlega lokið á sunnudag þá eru margar sýningar opnar áfram í sumar og jafnvel fram á haust. Þeir sem misstu af HönnunarMarsí ár geta því kynnt sér listann hér fyrir neðan í fréttinni.