
Reykjavík

Ný krydd í skuldasúpuna
Á dagskrá fundar borgarstjórnar í dag eru mörg mál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram á yfirstandandi kjörtímabili. Málaskráin varpar meðal annars ljósi á tillögur sem fulltrúar flokksins hafa hingað til lagt fram svo að hægt sé að ná tökum á rekstri Reykjavíkurborgar.

Þingmanni blöskrar viðbragðsleysi skólastjóra
Jón Pétur Zimsen, fyrrverandi skólastjóri og núverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega viðbrögð stjórnvalda og skólayfirvalda við alvarlegum agavanda í Breiðholtsskóla. Hann segir það óboðlegt að ofbeldismenningu hafi verið leyft að grassera þar árum saman án raunverulegra úrbóta.

Einn „gekk berserksgang“ og annar vildi inn í Stjórnarráðshúsið
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gærkvöldi eða nótt eftir að viðkomandi „gekk berserksgang“ í húsnæði hjálparstofnunar.

Vatnslögn rofnaði við Hörpu
Kaldavatnslögn fór í sundur við austurgafl tónleikahússins Hörpu í Reykjavík síðdegis. Framkvæmdastjóri segir tjónið óverulegt.

Ofbeldi í Breiðholtsskóla: Hélt að málið væri á réttri leið
Formaður skóla- og frístundaráðs segir Reykjavíkurborg hugsanlega ekki hafa stigið nógu fast niður varðandi ofbeldi í Breiðholtsskóla. Hún hélt að málið væri á réttri leið en svo reyndist ekki.

Drög að málefnasamningi liggi fyrir
Drög að málefnasamningi liggja fyrir í meirihlutaviðræðunum í Reykjavík meðal annars með nýjungum í húsnæðismálum, að sögn oddvita Samfylkingar. Þær hafi samið um fjölmargar aðgerðir í borginni og ætli að óska eftir auka borgarstjórnarfundi í vikunni.

Sagðist ekki muna eftir árásinni en vissi að hann hefði gert eitthvað slæmt
Drengurinn sem er ákærður fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps í Menningarnæturmálinu svokallaða sagðist í fyrstu muna lítið eftir atvikum málsins.

Nýir eigendur ætla að „troðfylla búðina af nauðsynjavöru”
Fjölskyldan sem á og rekur Pétursbúð í Vesturbæ Reykjavíkur tók við lyklunum að söluturninum Bláhorninu við Grundarstíg í gærkvöldi. Nýir eigendur stefna á að auka vöruúrval í versluninni sem verður opnuð aftur síðdegis í dag með nýja rekstraraðila í brúnni.

„Verður að skýrast í þessari viku“
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík leggur fram hátt í tuttugu tillögur á borgarstjórnarfundi á morgun. Oddvitar þeirra flokka sem eru í meirihlutaviðræðum hafa farið fram á að fundurinn verði bjöllufundur sem hefur í för með sér að fundinum verður frestað. Forseti borgarstjórnar segir brýnt að niðurstaða náist í viðræðunum í þessari viku.

„Aðfinnsluvert háttalag“ og sofið á salerni veitingastaðar
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi eða nótt um líkamsárásir í miðborginni en engar frekari upplýsingar er að finna um málin í yfirliti lögreglu yfir verkefni á vaktinni.

„Mér finnst þetta ekki vera hægagangur“
Meirihlutaviðræður vinstri flokka í Reykjavíkurborg ganga vel að sögn oddvita Vinstri grænna. Hún er ekki sammála ummælum oddvita Sjálfstæðisflokksins að um seinagang sé að ræða. Húsnæðismálin hafa verið áberandi í viðræðunum.

Fyrsta skóflustunga tekin í skugga meirihlutaviðræðna
Oddvitar flokkanna fimm sem eiga í meirihlutaviðræðum hittust á fundi í morgun og stendur hann fram eftir degi. Á meðan tók Einar Þorsteinsson borgarstjóri fyrstu skóflustungu að nýju fjölnota íþróttahúsi KR.

Furðar sig á seinagangi meirihlutaviðræðna
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, segir engan kalla eftir vinstri meirihluta í borginni. Það hafi verið mikil vonbrigði að slitnað hafi upp úr viðræðum hennar og hægri flokkanna sem hún segir gamaldagskreddutal bera ábyrgð á.

Þurftu að stökkva frá bíl sem ekið var gegnum ölvunarpóst
Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í miðbænum gærkvöldi og í nótt vegna slagsmála, hávaða og annarra mála sem tengjast munu skemmtanalífinu. Í einu tilfelli var maður handtekinn eftir að hann réðst á starfsmenn og öryggisverði heilbrigðisstofnunnar. Sá var í annarlegu ástandi og var vistaður í fangaklefa í nótt.

Borgin hafi ekki brugðist nógu hratt við í Breiðholtsskóla
Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir fjölda aðgerða til skoðunar til að bregðast við því ástandi sem uppi er komið í Breiðholtsskóla en þar lýsa foreldrar því að börn þeirra þori ekki að mæta í skólann af ótta við fámennan hóp drengja sem halda árangi í heljargreipum.

Ólíklegt að Katrín verði borgarstjóri
Meirihlutaviðræður í borginni ganga mjög vel að sögn oddvita Samfylkingarinnar. Hún telur allar líkur á að viðræðurnar endi á því að meirihluti verður myndaður. Litlar líkur séu á að Katrín Jakobsdóttir verði næsti borgarstjóri.

Maður í haldi vegna skotvopnsins
Karlmaður um fertugt er í haldi vegna skotvopns sem fannst í gærkvöldi á þaki Laugalækjarskóla í Reykjavík.

Dómarinn kveður Facebook með tárum
Brynjar Níelsson héraðsdómari, en hann hefur verið einhver vinsælasti gasprari á Facebook, kveður samfélagsmiðilinn og segir tal þar ekki samræmast nýju starfi.

Börnin líði fyrir „á meðan stjórnvöld fljóta sofandi að feigðarósi“
Starfsfólk Breiðholtsskóla segist harma úrræðaleysi stjórnvalda, en undanfarna daga hefur verið fjallað um ógnarástand í einum árgangi skólans þar sem andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi er sagt eiga sér stað.

Skólastjóri segir alla í áfalli yfir skotvopninu
Skólastjóri Laugalækjarskóla segir alla í áfalli yfir skotvopni sem nemendur skólans fundu á þaki hans seint í gærkvöldi. Hann segir lögreglu nú yfirfara myndefni úr eftirlitsmyndavél sem nái tvær vikur aftur í tímann.

Skotvopn fannst á þaki Laugalækjarskóla
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í gærkvöldi hald á skotvopn sem fannst á þaki Laugalækjarskóla.

Aðstoðarmaður borgarstjóra á hverfisfundi Sjálfstæðismanna
Björg Magnúsdóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra, mætti á hverfisfund Sjálfstæðismanna í Fossvoginum í fyrradag. Hún segist vera skráð í marga flokka, þar á meðal Sjálfstæðisflokk og Framsókn. Fundir sem þessi séu góð leið til að hafa áhrif.

Rauðsokkur í Efra-Breiðholti
Það geisar alls kyns stríð í Efra-Breiðholti. Hefur alltaf gert og mun sjálfsagt alltaf gera. Oftast milli Efra- og Neðra-, milli ólíkra menningarheima eða skólanna tveggja sitthvoru megin við Austurberg. Að þessu sinni geisar þó annað stríð, sem er ólíkt því sem áður hefur þekkst. Bitbeinið: þjálfunaraðferðir körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls í í félaginu Aþenu í Austurbergi.

„Ég ákvað bara að elta hann og ekki sleppa honum“
Vitni sem elti uppi mann sem handtekinn var fyrir líkamsárás fyrr í dag segir manninn hafa barið konu sem var með manninum í bílnum, á meðan hann ók eins og brjálæðingur frá Smáralind upp á Bústaðaveg. Lögregla hafi lokað veginum til að hafa hendur í hári mannsins. Vitnið var með lögregluna í símanum alla bílferðina, svo hægt væri að stöðva manninn.

Handtekinn grunaður um líkamsárás eftir að vitni elti hann uppi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann sem grunaður er um að hafa ráðist á konu. Hann flúði vettvang en vitni elti hann uppi og kom lögreglu á sporið.

„Við viljum bara keyra hlutina í gang“
Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Pírata, Sósíalista, Flokks fólksins og Vinstri grænna í Reykjavík ganga vel að sögn oddvita tveggja flokkanna. Borgarstjórastóllinn hafi ekki verið ræddur, en mikið traust ríki milli oddvita allra flokkanna.

Undanþágubeiðninni ekki hafnað
Beiðni flugfélagsins Norlandair um undanþágu til lendingar á austur-vesturflugbraut Reykjavíkurflugvallar hefur ekki verið hafnað heldur vill Samgöngustofa skoða málið frekar áður en hún verður afgreidd. Flugrekstrarstjóri segir ástandið hvað varðar sjúkraflug vera orðið óásættanlegt.

Björn Hlynur og Rakel slettu úr klaufunum
Mikil stemning og gleði var á þorrablóti Laugardalsins sem fór fram í Þróttaraheimilinu á dögunum. Færri komust að en vildu en uppselt varð á gleðinu á skömmum tíma.

Ekkert sem bendi til þess að þetta ætti ekki að takast
Formlegar meirihlutaviðræður í borginni verða undirlagðar vinnu næstu daga samkvæmt oddvita Vinstri grænna. Prófessor í stjórnmálafræði segir mikinn meiningarmun milli flokkanna í mörgum málum. Það sé hins vegar vel hægt að gera samning um meginatriði og bíða með ágreiningsmál fyrir næstu kosningar.

Borgaryfirvöld svara engu og Búseti ekki séð neinar breytingatillögur
Borgaryfirvöld vilja engu svara um stöðu mála varðandi vöruhúsið við Álfabakka 2, „græna gímaldið“ svokallaða, nema að málið sé í vinnslu.